Íþróttaskóli Vals hefst laugardaginn 10.janúar n.k.

Íþróttaskóli Vals hefst á ný næsta laugardagsmorgun sem er 10.janúar. Börn fædd 2012 og fyrri hluta árs 2013 eiga tíma frá kl. 9:10-9:45. Börn fædd 2009-2011 eru frá 9:45-10:30.

Markmið íþróttaskólans er að kynna fyrir börnunum hinar ýmsu íþróttagreinar og leiki. Í skólanum læra börn að leika sér saman, leika með foreldrum auk þess að fylgja fyrirmælum kennara og vinna í hópum.   

Sigrún Brynjólfsdóttir, grunnskólakennari og þjálfari stýrir íþróttaskólanum ásamt iðkendum úr handbolta og körfubolta.  Sigrún hefur áralanga reynslu af íþróttaþjálfun fyrir börn og meðal annars þjálfað handbolta hjá Haukum og Víking sem og séð um íþróttaskóla fyrir börn í Hafnarfirði. Framundan má því gera ráð fyrir fjörugum og skemmtilegum íþróttaskóla !

Hægt er að hafa samband við Sigrúnu ef einhverjar spurningar vakna, í s.864-4765 eða á netfangið:  itrottaskolivals@gmail.com .

Skráning í Íþróttaskóla Val er hér