|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 21.08.09 Bréf: 39 Staður: Rvk
|
Sælt veri fólkið. Ég held að frá því að ég byrjaði að fylgjast með þessu spjallborð þá hefur það aldrei verið jafn dautt og nú. Nú voru þær fréttir að berast að Bjarni Ólafur væri á leið til Stabæk. mér finnst þetta slæmar fréttir fyrir Val en að sama skapi góðar fréttir fyrir Bjarna. Bjarni rétt eins og aðrir sem spiluðu fyrir Val á síðasta tímabili náði sér ekki á strik en við vitum að þar fer mikill jaxl úr Valsliðinu og vonandi að það komi jafn öflugur maður í hans stað.
Langar að óska Bjarna velgengis í Stabæk og þú veist að þú getur alltaf komið aftur.
Áfram Valur
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 01.07.09 Bréf: 0 Staður: 101 Rvk
|
Eru þetta ekki bara góðar fréttir fyrir alla aðila?
Ekki eins og Bjarni hafi verið að gera einhverjar rósir í fyrra og við fáum pening fyrir hann, norskar krónur m.a.s. !
Óska Bjarna góðu gengi hjá Stabæk og vonandi fer hann að ná sér á strik.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 1 Staður: RKV
|
Vita menn eitthvað hvað Valur fær mikinn pening ?
Bjarni náði sér auðvitað engan veginn á strik í fyrrasumar, líkt og nánast allir leikmenn liðsins reyndar. En að sjálfsögðu vonum við að honum gangi sem allra best þarna úti.
En væntanlega þurfum við þá að styrkja vörnina ?
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 12.05.09 Bréf: 0
|
Frábært fyrir Bjarna og ég óska honum alls hins besta í Noregi. Hann á eftir að standa sig vel drengurinn.
Takk fyrir okkur Bjarni.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 10.05.09 Bréf: 0 Staður: rvk
|
Þarna fer svo klárlega okkar allra allra besti maður og ekkert skrítið verð ég að segja, ég sé ekki betur en að ekkert sé að gerast hjá okkar klúbb annað en að liðið sem og mjög slakir stuðningsmenn Vals séu að hrynja niður. Kæri Max þú drullaðir upp á bak allt seinasta sumar sem stuðningsmaður Vals og vill ég láta þig vita að því. Mér er skítsama hversu mikinn pening við fáum fyrir menn eins og Bjarna sem hefur ávallt fórnað sér á allan hátt fyrir klúbbinn og eiga gott hrós skilið eitthvað annað en það sem sumur treg gáfaðir menn skrifa hér á þessum ágæta vef. Gangi þér vel Bjarni og takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir klúbbinn
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 01.07.09 Bréf: 0 Staður: 101 Rvk
|
Haha, drullaði ég upp á bak? Þú vilt kannski útskýra fyrir mér af hverju? Af því ég hafði rétt fyrir mér um Atla og neitaði að mæta á leiki á meðan hann stýrði liðinu?
Það voru bara mín táknrænu mótmæli. Mér þykir leitt ef ég hef sært þig.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 10.05.09 Bréf: 0 Staður: rvk
|
Þú særir mig svo sem ekkert en það að þú kallir þig stuðningsmann Vals er della. Það má vel vera að þú sért Valsari en stuðningsmaður það ertu ekki. því þeir styðja lið sitt og félag ekki einstaklinga og því gera þeir ekki aðsúg að einstökum mönnum. Það er margt sem mer finnst að hjá mínu félagi, margt sem betur má fara en ég kem samt og styð mitt félag í blíðu og stríðu frekar en að sitja heima hjá mér pirraður og setjandi út á allt og alla.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 19.05.09 Bréf: -3
|
Strákar, fáið ykkur herbergi og hættið þessu kítingum! Það er febrúar og þið eruð strax farnir að rífast! ;)
Gangi þér allt í haginn Bjarni, sýndu þessum Norðmönnum hvernig á að fara að þessu!
|
|
 Staða: Nýliði
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 1 Staður: Reykjavík
|
Hjartanlega sammála síðasta ræðumanni. Nú er kominn tími til að fara að hugsa í lausnum en ekki vandamálum (vonandi) fortíðar!
Bjarni er farinn, og kemur vonandi til baka á einhverjum tímapunkti. Nú þarf að fara að finna einhvern í liðið í hans stað, græja framherjamálin og láta það svo vaða!
Í dag eru bara 9 dagar í fyrsta leik í deildarbikarnum á móti F.H., grínmót Reykjavíkur búið eftir kvöldið í kvöld og hver dagur færir okkur nær því eina sem skiptir máli - Íslandsmótinu.
Áfram með smérið og áfram Valur!
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 19.05.09 Bréf: 0
|
Bjarni farinn og vonandi mun hann spila vel i noregi. Finna mann i hans stað eins og heiða i dal segir???' erum við ekki með menn þarna sem geta leyst þessa stöðu??? eða þurfum við alltaf að kaupa menn? og svo segir þú græja framherjamálin???? hvað meinarðu viltu fa arnar og bjarka aftur eða? Viktor unnar er að skora i hverjum leik. Hvað viltu fa framherja sem skorar 5 mörk i hverjum leik? Sa leikinn a moti KR og var viktor lelegur i þeim leik en ástæðan var naturlega að hann fekk enga hjalp fra miðjunni eða köntunum það var ekki fyrr en siðustu 10 min sem hjalpin kom (matti kom inná) og þa spilaði hann feyki vel og setti hann. Ég skil ekki þetta röfl um að það vanti framherja við virumst alltaf skora moti FH 1 HK 7 KR 1 þrótti 4 IR 2 Víking 1 er það ekki frekar varnar menn sem við þurfum að skoða eða slipa til???''
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 48 Staður: Reykjavík
|
Frábært fyrir Bjarna og slæmt fyrir Val. Erum að missa burðarstólpa og Fyrirliðann úr liðinu. Verður erfitt að fá jafn sterkann mann og Bjarna. Getur Stefán Eggertsson ekki leyst þessa stöðu samt? Ef allt þrýtur er þá ekki Rene Carlsen ekki laus í augnablikinu?? =)
ÁFRAM VALUR !!
|
|
 Staða: Nýliði
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 1 Staður: Reykjavík
|
Það sem ég meina með að finna framherja er að það er yfirlýst að Valur muni bæta við sig einum framherja. Ég bind miklar vonir við Viktor í sumar, en það er ljóst að það vantar samt einn þó ekki væri nema fyrir samkeppnina.
Þannig að Fálki minn þetta er ekki röfl heldur bara staðreynd.
Áfram Valur!
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 19.05.09 Bréf: 0
|
Ok er samála þvi samkeppni er af þvi góða:) en eg vil ekki að valur se að kaupa einhverja gamla utbrunna sentera sem geta ekkert eins og t,d arnar og bjarka sem valda þess að ungir leikmenn eins og Viktor og Arnar geir verði frystir og fá litið að spila og missa þar með sjálfstraustið og svona.
Ég veit nu ekki hvað maður a að segja um vörnina hefur einar marteins ekkert spilað bakvörðin eða er hann bara miðvörður???????'
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: -2 Staður: 101
|
Held að það sé alveg ljóst að við þurfum vinstri bakvörð, Habbó gæti reyndar verið einn af þeim sem gætu leyst þetta sem og Steinþór sem spilaði þessa stöðu hjá Víking með miklum sóma en auðvitað er alls óvíst hvort hann verði heill, því tel ég að það sé alveg nauðsynlegt að kippa inn öflugum vinstri bakverði, Valur er og á ekki að vera í þeirri stöðu í dag að einhver leikmaður þurfi að "Leysa" einhverja stöðu sem er honum ekki eðlislæg, því þarf einfaldlega að fara á markaðinn og fá vinstri bakvörð þar sem hann er ekki fyrir hjá okkur.
En með strikerin, vita menn hvernig staðan er á Marel, ef hann verður með og við fáum vinstri bakvörð tel ég okkar lið vera nokkuð vel sett.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 28.04.09 Bréf: 3 Staður: Reykjavík
|
Steinþór er reyndar búinn að gefa það út að hann er hættur, vegna meiðsla, þannig að við höfum hann ekki lengur.
Ég væri til í að sjá nýtt leikkerfi næsta sumar, 3-5-2 kannski, hlaða fleiri gæjum inná miðjuna og ná yfirráðum þar, þar sem við vorum kafærðir allt síðasta sumar.
|
|
|
Guest |