|
|
 Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 16.04.09 Bréf: 125 Staður: Reykjavík
|
Jæja Valsmenn nær og fjær. Nú eru það fh-ingarnir og fer sá leikur fram í hafnafirði. Bæði lið töpuðu síðustu leikjum sínum og býst ég við hörkuleik.
Hvernig er annars stemningin? Á ekki að skunda niðrí hafnafjörð í þessu blíðskaparveðri? Fjölmennum og styðjum okkar menn til sigurs. Áfram Valur!
Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 13.07.10 Bréf: 0
|
Var ekki tekið af okkur mark í kvöld...gat ekki séð að neitt brot hafi átt sér stað?
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Mér fannst þetta vera gott og gilt mark, en það er bara sama gamla sagan að markmenn geta hent sér inn í þvögu og fengið aukaspyrnu. Andskoti hvimleitt.
Svo fannst mér líka vera aukaspyrna á ferð þegar (minnir mig) König var togaður niður.
Spurning um að fá Sævar Gísla til að taka hann í smá kennslu í dettingum...
|
|
 Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 16.04.09 Bréf: 125 Staður: Reykjavík
|
Jæja.... var semsagt engin stemning fyrir hörkuleik í blíðskaparveðrinu? Ekki einu sinni upphitun hérna á heimasíðunni. Hvað er í gangi ég bara spyr? Hrósa þeim fáu Valsmönnum sem mættu á þennan leik en annars var mætingin vægast sagt léleg.
En að leiknum. Hörkuleikur þar sem bæði lið gátu stolið sigrinum með smá heppni en jafntefli líklegast bara sanngjarnt. Gott að sjá Hauk aftur á miðjunni og voru hann og Bjössi okkar bestu menn í leiknum. Stefán stóð sig líka mjög vel og gaman að sjá smá róteringu í vörninni þar sem Greg Ross var vinstri bak og Pedersen var miðvörður í stað Reynis og stóð sig bara vel þar, þótt hann vildi gefa fh-ingum smá séns og var eitthvað að reyna að sóla í vörn og Kjartan þurfti að redda honum. Og að Kjartani sem átti stórfínan leik. Varði þarna nokkrum sinnum úr dauðafærum og fáir feilar hjá honum sem er bara jákvætt. Aðal blóraböggullinn í dag virðist vera Danni König en maður er að því virðist bara óheppinn. Hann stóð sig alls ekki illa, mikil barrátta í honum og spilar vel en bara óheppinn að skjóta í stöng, sem var þröngt færi fyrir, og svo átti hann að fá víti í seinni hálfleik. Leitt að sjá Val bakka of mikið í seinni hálfleik því maður á aldrei að búast við að halda hreinu gegn fh á þeirra heimavelli og Valsmenn áttu mörg tækifæri til að bruna í skyndisókn en oft var bara Danni einn gegn þremur varnarmönnum á meðan aðrir voru að rembast við að koma sér upp völlinn.
En heilt yfir fín frammistaða og með smá heppni hefðum við getað stolið sigrinum en nú taka við gríðarlega erfiðir útileikir gegn toppliðunum tveimur, fyrst íbv í eyjum svo breiðablik í kópavoginum.
Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 15.04.09 Bréf: 6 Staður: Reykjavík
|
Þetta voru slæm úrslit. Frammistaðan var á heildina litið kannski viðunandi en mjög slæmt að við skyldum ekki færa okkur í nyt rænuleysi FH-inga fyrsta klukkutímann. Það eru sem fyrr sömu mennirnir sem halda liðinu uppi en það er eiginlega bara Haukur Páll sem nær að spila af fullri einbeitingu og krafti frá upphafi til enda. Varnarleikurinn var í lagi ef undan eru skilin tvö til þrjú mistök þegar boltinn tapast nærri markinu og svo auðvitað dekkningin í markinu. Vinnslan var fín en þó er það galli hve illa sumir menn skila sér til baka ef pressan misheppnast og að geta ekki útfært skyndisóknir með sómasamlegum hætti gegn slakri vörn eins og þeirri sem við mættum í gær. Gaman að sjá til Kjartans sem var góður og með allar ákvarðanir á hreinu. Á eftir að sjá markið í sjónvarpinu en virtist ekki vera við hann að sakast.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 10 Staður: Reykjavík
|
Er einhver með skúbb um þessi agavandamál sem Gulli talar um á fótbolti.net?
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 28.04.09 Bréf: 8 Staður: Reykjavík
|
Ef einhver hefði sagt við mig fyrir mót að eftir rúmlega hálft mótið yrði Valur bara búið að tapa 2 leikjum, væri 3-6 stigum fyrir ofan KR og einu stigi á eftir FH og Keflavík þá hefði ég tekið því feginn. Tímabilið hefur verið köflótt en heilt yfir er staðan fín og betri en margir hefðu þorað að vona fyrir tímabilið, finnst að menn gleymi þessu dáldið.
Svo er spurning hvað stuðningsmenn geti leyft sér að kvarta mikið þegar liðið er að standa sig miklu betur en þeir.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 13.07.10 Bréf: 0
|
var á leiknum ekki mikil stemmari hjá okkur. fannst samt stemmninginn ekkert mikið betri hjá FH-ingunum. Get nú samt sagt að ég á það til að láta út úr mér hluti á leikjum sem ég nota nú ekki í daglegu tali en fannst þessi mafía stundum fara langt yfir strikið í ókvæðisorðum gagnvart bæði dómara og mótherjum.....heildina erum við (tek sjálfan mig inn í það) búnir að vera slakir stuðningsmenn í sumar, sérstaklega þar sem liðið er búið að standa vel undir væntingum..það er eins og sú stemning sem var farin að myndast á Hlíðarenda hafi farið með ruglinu í fyrra...vonandi náum við að rífa okkur upp það er jú helmingur eftir af mótinu...( þá á ´´eg við okkur stuðningsmennina)
áfram VALUR
|
|
|
Guest |