Gunnar Gunnarsson framlengir samning sinn við knattspyrnudeild

Gunnar Gunnarsson, 21 árs gamall varnarmaður sem kom til Vals fyrr á þessu ári hefur framlengt samning sinn við félagið um eitt ár. Gunnar kom við sögu í 11 leikjum á síðasta tímabili. Gunnar er getur leyst flestar stöður í vörninni og lofaði góðu þegar hann fékk tækifæri m.a. gegn FH í Kaplakrika. 
Það eru góðar fréttir að þessi efnilegi varnarmaður verði áfram í röðum félagsins.