Þær Hildur Antonsdóttir og Laufey Björnsdóttir hafa skrifað undir tveggja ára samninga við knattspyrnudeild Vals. Báðar hafa leikið með Val undanfarin tímabil og staðið sig vel og því er fagnaðarefni að halda þessum sterku leikmönnum í félaginu.
Heyra má í leikmönnunum með því að smella á fréttina. Lesa meira
Kristinn Freyr Sigurðsson, leikmaður Vals, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals. Kristinn er að hefja sitt fjórða tímabil með Val og er fyrir löngu orðinn einn af mikilvægustu mönnum liðsin, innan vallar sem utan.
Í flottu viðtali sem heyra má í fréttinni minnist Kristinn Freyr sérstaklega á mikilvægi stuðningsmanna Vals. Lesa meira
Það er sannkölluð ofurtvenna í handboltanum fimmtudaginn 6.nóvember. Lesa meira
Baldvin Sturluson, 25 ára knattspyrnumaður er genginn til liðs við Val frá Stjörnunni. Baldvin hefur spilað 90 leiki í efstu deild og skorað í þeim 10 mörk. Baldvin er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum. Heyra má í Baldvin í fréttinni. Lesa meira
Æfing hjá 8.flokk kvenna í knattspyrnu fellur niður sunnudaginn 9.nóvember sökum anna í húsinu. foreldrar skráðra iðkenda í flokknum hafa fengið tölvupóst um málið. Lesa meira
Ásta Árnadóttir, sem lék í hjarta varnar kvennaliðs Vals á árunum 2004-2010 hefur gengið til liðs við meistaraflokk kvenna sem sjúkraþjálfari. Valsrarar muna eftir Ástu fyrir gríðarlegt keppnisskap og smitandi jákvæðni inni á vellinum. Af þessu tilefni var slegið á þráðinn til Ástu. Lesa meira
Toppslagur hjá strákunum okkar í kvöld. Lesa meira
Á morgun, þriðjudaginn 18.nóvember verða allir óskilamunir haustsins lagðir fram á borð í Valsheimilinu. Endilega kíkið við og sjáið hvort þið finnið eitthvað sem barnið ykkar á. Lesa meira
Í kvöld, mánudaginn 17.nóvember fer fram toppslagur í Olísdeild kara í handknattleik þegar Valsmenn heimsækja drengina í Aftureldingu. Leikurinn fer fram í Mosfellsbæ og hefst stundvíslega klukkan 19:30. Við hvetjum alla Valsara til að mæta á svæðið og öskra strákana á toppinn. Lesa meira
Elín Metta Jensen, sóknarmaður í meistaraflokki félagsins hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning. Þetta eru mikil gleðitíðindi enda hefur Elín spilað allan sinn feril með Val, er mikil Valskona sem gefur allt inni á vellinum.
Með fréttinni fylgir viðtal við Elínu Mettu Lesa meira
Gunnar Gunnarsson, 21 árs gamall varnarmaður sem kom til Vals fyrr á þessu ári hefur framlengt samning sinn við félagið um eitt ár. Gunnar kom við sögu í 11 leikjum á síðasta tímabili. Rætt er við Gunnar í fréttinni. Lesa meira
Íþróttaskóli Vals er nú kominn í Jólafri. Rúmlega fimmtíu hressir krakkar á leikskóla aldri hafa skemmt sér í 10 skipti að Hlíðarenda með foreldrum og leiðbeinendum. Í þessum síðasta tíma fengu krakkarnir m.a. boli að gjöf þökk sé PwC og Bros. Nánari upplýsingar um næsta námskeið auk mynda úr lokatímanum er að sjá sá með því að smella á fréttina. Lesa meira
Valshlaupið verður haldið laugardaginn 29.nóvember kl.12:00 Lesa meira