Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

íbv - Valur Valkostir
p-sæm
Skráð: 23. July 2010 17:37

Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 16.04.09
Bréf: 125
Staður: Reykjavík
Jæja Valsarar nær og fjær. Nú er kominn tími að rífa aðeins upp jákvæðnina í þessu spjalli og gera sig tilbúinn fyrir erfiðan útileik gegn eyjamönnum. Komin upphitun á forsíðuna og samkvæmt henni ætti rúntur með Herjólfi gamla að vera leikur einn. Af lýsingunni að dæma þá verður þetta bara eins og í Akraborginni forðum.

Leitt að Pedersen er í banni þar sem mér fannst hann skila hlutverki miðvarðar mjög vel gegn fh EN Einar Marteins er kominn aftur og ætti að vera gjaldgengur. Ég ætla allavega ekki að vera gera mér einhverjar vonir um að þetta verði fyrsti leikurinn okkar þar sem við höldum hreinu og þar að auki er gríðarlega erfitt að skora gegn íbv. En ég vona auðvitað eftir Valssigri og skýt á 1-2 þar sem eyjamenn komast yfir snemma í leiknum en við tökum þetta á smá barráttu í endann. Klappa

Allir á völlinn og Áfram Valur!



Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
Jónas
Skráð: 23. July 2010 22:34
Staða: Nýliði

Skráði sig: 13.07.10
Bréf: 0
gríðarlega erfiður leikur hjá okkar mönnum,,,verð mjög sáttur með jafntefli en upp á bjartsýninna skít ég á 1-3

mig langar samt að sjá Martin aftur sem djúpan á miðjunni eins og í leiknum gegn Fylki,,var virkilega sterkur þar og dreyfði boltanum vel.

'afram Valur
Borko
Skráð: 23. July 2010 23:29
Staða: Nýliði

Skráði sig: 10.03.09
Bréf: 1
Staður: Reykjavík
Djöfull að leikurinn sé ekki klukkan 18. Það myndi falla töluvert mun betur að siglingaáætlun Herjólfs.
Vesin.
johanningihaf
Skráð: 24. July 2010 18:37
Staða: Nýliði

Skráði sig: 24.07.10
Bréf: 0
Staður: RVK
Gæti ekki verið meira sammála með Martin, það var alveg ástæða fyrir að við rústuðum þeim leik og hann var stórt akkeri á miðjunni í þeim leik. Mér finnst hann einfaldlega betri þegar honum er spilað aðeins framar
p-sæm
Skráð: 25. July 2010 05:54

Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 16.04.09
Bréf: 125
Staður: Reykjavík
leikurinn er samkvæmt ksi.is klukkan 16.00


Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.