|
|
 Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 16.04.09 Bréf: 125 Staður: Reykjavík
|
Jább.... maður getur ekkert sagt eftir svona frammistöðu. Orðlaus. Ég dreif mig heim á 75. mínútu eftir 5. markið. Ooooog já.... halló fallbarátta..
Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 8 Staður: Milly la Foret, Frakkland
|
Þetta er bara grín!!!
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 06.11.08 Bréf: 6
|
Því miður hefur hópurinn ekki ákveðið að taka sig saman og ná árangri
Mér sýnist það verða mjög erfitt að sleppa við fall úr þessu
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 19.05.09 Bréf: 4
|
Við skulum nú ekki alveg missa okkur í svartsýnisspánum þar sem við erum 10 stigum frá fallsæti, en sjitturinn hvað andleysið í liðinu er algjört um leið og við fáum á okkur mark. Núna verður Gulli að fara hræra almennilega í þessu liði og gera einhverjar breytingar.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 13.07.10 Bréf: 0
|
sorglegt sorglegt sorglegt....það lítur út fyrir að liðið hafi ekki úthald nema í 45 mín. get ekki séð að það sé ekki annað mögulegt en að skipta út allri vörninni eftir þetta tímabil.. vanntar allan hraða í hana..já eiginlega bara í allt liðið. við vorum að skapa okkur fín færi í fyrri en svo hafa menn ekki þrek í seinni.
ég held að leikmenn verði nú að fara líta í eigin barm og finna smá baráttu í þetta mót.. persónulega finnst mér Bjössi og Baldur vera einu mennirnir sem geti gengið upréttir eftir þetta sumar ef þetta heldur svona áfram...
til skammar .....
einn mjög svektur Valsari
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 25.06.10 Bréf: 1
|
Fyrsta spurningin hlýtur að vera; Erum við með réttan þjálfara?
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 34 Staður: Rivertown
|
Draga liðið bara úr keppni fyrst leikmennirnir eru ekki að nenna þessu.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 19.05.09 Bréf: 4
|
HB skrifaði:Fyrsta spurningin hlýtur að vera; Erum við með réttan þjálfara? Hann er allavega ansi hræddur við að gera einhverjar drastískar breytingar á liðinu þó að við höfum ekki landað sigri í tæpa 2 mánuði.
|
|
 Staða: Nýliði
Skráði sig: 14.05.09 Bréf: 4 Staður: Rvk
|
Mér er ÓGLATTT !!!!!!!!
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Mér hefur ekki liðið jafn illa sem Valsara í langan tíma. Það hefur verið umtalað hversu lélegur mórallinn er í liðinu en þetta var nú bara ótrúlegt. Held að Gulli verði að fara að láta aðeins í sér heyra en maður hefur lítið heyrt í honum á hliðarlínunni í sumar. Er kannski ekki hans stíll en hann hlýtur að hafa orðið reiður í kvöld. Ég er allavega mjög mjög reiður.....
ÁFRAM VALUR !!
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 06.11.08 Bréf: 6
|
Það er alveg ljóst að liðið er greinilega ekki í úthaldsformi
Liðið hefur verið í þokkalegum gír í fyrri hálfleik en tapar alltaf seinni - sem má flokka sem formleysi.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 19.05.09 Bréf: 4
|
Þetta er samt fínt! Það er uppbyggingartímabil í gangi, en við erum samt með 4 útlendinga! Hugsið ykkur hvernig hópurinn verður þegar við setjum stefnuna á titilinn!
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Já 5-0 eru ´ótrúlegar tölur. Maður veit að Blikar voru rólegir um helgina en eflaust hefur Gulli boðið liðinu á þjóðhátíð og frá Miðvikudegi og haft þessa ,,sunnudagsæfing'' í Herjólfsdalnum og það var lítill fótbolti á henni. Öllu grínu slepptu þá er þetta mjög sorglegt og andleysið er algjört. Valur fellur ekki en þetta lið á að vera alla vega 4-6 sæti. Nú þarf Gulli að kenna þessum strákum að berjast og það í 95 mínútur að minnsta kosti. Eflaust verður liðið í þetta 7-8 sæti og eftir það þarf að hreinsa til og láta 2.flokk í uppbygginguna og svo þá sem er með valshjarta í liðið
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 11.05.10 Bréf: 0
|
Það er nú algjör óþarfi að missa sig í þunglyndi hérna.... Í fyrsta lagi var okkur ekki spáð nema 6. sæti fyrir mót og þar erum við núna.... Búnir að spila á móti 3 efstu liðunum (FH..Breiðablik.. ÍBV..) svo þetta er ekkert allslæmt! Ég er ekki að segja að þetta sé eitthvað glæsilegt en ekki svo slæmt heldur..... Svo er verið að tala um vörnina að hún sé mjög léleg þá langar mig til að segja eitt.... Hversu oft hafið þið séð Arnar Svein sem dæmi fara fyrir aftan miðjulínuna??
En eitt er að hreinu að þessu liði þarf að þjappa saman og það er einning í okkar höndum að styðja liðið LÍKA þegar illa gengur og ekki gleyma að þessir leikmenn eru alveg að leggja sig fram og auðvitað vilja þeir vinna!
ÁFRAM VALUR!
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Varnarlínuna skipa helst:
Kjartan Sturluson. Fyrrum Landsliðsmarkvörður og atvinnumaður. Atli Sveinn. Fyrrum Landsliðsmaður og atvinnumaður. Reynir Leósson. Fyrrum Landsliðsmaður (U-21) og atvinnumaður. Martin Pedersen. Fyrrum U-21 landsliðsmaður Danmerkur og núverandi atvinnumaður. Svo hefur verið flakk með Stefán og Greg Ross hægra meginn. Greg Ross er atvinnumaður en er yngsti varnarmaðurinn sem hefur verið að spila fast og þarf kannski meiri tíma.
Er ekki raunsætt að ætlast til að það séi hægt að halda markinu hreinu með þeim varnarmönnum sem eru til staðar?
ÁFRAM VALUR !!
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 18.10.08 Bréf: 24 Staður: Mosó
|
Kjartan hefur aldrei verið atvinnumaður... hann lék hjá áhugamannaliði á Ítalíu þegar hann var í námi...
Bara svo að staðreyndirnar séu á hreinu...
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 28.03.10 Bréf: 1
|
Ási Sveinss skrifaði:Varnarlínuna skipa helst:
Kjartan Sturluson. Fyrrum Landsliðsmarkvörður og atvinnumaður. Atli Sveinn. Fyrrum Landsliðsmaður og atvinnumaður. Reynir Leósson. Fyrrum Landsliðsmaður (U-21) og atvinnumaður. Martin Pedersen. Fyrrum U-21 landsliðsmaður Danmerkur og núverandi atvinnumaður. Svo hefur verið flakk með Stefán og Greg Ross hægra meginn. Greg Ross er atvinnumaður en er yngsti varnarmaðurinn sem hefur verið að spila fast og þarf kannski meiri tíma.
Er ekki raunsætt að ætlast til að það séi hægt að halda markinu hreinu með þeim varnarmönnum sem eru til staðar? Ég skil rök þín, en er ekki kominn tími á að leyfa ungum varnarmönnum að spreyta sig. Án þess að vera með nein leiðindi þá finnst mér enginn af þeim hafa hraðann eða kraftinn til að takast á við sneggstu og sterkustu framherja. Martin og Atli Sveinn eru einu varnarmennirnir sem mér finnst hafa verið að gera eitthvað af viti í sumar. Reynir er hægur og hefur alltaf verið það og hann er ekki góður í návígum. Þetta eru stóóóórir gallar að hafsenti að vera. Kjartan er kominn á aldur en þetta er mjög persónubundið því að sumir markmenn spila til fertugs og jafnvel lengur, aðrir geta það ekki en reyna samt og mér finnst Kjartan flokkast þar undir. Hann er kominn á aldur og eftir því sem ég hef séð er hann alls ekki góður í loftinu, 1 on 1 og ég ætla ekki að vera dónalegur eða særandi en ég hef séð 4. flokks og 3. flokks leiki þar sem markmenn sparka lengra en hann. Svo sýnist mér hann bara varla vera í neinu líkamlegu formi. Atli Sveinn og Martin hafa átt sína slæmu leiki líka að sjálfsögðu, en þeir sveflast ekki eins mikið upp og niður í performance eins og áðurnefndir leikmenn.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 09.08.10 Bréf: 0
|
Það sem ég skil ekki er metnaðarleysið og virðingaleysi gagnvart Valsmönnum. Fólk fer á leiki og borgar formúgu fyrir einn miða fyrir að sjá stráka nenna varla að spila fótbolta.
Ég er einnig stórhneyksluð yfir því að fótboltamenn (þá meina ég fótboltamenn pepsi deildar) skuli hafa það á samviskunni að djamma og drekka sig fullan 2-3 dögum fyrir leik. Ég er ekki að segja að allir hafa gert en þeir taka það til sín sem ákváðu að gera það. Þetta er algjört virðingaleysi gagnvart íþróttinni og þeim sem koma og horfa á lþá spila.
Ég veit að þetta var helgin til þess að skemmta sér en það þarf ekki að drekka heilan kassa af bjór!
|
|
 Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 16.04.09 Bréf: 125 Staður: Reykjavík
|
Ég verð að vera ósammála þér No. 9 varðandi Kjartan. Mér finnst hann búinn að eiga mjög gott mót og heldur okkur oft inní leikjum, akkúrat þegar kemur að 1on1 eða í loftinu. En það er rétt að hann er lélegur í útspörkunum og svo virðist að vinstri löppin hans sé eitthvað að gefa sig. Langflest þessi mörk sem við erum að fá á okkur skrifast alfarið á vörnina. Sýnir það t.d. að Kjartan var eini Valsmaðurinn sem fékk M í mogganum eftir blikaleikinn.
Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
|
|
|
Guest |