Í dag skrifaði Arnar Sveinn Geirsson undir nýjan samning við Val og gildir samningurinn út tímabilið 2015. Arnar Sveinn sem er uppalinn Valsari er 22 ára gamall hefur spilað 17 landsleiki með yngri landsliðum Íslands og á eina 66 leiki með Val í deild og bikar en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið árið 2008. Lesa meira
Guðni Valentínusson hefur gengið til liðs við karla lið Vals í körfuknattleik. Guðni hefur leikið í dönsku úrvalsdeildinni síðustu fimm tímabil og varð meðal annars meistari í tvígang með Bakken Bears.
Það er ljóst að þetta er mikill styrkur fyrir Valsliðið sem keppir á ný í deild þeirra bestu. Lesa meira
Edda Garðarsdóttir ráðin nýr aðstoðarþjálfari mfl kvenna í knattspyrnu Lesa meira
fimmtudaginn 3.október fer fram leikur Vals og Fram í Olís deild karla í Vodafonehöllinni. Orrustan um borgina er hafin og við þurfum á þínum stuðning að halda!
Leikurinn hefst klukkan 19:30 og við hvetjum auðvitað alla til að koma og styðja við bakið á strákunum okkar.
Lesa meira
Hildur Antonsdóttir skrifaði í gær undir nýjan samning Lesa meira
Þegar Óli gerði grein fyrir því snemma í haust hvernig hann hygðist byggja Valsliðið upp þá bað hann stuðningsmenn um að vera þolinmóða. Við ættum eftir að tapa mörgum leikjum til að byrja með en þegar liði á tímabilið þá færum við að safna stigum og í framhaldinu kæmu titlar í hús. Lesa meira
U-17 ára landslið Íslands í knattspyrnu hélt til Rússlands í september og spilaði í sínum riðli í Evrópukeppninni þar. Tveir Valsmenn, þeir Darri Sigþórsson og Sindri Scheving voru lykilmenn í þessu liði sem sló svo sannarlega í gegn. Lesa meira
Darri Sigþórsson hefur skrifað undir samning við Knattspyrnufélagið Val og gildir samningurinn til hausts 2015.
Darri hefur spilað með yngri landsliðum Íslands og það er ánægjuefni að hann skuli vera áfram á Hlíðarenda. Við óskum Darra auðvitað til hamingju með samninginn. Lesa meira
Valur og Grótta mætast í Olísdeild kvenna í Vodafonehöllinni í kvöld klukkan 19:30. Þetta verður án efa hörku leikur og við viljum sjá alla Valsara koma og styðja við bakið á stelpunum. Valur hefur byrjað mótið með látum og eru stelpurnar ósigraðar eftir þrjá fyrstu leikina.
Áfram Valur Lesa meira
Þá er komið að fyrsta heimaleik hjá Valsstelpunum í Domino's deildinni. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og við viljum sjá sem flesta koma og styðja við bakið á stelpunum. Lesa meira
Stelpurnar af Nesinu litu í heimsókn í gærkvöldi. Undirritaður átti von á einstefnu frá okkar hendi en annað átti eftir að koma á daginn. Sannast sagna hef ég ekki séð Grótturnar svo sprækar í áraraðir. Lesa meira
Indriði Áki Þorláksson hefur framlengt samning sinn við Val. Nýr samningur gildir út tímabilið 2016. Indriði sem varð 18 ára á árinu hefur leikið 19 leiki með meistaraflokki Vals og skorað í þeim 7 mörk. Lesa meira
Valskórinn mun syngja við messu í Háteigskirkju næstkomandi sunnudag, 13.október, kl.11:00. Valsmenn eru boðnir sérstaklega velkomnir til messu þennan sunnudag sem og aðra. Lesa meira
Dagana 19.-27. september tók U19 ára landslið kvenna í knattspyrnu þátt í undankeppni EM og fór riðillinn fram í Búlgaríu. Í liðinu voru fjórir leikmenn Vals þær ElÍn Metta Jensen, Hildur Antonsdóttir, Ingunn Haraldsdóttir og Svava Rós Guðmundsdóttir. Lesa meira
Halldór Sigurðsson (Donni) hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Val. Donni er með UEFA A gráðu frá KSÍ og er íþrótta – og heilsufræðingur að mennt og kennir íþróttir og sund við Hvaleyraskólann í Hafnarfirði. Lesa meira
Knattspyrnufélögin Valur og Fram hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Kristins Inga Halldórssonar í Val. Kristinn Ingi sem er 24 ára gamall gerir fjögurra ára samning við Val eða út tímabilið 2017. Lesa meira
Sólveig Lóa Höskuldsdóttir skrifar undir samning Lesa meira
Það er tvöföld hamingja á föstudagskvöld! Meistaraflokkur karla í handknattleik spila gegn drengjunum frá Akureyri klukkan 18:00 og strax í kjölfarið mætas Valur og FH í meistaraflokk kvenna, sá leikur hefst klukkan 20:00.
Sé smellt á "lesa meira" má sjá viðtal við þjálfara meistaraflokks kvenna í handbolta. Á fésbókarsíðu Vals Handbolta má ennfremur sjá viðtal við þjálfara meistaraflokks karla Lesa meira
Sindri Scheving hefur haldið til Englands á ný og dvelur þessa dagana hjá Reading. Lesa meira
Matthías Guðmundsson leikmaður Vals hefur ákveðið að yfirgefa félagið. Matti hóf ferill sinn með Val árið 1999 og hefur verið einn af lykilmönnum félagsins í mörg undanfarin ár , hann lék um 220 leiki með Val í deild og bikar. Lesa meira
Jóhann Már Helgason, 28 ára stjórnmálafræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vals. Lesa meira
Hér er pistill um sigur meistaraflokks karla í handbolta á Akureyri. Lesa meira
Hér er pistill um sigur Vals á FH í Olísdeild kvenna á föstudagskvöld Lesa meira
Olísdeild karla, fimmtudagskvöld kl. 19:30. HK- Valur, íþróttahúsinu Digranesi. Allir á völlinn.
Skemmtilegt upphitunarmyndband má skoða á síðunni. Lesa meira
Miðarnir á Herrakvöld Vals eru komnir í hús. Hægt er að nálgast miða á skrifstofunni á milli 12:00 og 16:00 alla virka daga. Lesa meira
Valsmenn eiga þrjá fulltrúa í æfingahóp U20 í handknattleik. Lesa meira
Berglind Rós Ágústsdóttir skrifaði í gær undir nýjan samning Lesa meira
Herrakvöld Vals verður haldið þann 1.nóvember næstkomandi á Hlíðarenda. Miðasala fer fram í síma 414-8000 eða valur@valur.is
Við lofum miklu stuði og hvetjum alla Valsmenn til að tryggja sér miða tímanlega
Ræðumaður kvöldsins er Einar Kárason en einnig munu þeir Þorsteinn Bachmann (veislustjóri), Ari Eldjárn og Egill Ólafsson stíga á svið. Lesa meira
Í kvöld 30.október 2013 mætast Valur og Hamar í Domino's deild kvenna á Hlíðarenda. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og auðvtaið viljum við sjá alla Valsara koma og styðja við bakið á stelpunum. Lesa meira
Fimmtudagskvöldið 31.október mætast Fram og Valur í Safamýri og hefst leikurinn klukkan 20:00. Mætum öll og stðyjum stelpurnar okkar til sigurs. Lesa meira
Marteinn Högni Elíasson hefur skrifað undir samning við Knattspyrnufélagið Val. Marteinn er leikmaður í 2.flokk félagsins og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Við óskum honum að sjálfsögðu til hamingju með áfangann. Lesa meira
Í kvöld mæta drengirnir okkar Keflvíkingum. Þetta verður hörku leikur og drengirnir þurfa á þínum stuðning að halda. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Lesa meira