|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 21.08.09 Bréf: 60 Staður: Rvk
|
Heyrði því fleygt fram að Siggi Eggerts okkar eldsnöggi leikmaður væri að fara að söðla um og væri á leið í Gróttu. sem sagt í 1.deildina. Kannski að einhver geti staðfest þetta eða sagt okkur frá að þetta sé ekki rétt.
Hvað er Júlíus með í plönunum ? Hver eru markmið hans fyrir komandi tímabil ?
Ánæjulegt yrði að fá einhverjar fréttir frá stjórninni.
Áfram Valur
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 28.10.08 Bréf: 31 Staður: Kópavogur
|
Sigurður Eggertsson er farinn til Gróttu - staðfest
Hvaða markmið hefur Júlli - ef hans markmið er ekki að vinna alla leiki og allar dollur sem í boði eru þá tel ég að það eigi að segja honum upp tafarlaust -
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Það er víst að Júlli ætlar að breyta til enda eru ekki færri en 4 ,,fastamenn'' eða Ingvar, Arnór, Fannar, og Siggi og tveir leikmenn sem hafa komið af bekknum og styrkt hópinn eða Fúsi og Siffi. Nú er Finnur Ingi kominn sem og Sturla, Anton er í viðræðum sem og Ingimundur eflaust. Ég held að Júlli ætli að nota 2 flokkinn meira en áður á bekknum. Annars einsog hópurinn er í dag þá þarf að styrkja hann enda eru 2-3 leikmenn að koma upp úr meiðslum og hafa auk þess verið meira og minna meiddir í nokkur ár.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 03.05.10 Bréf: 8 Staður: Hlíðarendi
|
Anton er ekki í viðræðum, hann á ár eftir af samningi sínum við Val þannig að það er löngu klárt að hann verði áfram á næsta tímabili. Ef hann er í viðræðum þá er það bara til að framlengja samninginn.
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Anton er með samning við Val en sá samningur er lélegur og haft er eftir honum að hann vilji betri samning og ef Valur gerir ekki verðugan samning við hann þá finnst mér ekkert af því þó hann fari annað. Annars held ég að Anton verði enda með Valsblóð
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 21.08.09 Bréf: 60 Staður: Rvk
|
Siggi hefur ekki verið að æfa sem skildi undanfarin misseri og held ég að hann komist ekki upp með það að vera að æfa lítið og heimta svo að spila. Sigga fannst sjálfum tími kominn á breytingar og er ég mest anægður með að hann er ekki í efstu deild. Hefði samt viljað sjá hann heilan og í Valsbúningnum.
Siggi gangi þér vel í Gróttu og takk fyrir þitt framlag undanfarin ár.
Áfram Valur
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 22 Staður: reykjavík
|
[quote=Rumsfeld]Sigurður Eggertsson er farinn til Gróttu - staðfest
Hvaða markmið hefur Júlli - ef hans markmið er ekki að vinna alla leiki og allar dollur sem í boði eru þá tel ég að það eigi að segja honum upp tafarlaust
ég held að menn ættu að lesa og hlusta á viðtalið við sturlu eins að fylgjast með meistarafloks æfingum til að sjá hver markmiðinn hans júlla eru
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
gin hittir naglann á höfuðið. Strákarnir tala sjálfir um að æfingaprógrammið séi stíft. Sýnist það vera nokkuð ljóst að Júlli ætli sér að setja sitt merki á liðið og er að koma þarna inn með mikinn metnað. Siggi er að fara í 1. deildina líklegast vegna þess að líkaminn er löngu farinn að gefa eftir hjá honum og hann vill kannski spila meira í aðeins minna tempói. Þarf enginn að efast um metnað eða dugnað hjá Sigga.
ÁFRAM VALUR !!
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Já strákarnir eru að æfa á fullu og eflaust koma strákarnir í mjög sterku formi til leiks og það verða bæði ungir og hungraðir leikmenn og eldri sem hafa reynsluna. Það gætu samt komið upp smá vandamál í kringum landsleikina hjá stúlkunum en eflaust verður sterkur aðstoðarþjálfari en verður það Heimir?
|
|
|
Guest |