Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Stuðarar??? Valkostir
falcon
Skráð: 21. May 2010 20:56
Staða: Nýliði

Skráði sig: 06.05.09
Bréf: 1
Skipta má stuðningsmönnum íslenskra knattspyrnuliða gróflega í tvennt. Annars vegar þeir sem mynda kjarna, semja sérstaka söngva og leitast við að halda uppi þéttum stuðningi sama hvernig gengur inni á vellinum. Hins vegar þeir sem sitja og taka undir þegar vel gengur en hafa sig hæga þess á milli.
Fálkinn tilheyrir síðari hópnum ásamt miklum meirihluta og þó svo að hann sé ekki virkur í hvatningum er hann áhugasamur um leikinn og hefur gaman af skipulögðum stuðningsmannahópum.
Sú var tíðin að Stuðarar voru skemmtileg stuðningsmannasveit sem byggð var utan um sterkan kjarna, kjarna sem Baldur Trommari hélt saman með skemmtilegu bongóspili. Nú ber svo við að þessi hópur virðist vera heillum horfin, allt frumkvæði, öll frumlegheit eru horfin og leiðtoga vantar sárlega upp í stúku. Því er spurt: Eru Stuðarar ekki lengur til sem skipulagður hópur? Hvar er hinn bráðfríski hópur ungra stuðningsmanna sem setti svip sinn á úrslitaleiki í handboltanum?
Gaman væri að fá svör og jafnvel umræður um málefni stuðningsmanna. Fálkinn hvetur þá sem kunna að svara þessu innleggi til að vera málefnalegir.

Áfram Valur
Fálkinn.

Skaginn
Skráð: 22. May 2010 14:38
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Valur er nokkuð stór klúbbur, Með mikla hefð en á móti eru stuðningsmenn Vals ekki mjög margir. Það mæta oft margir áhorfendur en stuðningurin er ekkert mjög mikill. Eflaust spilar inn í að kjarni stuðningsmanna Vals t.d í handboltanum eru flestir miðaldra menn eða Gísli og co. Þeir eru mjög góðir en krafturinn er kannski ekki jafn mikill og þegar yngri menn standa í stuðninginum. Kannski er málið að stuðningsmenn Vals hafi stuðningsfund og það verði myndaður kjarni stuðningsmanna sem mæta sama hvort það sé rigning eða sól. Valur myndi svo kannski gera enn betur við þennan kjarna
tómatsósa
Skráð: 22. May 2010 14:58
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 28.04.09
Bréf: 8
Staður: Reykjavík
Þarf ekki Valur að falla og koma upp aftur til að þetta komist í gang aftur? Pæling. Nei það hlýtur að vera hægt að rífa þetta upp án þess að falla, betra gengi liðsins myndi hjálpa til við það náttúrulega. En er þetta ekki svona í öllum klúbbum í dag að stuðningurinn er bara lala? Hvar er þessi mafía? Menn auglýsa eftir miðjunni í vesturbænum núna. Geiramenn?
Eina liðið sem er súper stuðning núna er Selfoss. En þetta er allt nýtt fyrir þeim þannig að það er skiljanlegt, þetta er alltaf skemmtilegast fyrst.
Loftur
Skráð: 23. May 2010 00:18
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 27
Staður: 101
Mætingin á völlin í sumar hefur verið ansi góð, fyrsti leikurinn voru tæp 2000 þús manns, á móti ÍBV voru um 1200 en það telst mjög gott enda ÍBV með nánast enga áhorfendur, á móti Breiðablik var öruglega einhvað yfir 1000 manns og aftur Valsmenn í miklum meirihluta. Málið er að maður fær á tilfinninguna að menn þurfi að hópa sig betur saman, oft á tíðum virðast þetta vera nokkrir aðskildir hópar að styðja liðið, menn verða að koma sér saman allir saman í einum hóp og styðja liðið sameinaðir.
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.