Alfreð Örn Finnsson tekur við meistaraflokk kvenna
Handknattleiksdeild Vals hefur ráðið Alfreð Örn Finnsson sem þjálfara meistaraflokks kvenna til ársins 2018.
Alfreð mun koma til starfa hjá félaginu 1. febrúar næstkomandi og starfa við hlið Óskars Bjarna Óskarssonar, þjálfara liðsins, út yfirstandandi tímabil, en Alfreð tekur svo við liðinu að tímabilinu loknu.
Handknattleiksdeild Vals lýsir yfir mikilli ánægju með ráðningu Alfreðs, enda var hann fyrsti kostur félagsins í starfið.
Alfreð, sem er 35 ára gamall, hefur átt farsælan feril sem þjálfari bæði hér heima og erlendis.
Ferill Alfreðs hófst í yngri flokkum KR árið 1994, en árið 2002 steig hann sín fyrstu skref í meistaraflokksþjálfun sem aðstoðarþjálfari Gróttu/KR.
Árin 2003-2008 var hann aðalþjálfari kvennaliða Gróttu (2003-2004, 2006-2008) og ÍBV (2004-2006).
Lið ÍBV varð Íslandsmeistari undir hans stjórn árið 2006 og hann var valinn þjálfari ársins í úrvalsdeild kvenna árin 2006 og 2007, en síðara árið varð Grótta í 2. sæti.
Árið 2010 tók Alfreð við kvennaliði Volda í 2. deild í Noregi og stýrði liðinu í þrjú ár við góðan orðstír.
Á lokatímabili Alfreðs hjá liðinu vann það sér sæti í næstefstu deild og var Alfreð þá ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðsins Storhamar, sem er eitt af fremri kvennaliðum norska kvennaboltans, og stýrði þeim í 4. sæti deildarinnar.
Síðastliðinn föstudag komust Alfreð og Storhamar að samkomulagi um starfslok.
Þegar handknattleiksdeild Vals varð ljóst að hugur Alfreðs stefndi heim til Íslands var málið unnið hratt og örugglega
af báðum aðilum og niðurstaðan þriggja og hálfs árs samningur. Líkt og áður sagði mun Alfreð starfa við hlið Óskars Bjarna með kvennaliðið fram á vorið, með því fyrirkomulagi er bæði karla- og kvennaliðum Vals tryggðar bestu mögulegu aðstæður, enda stýrir Óskar Bjarni einnig karlaliði félagsins.
Nánari upplýsingar veita:
Ómar Ómarsson, formaður hkd Vals, s: 869-1668
Alfreð Örn Finnsson, s: +4790223932