Heiða Dröfn Antonsdóttir til liðs við Val

Valskonur hafa fengið mikinn liðsstyrk í knattspyrnunni fyrir komandi átök. Heiða Dröfn Antonsdóttir, 23 ára miðjumaður er komin aftur heim í Val eftir dvöl hjá Fylki, í Svíþjóð og nú síðast hjá FH þar sem hún var fyrirliði á liðinni leiktíð. Heiða Dröfn hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 80 leiki í efstu deild og kemur því með dýrmæta reynslu inn í leikmannahópinn.
Gaman er að segja frá því að bæði Heiða Dröfn og Hildur Antonsdættur, systur og lykilleikmenn kvennaliðsins eru dætur Ragnheiðar Víkingsdóttur fyrrum leikmanns Vals.

Heimkoma Heiðu Drafnar er mikið gleðiefni og býður hana hjartanlega velkomna heim.