Allir á völlinn - Baráttan um Evrópusætið!

Við Valsmenn spilum MIKILVÆGASTA leik sumarsins í Pepsídeildkarla í knattspyrnu n.k Sunnudag kl. 17:00,  þegar við mætum Víkingi í Víkinni í sannkölluðum sex stiga leik um Evrópusæti. Þessi leikur er ÚRSLITALEIKUR fyrir okkur Valsmenn í baráttunni um Evrópusæti.

Stuðningur ÞINN getur skipt sköpum og því hvetjum við alla VALSMENN, unga sem aldna, til að mæta á völlinn og hvetja liðið til sigurs.  


Síðasti leikur hjá okkur, gegn ÍBV, var frábær þar sem liðið sýndi sínar bestu hliðar.

Sýnum hvað í okkur býr - mætum í Víkina á sunnudaginn - strákarnir þurfa okkar stuðning.

 

Valsmenn, léttir í lund

leikum á sérhverri stund.

Kætin kringum oss er,

hvergi er fjörugra en hér.

Lífið er okkur svo kunnugt og kært,

kringum oss gleði nú hlær.     

Látum nú hljóma í söngvanna sal,

já, sveinar og meyjar í Val.

 

Já, Valsmenn, við sýnum og sönnum

söguna gömlu þá,  

að við séum menn með mönnum,

sem markinu skulu ná.  

 

Leikurinn hefst kl. 17:00.