5.flokkur kvenna B-lið Íslandsmeistarar í knattspyrnu

5. flokkur kvenna spilaði á Víkingsvelli úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn B-liða fimmtudaginn 4. september.

Liðið mætti Víking í hörku leik þar sem allt var í járnum eftir venjulegan leiktíma. Framlengt var í tvisvar sinnum 7 mínútur. Allt stefndi í vítuspyrnukeppni þar sem staðan var 0-0, en einni mínútu fyrir lokaflaut framlengingarinnar skoraði Ásdís Atladóttir leikmaður Vals sigurmark leiksins með hnitmiðuðu skoti beint í hornið.

Frábær árangur hjá stúlkunum og við óskum þeim auðvitað til hamingju með sigurinn.