Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Diarmuid O'Carroll í Val - König til Bronshoj Valkostir
Heiða í Dal
Skráð: 30. July 2010 12:15

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 13.10.09
Bréf: 28
Staður: Reykjavík
Knattspyrnudeild Vals hefur samið við 23 ára gamlan írskan framherja, Diarmuid O'Caroll. Diarmuid er uppalinn hjá skoska stórveldinu Celtic, en hefur þar að auki leikið með skosku liðunum Celtic, Ross County og Airdire United, ásamt Morecambe í Englandi.

Danski framherjinn Danni König er hinsvegar horfinn á braut, þar sem klásúla í samningi hans kvað á um að ef lið á meginlandinu myndi bjóða honum samning þá væri honum frjálst að fara. Í gær kom það upp að danska liðið Bronshoj samdi við König, og því varð að hafa snör handtök.

O'Carroll fékk skínandi meðmæli frá umsagnaraðilum, og hafði áhuga á að koma til Íslands. Við bjóðum því Diarmuid O'Caroll velkominn í Val, en leikheimild fyrir hann er í höfn svo hann verður til taks gegn Breiðabliki á miðvikudaginn næsta.


Diarmuid O'Carroll
bjossi
Skráð: 30. July 2010 12:42
Staða: Nýliði

Skráði sig: 19.05.09
Bréf: 4
Ég sakna Viktors.
Skari
Skráð: 30. July 2010 13:04

Staða: Nýliði

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 0
Staður: Reykjavik
Viktor getur ekkert nema passað upp á hárgreiðsluna
Don Brandt
Skráð: 30. July 2010 16:21
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 15.04.09
Bréf: 6
Staður: Reykjavík
Ég get ekki annað en lýst furðu minni á þessum samningi við König. Þetta hlýtur að vera einsdæmi og þó hafa fyrr verið gerðir slæmir samningar við leikmenn hjá Val sem hafa getað farið þegar þeir vildu en þá að loknu tímabili.

Nú verðum við bara að krossleggja fingurna og vona að O´Carroll sé betri en ferilskrá hans gefur til kynna.
Siggi CL
Skráð: 30. July 2010 16:38
Staða: Nýliði

Skráði sig: 13.05.10
Bréf: 1
Ég mun sakna königs. Hann var fljótur en hefði mátt nýta færin betur. Ég skil ekki hvers vegna einhver saknar Viktors unnars. Vonum bara að þessi írski eigi eftir að nýta færin vel.
Áfram Valur
p-sæm
Skráð: 30. July 2010 17:03

Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 16.04.09
Bréf: 126
Staður: Reykjavík
Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Ég er sammála Sigga CL, ég mun sakna Königs því hann var alltaf hættulegur en vantaði eiginlega bara að klára færin. En við bjóðum þessum Íra velkominn með grænum höttum og Guinness og vonandi kemur hann með smá "luck of the Irish" því það er eitthvað sem við þurfum.

...sakna Viktors? pfff....



Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
Skaginn
Skráð: 30. July 2010 18:34
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
´Já König var ágeætur leikmaður en hefur dalað einsog allt valsliðið í síðustu leikjum. Eflaust verða einhverjar breytingar á liðunum eftir versló og lið eiga eftir að dala og önnur að taka við sér. Ég hef trú á að t.d Valur, Stjarnan, KR, og FH og svo önnur eftir að dala einsog ÍBV, Fram,
Fletcher
Skráð: 30. July 2010 18:41
Staða: Nýliði

Skráði sig: 22.11.09
Bréf: 0
V´a maður er bara eiginlega orðlaus og kalla eg þetta frekar lelegt af stjorninni að hafa samið svona við hann. Það atti auðvitað að semja við hann ut sumarið eða bara að sleppa þvi. En eitt skil eg samt ekki hvernig datt þeim i hug að lata viktor fara vist að danni var með svona samning???? Finnst lika faranlegt af mönnum herna að vera að skita ut viktor bara afþvi að hann se farinn það er ekki eins og hann hafi fengið mikinn sens i sumar.
Hjálmtýr
Skráð: 2. August 2010 15:55
Staða: Nýliði

Skráði sig: 26.08.09
Bréf: 2
Staður: Reykjavík
Jónas
Skráð: 2. August 2010 22:49
Staða: Nýliði

Skráði sig: 13.07.10
Bréf: 0
spennandi að sjá hvað hann bíður upp á.
Ási Sveinss
Skráð: 3. August 2010 10:45
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
König sýndi það og sannaði náttúrulega að þegar að engin vinna býðst þá tekur maður eitthvað sem er örlítið betra strax og það býðst og hoppar beint frá borði. Legg til að Danni verði útstrikaður sem nokkurn tímann leikmaður Vals enda var ekki að sjá að hann var bara að taka á sig leiðinlega vinnu til að fá greitt enda sást meira í neikvæðar hliðar hans en þær góðu. Spurning hvernig meðhöndlun hans hafi áhrif á móralinn í liðinu sem hefur ekki verið upp á marga fiska...

ÁFRAM VALUR !!
tómatsósa
Skráð: 5. August 2010 16:20
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 28.04.09
Bréf: 8
Staður: Reykjavík
Verð að segja að atburðarrásin hefur verið einkennileg síðustu vikur. Við vorum með König og Viktor og nú eru báðir farnir.

Byrjum á König. Hann hafði einhverja hæfileika og kom sér í færi. Hann spilaði hins vegar bara fyrir sjálfan sig. Eðlilega kannski því hann reyndi að nota þetta sem sýningarglugga fyrir erlend lið þar sem það kom í ljós að mátti fara þegar tilboð kæmi.

Annað sem er nánast staðreynd að þegar þú nærð í útlenskan framherja þá er það skammtímalausn. Ef hann getur eitthvað þá pikka útlent lið hann upp. Ef ekki er alveg eins gott að vera með Íslending, sem er hægt að stóla á.

Að þessu sögðu er það mjög einkennilegt að Valur hafi byggt sóknarleikinn sinn í kringum König, maður sem gat farið hvenær sem var og 99%líkur á að yrði ekki 2011. Hverju hefur verið fórnað? Viktor er farinn. Arnar Geirsson sem var flottur í byrjun hefur fallið í skuggann síðan og verið vanræktur. Hvað er svo til ráða? Náð í annan útlending.

Nú vil ég ekki vera með niðurrif, ekki af ástæðulausu allavega, en þetta er bara of mikið af rugli.

Knattspyrnustjórnin verður svo að fara að læra að gefa almennileg svör til stuðningsmanna, en ekkki að hunsa þá alveg. Maður vildi fá Svör þegar Willum fór, hvað skeði eiginlega? Maður vildi fá svör þegar Danirnir duttu í það, hvernig tekið var á því. Utan frá var ekki hægt að sjá að neitt hafi verið gert og stjórnin getur ekki verið hneyksluð á því að stuðningsmenn móðgist eða verði pirraðir á því. Dapurlegt var að lesa bréf Barkar þar sem hann sagði að Viktor hefði ekki farið útaf því að hann væri oft að djamma!?! Til að hafa það á hreinu þá voru það Danirnir sem voru að djamma og fengu samt að byrja leiki og tilgátan var að það hafi verið lokastráið fyrir Viktor. Svo var einhver sem minntist á að Viktor sæist stundum í bænum og það var notað til þess að snúa út úr.

Nú vil ég fá svör um hver séu markmið og tímaáætlun hjá Val, eru einhver langtímaplön í gangi? Er verið að byggja einhvern grunn?

Til að sýna að ég er ekki algjör neikvæðiskarl ætla ég taka fram að Valur krækti í nokkra ágæta karla fyrir þetta tímabil, Hauk Pál og Rúnar sem dæmi. En betur má ef duga skal.

Ég er ábyggilega ekki einn um það að finnast 2011 vera mikilvægasta ár í sögu Vals, 100ár. Því skiptir máli hvernig þetta tímabil er klárað og að það sé á einhverju að byggja en ekki eins tímabilsmönnum. Vonandi nær liðið að rífa sig upp núna og vonandi batnar sambandið milli stuðningsmanna og stjórnar.
Ási Sveinss
Skráð: 5. August 2010 16:27
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Væri gaman núna að fá soldið Q&A frá Berki núna eins og hann var með í fyrra. Batt enda á sumar kjaftasögur og var að sama skapi gaman að fá svör beint frá toppnum. Ef hann hefur ekki möguleika til þess þá kannski eitthver annar.

ÁFRAM VALUR !!
Fletcher
Skráð: 5. August 2010 19:55
Staða: Nýliði

Skráði sig: 22.11.09
Bréf: 0
Eg er klarlega samala tomatsosunni:) Maður spyr sig bara hvað er i gangi???? við töpum 5-0 fyrir blikunum og það er bara ekki asætanlegt. Blikar hafa það reyndar fram yfir okkur að þeir treysta a ungu ISLENDINGANA SINA og eru ekki með einn utlending. Hvaða bull er i gangi hja felaginu???? Afhverju var t,d ekki viktor ekki latin byrja motið og ef að hann hefði verið svona hrikalega slakur þa hefði verið hægt að fa utlending i felagsskipta glugganum????. Eg held að það riki algjört stjornleysi hja klubbnum og nu vil eg heldur ekkert vera með nein leiðindi en mer finnst það koma stuðningsmönnum við þegar leikmenn liðsins eru að hrinja i það 2-3 daga fyrir mikilvæga leiki. Börkur sagði að þetta hafi verið storlega ykt hja mer en eg sa þa baða a bæði föstudag og laugardag vel i glasi. Svo var allt i einu talað að viktor væri alltaf i bænum og eithvað svoleiðis rugl sem getur vel verið en eg hef nu reyndar ekki seð hann enþa. Me' fullri virðingu þa hlytur þetta að skapa leiðinda moral hja leikmönnum og serstaklega þegar menn halda sæti sinu i liðinu eftir svona agabrot. Allavega var svipað atvik hja FH og þar var leikmaðurinn tekin ur hop i 2 leiki. Það væri mjög fint að fa svör fra stjorninni hvað se i gangi og afhverju se samið svona asnalega við danan.
Pétur Óli
Skráð: 6. August 2010 11:48
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 29.05.09
Bréf: 6
Staður: Rvk
Sammála Ása það er kominn tími á að Börkur mæti hingað til leiks.

Ég hef aldrei verið of hrifinn af hlaupa og kaupa stefnunni. Það er hægt að kaupa íslendinga og vonast til að þeir haldi tryggð við klúbbinn, en ég held að útlendingur sé oftast á útleið. Vissulega er hægt að fá fjölskyldu hingað útvega karli og konu vinnu og börnum skólaplássi. í slíkum tilfellum eru dágóðar líkur á að útlendingurinn ílengist.

Ég vil að leikmenn séu sem lengst og það sama á við um þjálfara. Það er ekki til neins að vera að kaupa nýja leikmenn of oft. Ég vil byggja á heimamönnum og svo má bæta einhverjum við, en heimamenn eiga ALLTAF að hafa forgang ef það eru tveir jafngóðir.

Þó við munum hysja upp um okkur með þessum díl og enda ofarlega, þá er ég ekki viss um að svona business sé okkur til framdráttar til lengdar. Ég vil árangur til margra ára, en ekki bara í ár.
Ási Sveinss
Skráð: 6. August 2010 21:50
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Martin Pedersen, Greg Ross og Diarmuid O'Caroll er allir gæjar sem fara líklegast eftir þetta tímabil.

Haukur Páll, Haraldur Björnsson og Jón Villhelm eru gæjar sem gætu líka farið eftir þetta tímabil.

Gætum staðið uppi með að vera á sama punkti eftir þetta tímabil og síðasta sem er ekki nægilega gott og segir okkur að hlutirnir heppnuðust kannski ekki eins og talið var. Allt tal um uppbyggingu hefur ekki staðið undir væntingum og spurning hvort að stefna stjórnarinnar þurfi að breytast. Kannski þarf bara að sætta sig við að það átak sem farið var í með yngri flokkana þurfi bara að taka sinn tíma og við þurfum að bíða í stað þess að kosta til svo miklu í hálfkæring.

ÁFRAM VALUR !!
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.