Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Skemmtikvöld Mfl KK. Vals Valkostir
HaraldurBjörnsson
Skráð: 17. February 2010 16:00
Staða: Nýliði

Skráði sig: 17.02.10
Bréf: 0
Staður: Hlíðarendi
Jæja frábæru Valsmenn og meyjar nær og fjær núna er komið að því. Þann 20 Febrúar verður Skemmtikvöld Mfl Vals haldið með pompi og prakt í Hátíðarsal Valsmanna að Hlíðarenda.

Dagskráin verður frábær eins og Valsmönnum er einum lagið þ.á.m.:

- Sigurvegari ValsIdolsins stígur á stokk.

- Baddi og Valdi úr Jeff Who?

- Stefán Hilmarsson og ásamt Bjarka Sig, Berki og Daða Birgis úr Monotown (áður B-Sig sem er Valsmönnum góðkunnug.)

- Freyr Eyjólfsson, af mörgum talinn einn fyndnasti maður Íslands verður
ræðumaður kvöldsins.

Jakob Frímann Magnússon stígur á stokk ásamt Frey Eyjólfs

- Dýrindis Pinnamatur og annað góðgæti verður á boðstólnum fyrir hungraða og allt áfengi selt á staðnum.

- Happdrætti verður á staðnum og getum við lofað rosalegum vinningum sem verða hlægilega margir.

-Veislustjóri verður síðan hinn síungi, undurfallegi og gríðarlega skemmtilegi, það er aðeins einn Sigurbjörn Hreiðarsson.

Miðaverði er stillt í hóf aðeins 3500 kr. og húsið opnar stundvíslega klukkan 19.00 með fordrykk og píanóspili áður en dagskráin hefst.

Miða og borðapantanir í síma: 7722-792 Haraldur.
og einnig í gegnum tölvupóst á netfangið: knattspyrnufelagidvalur@gmail.com

Einungis 300 miðar verða í boði á þetta frábæra kvöld svo fyrstir koma fyrstir fá.

Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.