Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Úr bikardraumi í bikarmartröð! Valkostir
Spekulant
Skráð: 27. February 2010 17:28
Staða: Nýliði

Skráði sig: 11.05.09
Bréf: 2
Það var ekki gæfuleg sjón að sjá karlaleikinn í dag þar sem "sókn" okkar var einhver sú aumkunarverðasta sem ég hef séð og ekki bjóst ég við að það versta gæti versnað en það verður bara að teljast tíðindi ef við skorum 20 mörk! Veit ekki alveg hvað er að gerast en við eigum ekki mikið erindi í úrslitakeppnina með þessari sóknarmennsku! Eðlilegt að menn séu pirraðir yfir þessari hörmung!
gg199
Skráð: 27. February 2010 18:15
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 30.04.09
Bréf: 7
í raun er þetta í samræmi við framgöngu liðsins í vetur. Vantar nýtt blóð og neista í þetta og þá er auðvitað "klassískt" að skipta um þjálfara! Óskar á ekki eftir að ná lengra með þetta lið og ég myndi vilja sjá Júlíus Jónasson taka við þessu ;)
Egerfan
Skráð: 27. February 2010 20:37
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 39
Staður: Rvk
Já þetta var ansi þunglamalegt í dag og engu líkara en að Valsliðin væru bara sátt við að ná í úslitaleikinn.
Kvennaleikurinn byrjaði ömurlega og virtist sem engin í liðinu treysti ser til að leiða vagninn, voru bara því miður ekki tilbúnar í verkefnið. Voru hins vegar ansi óheppnar að ná ekki að far í framlengingu. Annað við stelpurnar þær verða að hirða þessa bolta sem Begga er að verja í markinu.
Strákarnir voru ekki allveg að átta sig á leiknum og voru að láta dómana pirra sig um og of, og tóku of mörg ótímabær skot, ætluðu greinilega að skora 2-3 mörk í hverri sókn. Birkir át hins vegar mikilvæga bolta og sem fyrr þá pirrast menn við það og skjóta svo bara í fangið á honum.
Nú er bara að rífa sig upp af raskatinu og spýta í lófana og klára Íslandsmótið og taka dollurnar sem eru í boði þar.

Áfram Valur
Skaginn
Skráð: 27. February 2010 22:50
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 114
Staður: reykjavík
Já þetta gekk ansi illa í dag og þó. Það eru ljósir punktar og þá sérstaklega í kvennaleiknum en þar byrjuðu stelpurnar ansi illa en unnu sig vel inn í leikinn og lokinn og það þarf ansi gott lið til þess sérstaklega gegn Fram. Framstelpur voru samt betri lengst um og í raun hefðu það væri hálfgert rán ef Valur hefði unnið. Stelpurnar eru samt á góðu róli og munu eflaust selja dýrt einsog í vetur og tapa titila eða bæði deildar og íslandsmeistar. Með strákana þá vantar einhvern neista því strákarnir hafa ekki nógu mikla trú á þessu. Maður verður samt að hugsa til þess að Siffi, Baldvin, Siggi Eggerts, Ernir, og Fannar eru allir nýbúnir að vera meiddir og eru enn að ná sér að fullu. Þetta eru allt leikmenn sem eru stoðir liðsins ásamt Arnóri, Orra, og Ingvari ásamt auðvitað Hlyni. Í dag voru strákarnir að spila ágætlega þar til í lokin þegar Haukamenn settu 9 mörk gegn 1 marki Valsmanna. Auðvitað skiptir litlu máli hvað ósigurinn er stór ef hann er að verða að veruleika á annað borð en það vantaði engu að síður allan neista í þetta. Óskar á að klára tímabilið ásamt Heimi og svo sjá menn til í þessu.
Ef við komumst ekki í úrslitaviðureignina einsog í fyrra þá er óvitaust að Óskar víkji en hver á að taka við? Ólafur Stefánsson sem spilandi þjálfari en annars eru fáir alvöru þjálfarar sem koma upp í hugann í fljótu bragði
skokkari
Skráð: 27. February 2010 23:47
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 27.02.09
Bréf: 16
Báðir leikirnir í dag ullu mér vonbrigðum. Ég átti svo sem ekki von á sigri karlaliðsins en kvennaleikurinn fór illa. Það jákvæða var þó að stelpurnar gefast aldrei upp, breyttu um leikaðferð í vörninni þegar allt virtist glatað og voru hársbreidd frá því að taka þetta þrátt fyrir að spila illa í 40-50 mínútur fyrir 1-2 kafla þar sem hlutirnir voru að ganga upp. Stöngin inn, stöngin út var það sem skildi liðin að í dag þegar upp var staðið. Valsliðið er með betri markmann og þær eru með betri vörn en Framliðið þegar vörnin er að spila af eðlilegum styrk. Ef þær mæta Fram í lokarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn þá geta þær tekið fullt með sér úr þessum leik sérstaklega lokamínúturnar.

Karlaliðið var einfaldlega að spila við betra lið í dag og það var alltaf á brattann að sækja. Í mínum huga er málið einfaldlega það að Haukarnir eru betri á öllum sviðum handboltans í augnablikinu. Betri vörn, betri sókn og síðast en ekki síst betri markvarsla. Það jákvæða var að Valsvörninni gekk vel að halda Sigurbergi niðri lengst af og að maður er farinn að sjá sterkustu uppstillinguna hjá Val og sjúkralistakapparnir eru að komast í gang. Ef það verður stígandi í þessu samhliða því að menn komast í betri leikæfingu þá held ég að allt geti gerst í úrslitakeppninni en ég geng út frá því sem vísu að Valur verði þar.

Áfram Valur
Rumsfeld
Skráð: 28. February 2010 09:33
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 28.10.08
Bréf: 15
Staður: Kópavogur
Vonbrigði með báða leikina - EN nú er að sjá hverning menn bregðast við þessu.

Framarar og Haukar til hamingju með bikarinn

Áfram Valur
Gastone
Skráð: 28. February 2010 12:06
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 18.10.08
Bréf: 17
Staður: Mosó
gg199

Þú ert búin að væla um að skipta um þjálfara í allan vetur!! 'Oskar og Heimir voru að skila liðinu í úrslitaleik 3 ár í röð í bikarnum , við erum í 3 sæti í deildinni þrátt fyrir gríðarlegar meiðsla hrakningar í vetur, Baldvin, Ernir, Siggi E, Fannar, Sigfús Páll og fleiri hafa verið í meiðlsum og hópurinn ekki breiður sem dæmi þá hafa 17 ára guttar verið að fá sénsinn...

Óskar fer mjög líklega að þjálfa erlendis fljótlega og kæmi ekki á óvart að það yrði í vor......

Leyfum þessu teymi að þjálfa í friði og það er aldrei að vita nema að dolla verði í húsi í vor.... það að vera ræða um að nýjan þjálfara finnst mér vera út í hött...... Óskar Bjarni er eins og ég hef áður sagt einn albesti þjálfari landsins, það er ekki að ástæðu lausu að Guðmundur landsliðsþjálfari valdi hann sér við hlið, árangurinn talar sínu máli.....

Vona að þú farir að hætta þessu bulli hérna á spjallinu .......

Áfram Valur
gg199
Skráð: 28. February 2010 13:20
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 30.04.09
Bréf: 7
ekki þennan tón hér Gastone! Það hlýtur að mega velta hlutum fyrir og þar með vangaveltum um um þjálfarskipti :) Það er enginn að efast um hvað Óskar getur, þjálfarar hætta alltaf fyrir rest með lið og oft þannig að þeir hafi gert góða hluti en kominn tími á nýtt blóð, þannig er það bara í boltaíþróttum. Valur er með lið á pappírunum sem á að geta mun meira og þar finnst mér mjög áberandi að sumir leikmenn er án þessu sjálftrausts sem þeir höfðu fyrir td. 2 árum síðan.

Margir þjálfarar hafi farið frá liðum þó þeir séu klassaþjálfarar, og þessi rök þín að Óskar hafi verið við hlið Guðmundar eru frekar veik, þar gegnir hann ákveðnu hlutverki í gríðarlegu sterku liði en hjá Val er hann maður sem á að standa f. hlutunum frá A til Ö.

Það hefur virst sem það megi ekki gagnrýna suma menn hér á spjallinu en ég vil minna á að klúbbur/stuðningsmenn sem horfa ekki gagnrýnum hug á hlutina nær ekki árangri. Það hvar Valur er statt í deildinni er ekki það sem ég er að spá í þegar ég skrifa hér, ég er meira að horfa á frammistöðuna á vellinum, andlaust lið gjörsamlega vantar neista og áhuga.

En eigðu góðan sunnudag Gastone og vertu kurteis við fólkið í kringum þig ;)
Skaginn
Skráð: 28. February 2010 20:39
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 114
Staður: reykjavík
Já ég tek undir með Gastone að það er rugl að vera að gagnrýna Óskar út í eitt. Sjálfstraustið er alveg til staðar en ef menn eru að meiðast og eru jafnvel án æfingar í langan tíma þá minnkar krafturinn. Á móti eru ákveðnir leikmenn sem geta miklu meira en þeir gera í dag. Af öðru þá finnst mér að Valur sem er stórklúbbur eigi að reyna að fá fleiri leikmenn til sín eða t.d Siffi, Elvar, og nokkrir aðrir eru leikmenn sem mörg lið væru alveg til í að fá til sín. Það vantar líka leikstjórnana í liðið því þótt Fannar séu hörkuleikmaður þá á hann að spila í Horninu. Með Arnór-Sigga-Ernir-Orra f. Innan og Fannar í hinu horninu þá held ég að Valur sé fær í flestan sjó. Annars er vandamálið einsog oft áður í stöðu skyttu því Valur hefur einfaldlega ekki haft sterka skyttu einsog Haukar hafa í Sigurbergi sem dæmi. Annars er ég mjög bjartsýnn á að Valur eigi eftir að fara í úrslit og hef menn hafa hungur þá vinna þeir titilinn.
Gastone
Skráð: 1. March 2010 11:42
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 18.10.08
Bréf: 17
Staður: Mosó
gg199 þu ert búin að vera röflandi um þjálfaraskipti síðan í haust, og tel ég mig nú vita hver þú ert og ef svo er þá vildiru fá Viggó eða Geira til að þjálfa liðið , núna Júlli.... Ég hef aldrei verið hrifin af þjálfaraskiptum á miðju tímabili ekki nema liðið sé á bullandi fallbáráttu og allt annað sé fullreynt, og persónulega hef ég ekkert á móti þessum eðalmönnum allavega Geira og Júlla.

Það var ákveðið í haust eða seinasta vor að Óskar stýrði skúttunni áfram eða skuttogaranum :) sem er mjög eðlilegt og finnst mér það hafa verið hárrétt ákvörðun, liðið er í 3. sæti í deildinni og á fínan séns að vera í 2 sætinu áður en deildin er á enda í vor.

svo vil ég minnast á þegar þú byrjaðir í haust að vilja Óskar burt þá tapaði liðið ekki leik í 7-8 leikjum í röð....

Hafðu það gott XXX og vegni þér sem allra best .... En leyfðu manninum að þjálfa liðið í friði en hefur lagt allt sitt undir fyrir félagið og rúmlega það, svo má kannski meta stöðuna í vor.



Áfram Valur
Ási Sveinss
Skráð: 1. March 2010 11:58
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 48
Staður: Reykjavík
Hörkuleikur þangað til að Haukarnir gengu á lagið og stungu af. Svo sem óþarfi að beina svekkelsinu að Óskari. Eitt sem ég skildi samt ekki alveg og það var af hverju Ingvar fékk ekki að vera áfram í markinu eftir að hann varði vítið og svo frákastið. Hlynur var búinn að vera mjög góður en það var búið að vera soldill dauður kafli þarna á undan þannig að það hefði verið allt í lagi að leyfa honum að halda áfram.

ÁFRAM VALUR !!
gg199
Skráð: 2. March 2010 09:04
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 30.04.09
Bréf: 7
:) Gastone ég held að fyrir þér sé ég bara gg199 og meira hefurðu ekki hugmynd um.
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.