Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Reykjavíkurmót - Valur gegn Víkingi Reykjavík Valkostir
Heiða í Dal
Skráð: 14. January 2010 14:15

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 13.10.09
Bréf: 28
Staður: Reykjavík
Jæja Valsarar!

Í kvöld hefst fyrsta mót ársins, þegar okkar menn taka á móti nágrönnunum úr Fossvogi. Ég veit ekki með aðra, en fyrsti mótsleikur á nýju ári er alltaf spennandi fyrir mig - sjá leikmenn sem eru búnir að fá að spreyta sig í misalvarlegum æfingaleikjum loksins koma í leiki sem eru skráðir.

Ekki skemmir að þessi leikur er sá fyrsti sem Gulli stjórnar.

Það er sennilegt að við höldum áfram með 4-3-3 sem var í gangi í leikjunum fyrir jól, skemmtilegt leikkerfi að mínu mati sem hentar þessum hópi. Nýji leikmaðurinn úr Þrótti, Haukur Páll, er ekki kominn með leikheimild, svo hann verður ekki með. Aðrir sem þurfa að dvelja utan vallar eru Hafþór Ægir, Einar Marteins og Haraldur Björns, þar sem þeir eru allir nýbyrjaðir að æfa eftir meiðsli.

Persónulega gaf ég eftir frímiða á forsýningu nýs leikrits í Borgarleikhúsinu og Pub-Quiz Sammarans til að sjá þennan leik. Fjölmennum á pallana svo ég sé ekki solo þarna!

Áfram Valur!
Egerfan
Skráð: 14. January 2010 21:39
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Var á leiknum í kvöld ! Valsmenn byrjuðu ágætlega, sköpuðu sér tvö til þrjú dauðafæri sem vöru illa nýtt. Það var svo Baldur Ingimar sem skoraði mark Valsmanna sem var verskuldað. Vikingar efldust við þetta og skoruðu svo tvö mörk með stuttu millibili úr sínum tveim færum sem þeir fengu og skoraði Helgi Sig annað mark eirra eftir vel heppnaða stung inn fyrir og kláraði hann það eins og honum einum er lagið..Seinni hálfleikur var hinsvegar arfaslakur að minni hálfu og menn ekki allveg á tánum og máttum við þakka fyrir að Víkingar unnu ekki stærra.
Valli
Skráð: 18. January 2010 10:55
Staða: Nýliði

Skráði sig: 18.01.10
Bréf: 0
http://vikingur.net/web/?page=news_story&id=1793

Ekki voru allir jafnánægðir og Víkingar í gær en Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, stóð fyrir miðri stúkunni og leyfði öllum þeim sem höfðu áhuga á að heyra hvað honum fannst um Víkingsliðið. Ömurlegt, lélegt og það getur ekkert, heyrðist trekk í trekk frá formanninum.

Það var svo rétt áður en flautað var til leiksloka að hann mælti þau fleygu orð: "Þetta Víkingslið er bara eins og firmalið. Það yrði skömm að tapa fyrir því." Sú varð þó raunin. Firmaliðið hafði sigur, 2-1, á Öskjuhlíðarpiltum.

Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.