Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

ER Gulli kominn á leiðarenda ? Valkostir
Heiða í Dal
Skráð: 6. August 2010 11:47

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 13.10.09
Bréf: 28
Staður: Reykjavík
Ég er kannski á allt annarri línu en margir sem skrifa hérna inni, en ein spurning til okkar allra; á hverju áttu menn von fyrir þetta tímabil?

2010 byrjaði frábærlega, og í júní var Valur í toppbaráttu. Síðan þá hefur vissulega ekkert gengið, og liðið situr nú í 7. sæti deildarinnar.

Það er ekkert sem Valur á að stefna að fyrir tímabil, en mér heyrðist vera almenn ánægja með orð eins og uppbyggingartímabil og fersk byrjun fyrir mót. Svolítið eins og það hafi gleymst.

Það er satt að Valsmenn hafa ekki enn haldið hreinu í sumar, og að liðið hefur ekki unnið síðan um miðjan júní - en öll lið ganga í gegnum tímabil (sjá nágranna okkar í vestrinu) sem fara í taugarnar á stuðningsmönnum.

Ég held mig við mína spá, að Valur endi í 5. sæti í deildinni, og verð hæstánægður með það ef rætist. Ef ekki þá er það bara þannig, og á næsta tímabili þegar má sannlega kalla Valsliðið liðið hans Gulla þá má fara að draga menn til ábyrgðar ef illa gengur.

Hengjum ekki þjálfara eftir svona stuttan tíma, við erum betri en það.

Áfram Valur!
Ási Sveinss
Skráð: 6. August 2010 19:05
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Stuðningsmenn muna alveg eftir talinu um uppbyggingu en það lítur út fyrir að aðrir hafi steingleymt því. Veit ekki hvort menn séu sammála sér í því....

Hvað varðar Gulla man ég ekki strax eftir því að eitthverji vilji að hann víki. Gulli verður að fá sinn tíma og það er einmitt það sem við ætlum ekki að taka til fyrirmyndar við óvini okkar í engismannslandi (107) og fara að skipta um þjálfara ótt og títt. Gulli hefur allavega minn stuðning og spurning hvort hann mætti kannski fá að ráða meiru, allavega með leikmenn sem koma og fara.

ÁFRAM VALUR !!
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.