|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Fyrir þá örfáu sem ekki komust í Egilshöll í gær til að sjá okkar menn mæta Fjölni, þá datt mér í hug að hripa nokkrar línur um leikinn.
Mér leist ekkert svakalega vel á blikuna í fyrri hálfleik, þar sem menn virtust oft á tíðum vera að spila saman í fyrsta skipti. Haukur Páll miðjumaður setti mark eftir frekar klaufalega tilburði í Fjölnisvörninni, þar sem Baldur var búinn að spila þá sundur og saman.
Í síðari hálfleik fannst mér svo allt allt annað að sjá til liðsins. Stefán í bakverðinum fór að spila eins og maður hefur séð í síðustu leikjum, agressívur alveg upp kantinn og gaf ekki tommu eftir. Viktor mjög hungraður frammi og olli varnarmönnum Fjölnis töluverðum vanda, Haukur Páll og Bjössi á miðjunni mjög fínir.
Leikurinn fór 3-0 fyrir val, þar sem Haukur Páll skoraði í fyrri hálfleik, Þórir með flott mark fyrir utan teig og svo Rúnar ef ég sá rétt.
Ef Valsmenn halda áfram að spila á svipuðum nótum og í síðari hálfleik í gær, þá er þetta lið á réttri leið! Minn maður leiksins er Viktor.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 27 Staður: 101
|
Held að málið sé að fá left back, svo framherja, hvernig er standið á Marel, er hann einhvað að æfa?
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 15
|
Marel er að æfa á fullu síðast þegar ég vissi ... öllu er haldið opnu þar.
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 21.08.09 Bréf: 60 Staður: Rvk
|
Heyrði talað um það að það væri hér á landi breti sem hefur verið á mála hjá Bolton síðustu 5 ár og er hans uppáhaldsstaða bakvörður , getur einnig leikið á miðsvæði. Hann mun leika æafingaleik á laugardaginn að mer skillst. Spurning til einhvers sem veit meira um málið, geturu upplýst um leikinn stð og stund ?? Væri gaman að koma og skoða.
Áfram Valur
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 6 Staður: RKV
|
get staðfest það, hann var mættur og fylgdist með leiknum gegn Fjölni á mánudagskvöldið.
Er víst búinn að spila með Bolton reserves í nokkur ár, verður gaman að sjá til hans og spennandi hvort að hann verði signaður af okkur Valsmönnum.
Amk er gaman að sjá að Bolton tengingin er ekki dauð úr öllum æðum........Dean Holden var vinsæll fengur á sínum tíma
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Sjá hér, æfingaleikur við Völsunga á helginni. Valur - Völsungur laugardagur 6. mars kl. 13:00 Egilshöll.
|
|
|
Guest |