Sigurður Egill Lárusson framlengir samning sinn við Val

Sigurður Egill Lárusson, miðjumaður Vals hefur skrifað undir tveggja ára framlengingu á samningi sínum við knattspyrnudeild Vals. Sigurður er 22 ára gamall miðjumaður en hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 126 leiki á meistaraflokksferli sínum. Sigurður kom til Vals í febrúar 2013 frá Víkingi og hefur frá því spilað 32 leiki með Val og skorað 4 mörk.

Sigurður hefur leikið með yngri landsliðum Íslands, var nú síðast í hópi U-21 árs landsliðsins sem tapaði naumlega í umspilsleikjum gegn Dönum.

Tölfræði:
Meistaraflokksferill:  126 leikir, 23 mörk

Landsleikir:
U-21 1 leikur.
U- 19, 11 leikir
U- 17, 6 leikir