Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Flugfélags Íslands Deildarbikarinn 2009 Valkostir
Svenni
Skráð: 23. December 2009 16:58
Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 108
Staður: Reykjavík
Milli jóla og nýárs mun fara fram keppni um Deildarbikar HSÍ en sú keppni hefur verið haldin á þessum tíma undanfarin 2 ár. Í ár ber keppnin heitið Flugfélags Íslands Deildarbikarinn.

4 efstu lið í N1 deildum karla og kvenna fara í keppnina og er miðað við stöðu liðanna eftir seinustu umferð fyrir jól þar sem allir hafa leikið jafn marga í leiki.

Í karlaflokki eru það Haukar, FH, Akureyri og Valur og í kvennaflokki er það Valur, Stjarnan, Fram og Haukar.

Leikið verður í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði.

Miðaverð er 1.000 kr fyrir hvorn dag, fyrir 16 ára eldri, en frítt inn fyrir 15 ára og yngri.

Allir leikir mótsins verða sýndir beint á www.sporttv.is.

Leikjaplanið er eftirfarandi:


Sunnudagur 27.desember 2009

FÍ Deildarbikar kvk
kl.12.00
Valur - Haukar

FÍ Deildarbikar ka
kl.14.00
Haukar - Valur

FÍ Deildarbikar ka
kl.16.00
FH - Akureyri

FÍ Deildarbikar kvk
kl.18.00
Stjarnan - Fram


Mánudagur 28.desember 2009

FÍ Deildarbikar ka
kl.18.00
Úrslit

FÍ Deildarbikar kvk
kl.20.00
Úrslit

Gastone
Skráð: 23. December 2009 18:17
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 18.10.08
Bréf: 17
Staður: Mosó
Bravó.... hlakka ekkert smá til..... manni skilst að uppstaðan í karlaliðinu séu leikmenn úr 2-3 flokki....

Þessi keppni er ekkert annað en bull..... engin metnaður fyrir þessu.....




Gleðileg Jól

Valsmenn nær og fjær
mauli
Skráð: 23. December 2009 18:38
Staða: Nýliði

Skráði sig: 04.06.09
Bréf: 2
Tek undir með Gastone, þessi keppni er djók...Menn eru enn að melta jólasteikina á þessum tíma og liðin spila í þessari keppni frekar af kvöð en einhverju öðru. HSÍ þarf að komast í takt við tímann.

Gleðileg jól.
Skaginn
Skráð: 24. December 2009 02:52
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 114
Staður: reykjavík
Já þetta er í raun hálfleikur deildarbikar einsog í enska fótboltanum. Þar mæta mörg ágæt lið í leiki sem eiga að vera léttir með kannski 80 prósent unga leikmenn sem hafa lítið sem ekkert spilað með aðalliði félagsins. Engin metnaður í því en auðvitað er leiðilegt að þurfa að mæta í deildarbikar sérstaklega um Jól þegar t.d nokkrir leikmenn Vals væru frekar til í að vera t.d fyrir Norðan eða annars staðar.
Betra væri ef t.d Óskar og Aron sem dæmi myndu velja 2 stk stjörnulið einsog í Körfunni. Svo væru leikir fyrir áhorfendur og fleira skemmtilegt
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.