Anton Ari Einarsson framlengir samning sinn við meistaraflokk karla

Markmaðurinn efnilegi, Anton Ari Einarsson, hefur framlengt samning sinn við meistaraflokk karla í knattspyrnu um tvö ár. Anton kom inn í mark liðsins undir lok síðasta tímabils og stóð heldur betur fyrir sínu.

Anton Ari er fæddur 1994 en hefur þrátt fyrir það spilað 54 meistaraflokksleiki á sínum ferli, flesta með Aftureldingu og Tindastóli. Þess má geta að Anton var í leikmannahópi U-21 árs landsliðs karla sem gerði jafntefli við Dani á Laugardalsvelli í nýliðnum umspilsleikjum.