Ofurtvenna fimmtudagskvöldið 6.nóvember

Það er sannkölluð ofurtvenna í handboltanum fimmtudaginn 6.nóvember.

Klukkan 18:00 hefja stúlkurnar leik þegar þær taka á móti Fram í hörkuleik. Spurning hvort Stefán kunni við sig á gömlum slóðum með nýtt lið!

Klukkan 20:15 hefst svo leikur tveggja risa-velda í handbolta á Íslandi þegar Valsmenn taka á móti FH-ingum. Þesso lið hafa lengi eldað grátt silfur saman og auðvitað stefnum við á sigur í þessum leik.

við hvetjum alla Valsara til að koma og eyða kvöldstund í Vodafonehöllinni. Við þurfum svo sannarlega á þínum stuðning að halda.

 

Ofurtvenna_Skja.jpg