|
|
Staða: Stjórnandi
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 130 Staður: Reykjavík
|
Valur verður ekki með varamarkmann í stórleik dagsins gegn Haukum í N1-deild kvenna en liðin mætast á morgun. Berglind Hansdóttir verður að standa vaktina í markinu og fari svo að hún meiðist eða geti ekki tekið þátt í leiknum þá þarf útileikmaður að taka hennar stöðu.
Valsmenn hafa verið að reyna að fá varamarkmann til að leysa Sunnevu Einarsdóttur af en hún meiddist illa á dögunum og verður frá keppni í einhvern tíma.
Jóhannes Lange, aðstoðarþjálfari Vals, hefur þurft að standa milli stanganna á undanförnum æfingum þar sem Valur er ekki með annan markmann sem stendur. Af augljósum ástæðum getur Jóhannes samt ekki tekið að sér hlutverk varamarkmanns á morgun í leiknum og því þarf Valsliðið að treysta á að Berglind geti leikið allan leikinn.
Tekið af Sport.is
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Hvaða augljósu aðstæður eru það ?? =P
ÁFRAM VALUR !!
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 34 Staður: Rivertown
|
Skrá hann sem Jóhönnu Lange :)
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Ekki var þörf í þessum leik á varamarkmanni enda átti Begga fínan leik sem og aðrir leikmenn en sérstaklega var Hrafnhildur sterk sem og Hildigunnur og Anna Úrsúla en annars ætti einhver markmaður að vera í öðrum flokki eða þriðja sem gæti leyst Sunnevu af í meiðslunum eða þar til markmaður finnst. Að lokum verður maður að nefna það að næsti leikur verður að vinnast en það er leikur gegn Fram sem er í raun eina liðið sem á möguleika á titlinum ásamt Val. Sá leikur verður á Þriðjudaginn og segjum að Valur vinnur þá eru þær með þrjú stig í plús á Fram og auk þess eiga eftir FH,Fylkir og KA/Þór sem eiga að vinnast en aftur á móti þá á Fram á Fram Hauka,FH,og Fylkir en Framstelpur eiga að geta unnið góða sigra gegn þessum liðum nema auðvitað Haukar geta margt á góðum degi.
|
|
|
Guest |