Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Sorglegt var það. Valkostir
Egerfan
Skráð: 20. May 2010 21:49
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Jæja já. Hvað er að gerast 2 stig eftir 3 leiki og það alla á heimavelli. Áttum klárlega að vera yfir eftir fyrri hálfleik, likar fá eina sókn og skora úr henni. Ég spyr hvar var okkar hægfara vörn ennþá á íbv leiknum. Komum aldrei í seinni hálfleik, heppnir að tapa ekki stærra, en reyndar hefði annað mark blika aldrei átt að koma því Ingvar steig greinilega skref út úr teignum og hætti svo við að kasta og bakkaði inn í teig aftur. en svona er þetta helv......
Koma svo strákar rífum okkur upp af raskatinu og skiptum um gír uppá við, þetta á við um okkur stuðningsmenn líka.

Áfram Valur
bjossi
Skráð: 20. May 2010 22:11
Staða: Nýliði

Skráði sig: 19.05.09
Bréf: 4
Við sökkum, punktur.

Múrsteinsveggur
Skaginn
Skráð: 20. May 2010 23:55
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
rosalega hlýtur allt að vera sorglegt í lífi þínu bjossi þessa dagana. Valsmenn voru sterkir fyrstu 20 mínúturnar en svo vantar einhvern neista í þetta hjá þeim Alfreð var svakalegur í kvöld. Grindavík næst og það úti. Ef Valur nær ekki sigri eða jafntefli gegn þeim þá er mikið að.
Loftur
Skráð: 21. May 2010 00:30
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 27
Staður: 101
Liðið var fínt svona til að byrja með, en akkuru vorum við svona lengi að skipta inná þegar Haukur meiðist ?. Vonandi er Haukur Páll ekki illa meiddur því mér sýnist hann vera okkar besti maður. Vörnin var slök, okkur virðist líka vanta slúttara, það var munurinn á liðunum í kvöld.
Fletcher
Skráð: 21. May 2010 07:03
Staða: Nýliði

Skráði sig: 22.11.09
Bréf: 0
Mér fannst þetta helviti slakt vægast sagt. Það er ekki nog að vera að skapa ser eithvað menn verða að skora. Afhverju er ekki okkar markahæðsti leikmaður a undirbuningstimabilinu ekki buinn að byrja inn á????? Samkvæmt minni tölfræði sem er nu kannski ekki 100% þá var viktor unnar markahæðstur á undirbuningstímabilinu og hann hefur varla fengið að spila nema einhverjar 10 min i 2 leikjum. Nærð ekkert að gera á þeim. Reyndar hefur liðið ekki unnið leik eftir að hann datt ut ur liðinu nema þrott en hann kom þá reynda inn i stöðunni 0-0 og við unnum 1-0. Þetta finnst mér mjög skrytið. Danni köning er buinn að vera finn og buinn að spila ágætlega en við erum samt ekki að skora. Við spilum einum fleiri a moti IBV en samt náum við ekki að vinna þann leik. Mér finnst við þurfa að sja breytingar á liðinu ég vill fá jeffs út og jafnvel Rúnar lika og mer finnst habbo og baldur ekki bunir að vera neitt spes. Mer finnst að þjalfarinn ætii að breyta um leikkerfi og spila 4-4-2 og reyna að sækja eithvað i leikjum og spila með tvo frammi.
bjossi
Skráð: 21. May 2010 09:41
Staða: Nýliði

Skráði sig: 19.05.09
Bréf: 4
Veistu það Skaginn, ég er bara sáttur með lífið og tilveruna eins og er. Það er þetta Valslið sem ég svo langt frá því að vera sáttur við. Tvö stig eftir þrjá heimaleiki er fyrir neðan allar hellur. Leikur liðsins hægur og fyrirsjáanlegur. Það hefðu átt að vera gerðar fleiri breytingar eftir leikinn á móti ÍBV, en eina breytingin var sú að Habbó kom inn fyrir Baldur.

Fyrst að við erum að spila með 3 miðjumenn, þá verðum við að fara breyta einhverju þar. Fyrsta tillaga að Ian Jeffs færi á bekkinn.
Egerfan
Skráð: 21. May 2010 11:41
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Persónulega fannst mér Jeffs besti maður vallarins í fyrri hálfleik. Hann var mikið með boltan og fann nánast alltaf lausan mann. Svo reyndar sást hann ekki í seinni, sem og fleiri sem inná vellinum voru.

Baldur var eitthvað tæpur og treysti sér ekki í heilan leik.

Áfram Valur
bjossi
Skráð: 21. May 2010 12:06
Staða: Nýliði

Skráði sig: 19.05.09
Bréf: 4
Egerfan skrifaði:
Persónulega fannst mér Jeffs besti maður vallarins í fyrri hálfleik. Hann var mikið með boltan og fann nánast alltaf lausan mann. Svo reyndar sást hann ekki í seinni, sem og fleiri sem inná vellinum voru.

Áfram Valur


Eftir á að hyggja gæti verið sterkari leikur að kippa Rúnari út og setja meira sóknarþenkjandi mann á miðjuna til fulltingis við hann Jeffs.

Eitthvað verður þó allavega að gera! ;)
jhv
Skráð: 21. May 2010 12:34
Staða: Nýliði

Skráði sig: 11.05.10
Bréf: 1
Staður: reykjavik
Persónulega fannst mér Jeffs fínn í gær. dróg aðeins af honum í seinni
vandamálið sýnist mér vera í þessum tveimur í miðju varnarinnar.
þeir eru bara ekki að smella saman. Vorum að pæla hvort hvorugur þeirra væri
nægilega mikill "leader". Tímabilin sem þeir voru bestir höfðu þeir
reynslumikla menn með sér. Atli hafði Barry og Reynir hafði Auðunn. Spurning
hvort þeir þurfi að hafa einhvern með sér sem getur stýrt vörninni betur..svo magnast þessi
klaufaskapur á þeim þar sem þeir eru óöryggir með mannin fyrir aftan sig.
Siggi CL
Skráð: 21. May 2010 12:41
Staða: Nýliði

Skráði sig: 13.05.10
Bréf: 1
Fyrri hálfleikur var mjög góður af okkar hálfu. Klaufalegt (eins og í eyjaleiknum) að skora ekki þá. En tók einhver eftir því að þegar blikar ´skoruðu seinna markið höfðu þeir vart komist fram yfir miðju. Þetta var fyrsta skotið þeirra í seinni hálfleik. Það er margt jákvætt í liðinu en Viktor Unnar þarf að spila meira. Svo er það alveg rétt að skarðið sem Barry skildi eftir sig hefur aldrei verið fyllt almennilega. Þessu þarf að breyta og við þurfum tilfinnanlega sterkan varnarmann.
finnur
Skráð: 21. May 2010 13:20
Staða: Nýliði

Skráði sig: 11.05.09
Bréf: 0
Þetta kemur allt hjá liðinu held ég. Annars væri ég til í að sjá Balla Qta eða Bjössa Hreiðars í vörninni. Þeir verða allavega að spila í þessu liði. Besti maður sumarsins er Haukur Páll og vonandi verður hann ekki frá lengi.
Drogba
Skráð: 21. May 2010 22:38
Staða: Nýliði

Skráði sig: 12.05.10
Bréf: 0
Staður: London
hefur ekki KR-istinn verið að dæma alla þessa leiki eða eru þið bara svona svakalega lélegir? og eftir að hyggja var þá rétt að reka Willum?????
jhv
Skráð: 22. May 2010 08:00
Staða: Nýliði

Skráði sig: 11.05.10
Bréf: 1
Staður: reykjavik
Við Valsarar þurfum ekki að kenna dómurunum um sæipustu tvo leiki okkar við klúðruðum þeim sjálfir...þó svo þeir hafi ekkert
sýnt snildar takta í blikaleiknum. Hvað Willum snertir er hann bara 3 ára þjálfari (virðist vera). Hann kemur inn í klúbba með mikinn aga og kraft svo virðist þessi agi og kraftur breytast í að vera þrúgandi á allt og alla. gerðist í kr og Haukum..það þarf annaðhvort að skipta á honum eða öllu liðinnu..við höfum reynt það síðar nefnda....... ekki gengið vel.
Gulli er að gera góða hluti....svoldið Láka yfirbragð á liðinu núna...spila vel en virðast ekki geta skorað..vonandi breytist það fljótt

eins langi og kr-ingurinn dæmir ekki hjá okkur..
Ási Sveinss
Skráð: 22. May 2010 15:23
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Skil ekki hvernig það myndi þyngja sóknina með að breyta í 442? Erum að spila á 2 framliggjandi könturum og erum því að sækja á 3 mönnum. Svo hefur Jeffs líka verið að liggja framarlega á miðjunni og sækir hátt. Held að það ætti bara að halda áfram á sama hátt og í fyrstu leikjunum því að þetta hefur gengið ágætlega þrátt fyrir að stigin mættu vera fleiri.

ÁFRAM VALUR !!
jhv
Skráð: 22. May 2010 16:15
Staða: Nýliði

Skráði sig: 11.05.10
Bréf: 1
Staður: reykjavik
samkvæmt tölfræði í öðruhvoru blaðanna eiga Valsmenn
flest skot á ramman í deildinni það sem af er.
þetta hlítur að fara detta inn hjá okkur.

sóknarþenkjandi 433 er mun betra kerfi en 442. svo detta men niður 'i 451 þegar varist er.
kallar á að hafa snögga og hraða sóknar menn og öflugan topp til að halda boltanum í smá stund meðan miðjan kemur hratt með. sýnist við hafa það. Matti, Habbó, Arnar og Danni eru snöggir og Danni getur haldið boltanum vel með bakið í markið.
Svo er Viktor snöggur líka.

Vandamál okkar núna er 4 í vörninni eru ekki að smella saman. sér í lægi miðjan..stórlega vantar mann til að stjórna
gæti gengið með markmann sem er öruggur en það á ekki við hann Kjartan okkar...
eins og hann sér með 9 tommu nagla undir skónum fremur en takka.
King
Skráð: 24. May 2010 10:52
Staða: Nýliði

Skráði sig: 26.05.09
Bréf: 0
Þetta er skelfing

Er einhver hérna sem finnst Hafþór góður í fótbolta? Ég hef sjaldan séð jafn lélegan fótbolta mann og hvað er hann að gera inná?

Við höfum átt frábæran fyrsta hálftíma í þrem leikjum í röð en síðan ömurlegar 60 mínútur það er eitthvað að,það er eitthvað að að þjálfari setur fyrsta varamanninn inná á 70 mínútu 0-2 undir á heimavelli og ekkert í gangi.Það þurfti að breyta í hálfleik ekki seinna. og af hverju þegar við vorum með undirtökin á leiknum setur hann varnarsinnaðan leikmann inná

ég skil þetta ekki
Fletcher
Skráð: 24. May 2010 11:22
Staða: Nýliði

Skráði sig: 22.11.09
Bréf: 0
Samála King hérna. Verðum að sja bnreytingar a liðinu fyrir grindarvikur leikinn.
Tóti
Skráð: 24. May 2010 17:00
Staða: Nýliði

Skráði sig: 22.07.09
Bréf: 0
King! Það mætti halda að þú hefðir ekki verið á leiknum slíkt er ruglið í þér. Fyrsti varamaðurinn inná á 70mín? Var ekki skipt þegar Haukur meiddist? Var leikurinn ekki í járnum þangað til Blikarnir skoruðu annað markið á 70mín? Og þá var einmitt tími til að skipta. Og síðan hvenær er Sigurbjörn varnarsinnaður leikmaður þó hann hafi færst aftar á völlinn með árunum? Þú verður að vera betri stuðningsmaður en þetta King.
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.