Leikmannakynning Meistaraflokks Vals í handknattleik

Þann 16.september klukkan 19:30 munu Valsmenn blása til kynningar á leikmönnum meistaraflokka félagsins í handknattleik.

Óskar Bjarni Óskarsson, Jón Kristjánsson og Kristín Guðmundsdóttir þjálfarar meistaraflokka Vals munu kynna leikmenn og segja nokkur orð um tímabilið sem framundan er.

Léttar veitingar verða í boði og einnig verður hægt að kaupa ársmiða fyrir veturinn á óbreyttu verði frá því í fyrra. 

 

 

leikmannakynning 2014 handbolti.jpg