Elín Metta Jensen skrifar undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Vals

Elín Metta Jensen, sóknarmaður í meistaraflokki félagsins hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning. Þetta eru mikil gleðitíðindi enda hefur Elín spilað allan sinn feril með Val, er mikil Valskona sem gefur allt inni á vellinum.
Valsarar þekkja Elínu sem mikinn markaskorara enda er tölfræði hennar á því sviði til fyrirmyndar:
50 mörk í 72 leikjum í efstu deild á fjórum tímabilum og það aðeins 19 ára gömul.


Elín hefur spilað með öllum yngri landsliðum Íslands:
U-17: 14 leikir, 17 mörk
U-19: 19 leikir, 9 mörk
U-23: 1 leikur, 1 mark
A-landslið: 11 leikir, 2 mörk