Aukaaðalfundur Vals

Knattspyrnufélagið Valur auglýsir aukaðalfund sinn sem fram fer fimmtudaginn 23 október kl 17:15 og fer fram í veislusölum Vals í Vodafonehöllinni.

 

 

 

Dagskrá er sem hér segir:

1.      Formaður félagsins setur fundinn.

2.      Kosinn fundarstjóri

3.      Kosinn fundarritari.

4.      Kosinn formaður deildarstjórnar knattspyrnudeildar og handknattleiksdeildar sem jafnframt tekur sæti í aðalstjórn.

5.      Kosnir þrír til sex stjórnarmenn í deildarstjórn knattspyrnudeildar og handknattleiksdeildar. Heimilt er einnig að kjósa allt að fimm varastjórnarmenn.

6.      Önnur mál.

Framboð til setu í deildarstjórn knattspyrnudeildar og hanknattleiksdeildar þurfa að berast með skriflegum/rafrænum hætti til aðalstjórnar/skrifstofu eigi síðar en 20. október.