Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

97 titlar frá 1911 Valkostir
Dr Phillip
Skráð: 14. February 2010 23:22
Staða: Nýliði

Skráði sig: 09.08.09
Bréf: 3
Mig langar bara að minna á hvaða lið er sigursælasta lið Íslands í boltagreinum. Ef við leggum saman Íslandsmeistaratitla og bikarmeistaratitla karla og kvenna í fótbolta, handbolta og körfubolta er staðan þessi:

Valur: 97
KR: 95
Fram: 65
Keflavík: 46
ÍA: 34
Haukar: 34
FH: 30
Víkingur: 24
Breiðablik: 24
ÍBV: 16
Stjarnarn: 11

Þessi tölfræði er tekin saman af ksi.is, hsi.is og kki.is

Við Valsmenn erum í dauðafæri að ná 100 titla markinu á árinu. Ef ekki strax í vetur þá í sumar. Við vorum, erum og verðum alltaf stórveldið í íslenskum boltaíþróttum.

Áfram Valur!!!

p-sæm
Skráð: 18. February 2010 01:24

Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 16.04.09
Bréf: 122
Staður: Reykjavík
Þetta finnst mér algjör snilld! Verðum komnir með 100 titla þegar Valur verður 100 ára. Djös brakandi snilld er það!




Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
skokkari
Skráð: 18. February 2010 21:44
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 27.02.09
Bréf: 33
Það yrði stórkostlegt að geta haldið upp á 100 ára afmælið með 100 titla í farteskinu og nú er bara að mæta á leiki og hvetja, fullt af úrslitarimmum framundan og svo bíður sumarið handan við hornið með kvennaliðið í fótbolta sem verið hefur áskrifandi að titlum undanfarið og maður á ekki von á öðru en það haldi áfram.

Að öðru, ég er búinn að halda utan um excel-töflu í einhvern tíma þar sem ég bæti inn titlum eftir því sem þeir koma inn. Annar hvor okkar er ónækvæmur eða báðir :). Ég fæ út að Fram hafi unnið 66 stóra titla, Ég fæ út að Keflavík hafi unnið 44 titla, FH 34 og Stjarnan 15.

En Valur og KR bera höfuð og herðar yfir önnur lið í þessari talningu og við verðum að vera á undan litla bróður Vestur í bæ að rjúfa 100 titla múrinn. Svona talning gerir FH-montið smá broslegt.


Áfram Valur
Dr Phillip
Skráð: 20. February 2010 14:23
Staða: Nýliði

Skráði sig: 09.08.09
Bréf: 3
Þessi útreikningur gæti verið ónákvæmur. Var aðallega að tékka á Val og KR. Síðan taldi maður þetta bara lauslega saman með hin liðin.
skokkari
Skráð: 20. February 2010 19:13
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 27.02.09
Bréf: 33
og í dag bættu Haukar við sig titli þannig að þeir eru komnir í 35 sem gerir þá að stóra bróðir í Hafnarfirðinum.

Áfram Valur
passi97
Skráð: 20. February 2010 19:51
Staða: Nýliði

Skráði sig: 20.02.10
Bréf: 1
spurning hvort þetta sé alveg marktækt. Valur, KR, og fleiri félög hafa körfu framyfir önnur félög. Víkingur hefur t.d blak sem ekki er talið með. FH hefur frjálsar sem ekki er talið með. spurning um að telja tilta í greinum sem allir eru eru með. Í þessu tilfelli bara handb og fótbolta. ekki að gera lítið úr þessum titlum.
Dr Phillip
Skráð: 21. February 2010 21:59
Staða: Nýliði

Skráði sig: 09.08.09
Bréf: 3
Það er ef til vill rétt hjá þér passi97. En pælingin á bak við þessa tölfræði eru vinsælu boltagreinarnar þrjár, fóbó, karfa og handbó. En eins og ég segi var aðalhugsunun að skoða muninn á Val og KR í þessum íþróttum þar sem að Vesturbæingar vilja meina að þeir séu sigursælasta lið á Íslandi.
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.