Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Hugur í Gróttu mönnum ! Valkostir
Svenni
Skráð: 12. February 2010 17:11
Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 130
Staður: Reykjavík
Stærsti leikur hvers keppnistímabils ár hvert er án efa sjálfur bikarúrslitaleikurinn. Í kringum þessa leiki er jafnan mikil spenna og æstir stuðningsmenn liðanna troðfylla Laugardalshöllina. Í fyrra voru það Valsmenn sem sigruðu 1. deildarlið Gróttu en þurftu að hafa talsvert fyrir sigrinum.

Helgina 13.-14. febrúar fara undanúrslitaleikir Eimskipsbikarsins fram. Í undanúrslitum karla árið 2010 eru það Haukar sem etja kappi við HK og bikarmeistarar Vals fá Gróttu í heimsókn.

Gróttumenn, sem eiga harma að hefna síðan í úrslitaleiknum í fyrra, hafa komið mörgum á óvart og var leikur Vals og Gróttu í 1.umferð Íslandsmótsins mjög spennandi. Þeim leik lauk með eins marks sigri Vals, líkt og leikurinn í 2.umferð. Gróttumenn hafa sett markið að því að halda sér í deildinni og er staðan á því markmiði á áætlun.

Valsmenn eru bikarmeistara síðustu tveggja ára og léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn við Hauka síðasta vor en urðu að játa sig sigraða. Valsmenn eru án efa til í að bæta 3. titlinum á þremur árum í safnið.

Talsverðar tengingar eru á milli Gróttu og Vals. Fyrir tímabilið skiptu félögin á markverðinum Hlyni Morthens, sem hafði leikið í mörg ár fyrir Gróttu, og fengu í staðinn Anton Rúnarsson og Hjalta Pálmason. Fyrir hjá Gróttu eru fyrrverandi leikmenn Vals, línumennirnir Ægir Hrafn Jónsson og Atli Rúnar Steinþórsson. Þessar tengingar gera leiki liðanna sérstaklega spennandi á að horfa og erum við sannfærðir um að svo verður einnig að þessu sinni.

Einstaklega gaman hefur verið að fylgjast með áhorfendum Gróttu í vetur sem hafa fjölmennt á leiki liðsins. Þá gildir einu hvort um heimaleiki eða útileiki hefur verið að ræða. Sterkur hópur áhorfenda er lykillinn að því að koma Gróttu aftur í Höllina og gera atlögu að bikarmeistaratitlinum. Við hvetjum alla Gróttumenn að flykkjast í Vodafone-höllina og gera leikinn að okkar.

Vona að við sjáum sem flesta,

Gísli Guðmundsson
Halldór Ingólfsson

Þjálfarar mfl. karla Gróttu
Svenni
Skráð: 12. February 2010 17:17
Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 130
Staður: Reykjavík
Fyrir tæpu ári síðan skrifaði undirritaður hugleiðingar í tilefni bikarúrslitaleiks Gróttu og Vals sem birtust á heimasíðu Gróttunnar í undirbúningi fyrir þann bikarslag. Þetta er því annað árið í röð sem þessi lið mætast í bikarkeppni og má færa fyrir því rök að um svokallaðan Derby- leik verði að ræða þegar Gróttan fer á heimsókn á Hlíðarenda þann 14.febrúar nk. Í ljósi þessa er vel við hæfi að tekin sé upp þráðurinn hér og farið yfir tengsl þessara félaga.

Þegar sagan er skoðuð kemur í ljós að Gróttan hefur ekki oft riðið feitum hesti í viðureignum þessara liða. Þó verður lengi í minnum hafður leikur í 16 liða úrslitum SS bikars karla árið 1999 sem fram fór á Seltjarnarnesi þar vann Gróttan frækinn sigur 29-24 og fór síðar í undanúrslit með sigri á KA. Bikarúrslitaleikurinn fyrir ári síðan er þó skiljanlega efstur í huga. Þar sýndi Gróttan mikla seiglu með því að komast aftur inn í leikinn eftir erfiðleika í byrjun og glöddu augu stuðningsmanna sinna með fínum tilþrifum á köflum. Með þá reynslu í farteskinu verður því annað uppi á teningnum í ár.

Sé bikarhefðin skoðuð hefur Valur vinninginn enda hefur Gróttan enn ekki orðið íslandsmeistari í boltagrein. Valsmenn hafa aftur á móti 97 sinnum unnið slíkan bikar, en hver er svosem að telja.

Segja má að tengsl liðana skíni í gegn þegar horft er yfir sviðið og sameiginlegir leikmenn skoðaðir enda hefur Gróttan verið stærsti valdur af stærstu blóðtökum Valsara undanfarin ár. með Gróttuliðinu í dag leika fjórir fyrrum leikmenn Vals þeir; Hjalti Pálmason, Anton Rúnarsson, Ægir Hrafn Jónsson og fyrirliðinn Atli Rúnar Steinþórsson. Þá gegnir Guðmundur Árni Sigfússon hlutverki tæknilegs ráðgjafa hjá Gróttunni í dag en hann var áður aðstoðarþjálfari hjá Val. Með Val leika hins vegar fáir Gróttumenn, eingöngu Hlynur Morthens markvörðir (enda fáir sem sjá hag sínum betur borgið annarsstaðar eftir viðdvöl á Seltjarnarnesi).

Við Gróttumenn munum mæta óhræddir í slaginn á sunnudaginn með viljann að vopni og stígum skrefið nær fyrsta bikar Gróttu í boltaíþrótt og festum með því bikarhefðina í sessi á Seltjarnarnesi.

Sunnudagur 14.febrúar kl. 18:00. EKKI MISSA AF ÞESSUM LEIK !

Tekið af grottasport.is
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.