Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Spjallfundur í Fjósinu Valkostir
Fridjon
Skráð: 19. August 2010 22:26
Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 19.08.10
Bréf: 5
Staður: Garðabær
Stjórn knattspyrnudeildarinnar vill standa fyrir spjallfundi í fjósinu fyrir KR leikinn á mánudag. Fundurinn hefst kl. 17.

Þar gefst ágætt tilefni til að spjalla, fara yfir tímabilið og taka létt pepp fyrir leikinn gegn KR.

Mætum öll sem getum.


mbk
Friðjón Friðjónsson
fh. stjórn knattspyrnudeildarinnar.
p-sæm
Skráð: 21. August 2010 14:07

Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 16.04.09
Bréf: 125
Staður: Reykjavík
Kúl! Eru menn ekki spenntir fyrir þessa viðureign annars?


Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
Skaginn
Skráð: 21. August 2010 18:50
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Erfitt verður það en þetta er leikur til að stíga upp og klára með sæmd. 2-1 f Val
Egerfan
Skráð: 23. August 2010 16:25
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Ég verð nu bara að segja það að það er ansi dauft yfir öllu saman hérna. Þetta er eins og vera stuðningsmaður Grímseyjar (með fullri virðingu og vinsemd fyrir þeim) Hvað er það sem ÞÚ vilt að sé gert fyrir þig sem stuðningsmann ? Hvað vilt þú að félagið geri varðandi stuðningsmenn og annað ? Nú er þitt tækifæri, láttu sjá þig í fjósinu og stappaðu stálinu í aðra og láttu aðra stappa stálinu í þig.

Áfram Valur
Fridjon
Skráð: 23. August 2010 22:58
Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 19.08.10
Bréf: 5
Staður: Garðabær
Mig langar til að biðja þá sem komu í Fjósið afsökunar á fundarleysinu í dag.
Formaður knattspyrnudeildar kom út í Fjós kl. 17 og svo aftur stuttu seinna en í hvorugt sinn var nokkur mættur. Enda kannski vondur tími. Menn í vinnu og þess háttar Þannig var amk. ástatt fyrir mér.

Þegar ég kom 17.30 þá voru 8-10 manns fyrir utan Fjósið en þar allt lokað. Mér þykir það mjög leitt og það leit út fyrir að stjórnin beri ekki virðingu fyrir stuðningsmönnum. Það er ekki svo.Það er hinsvegar eindreginn vilji stjórnar að hitta stuðningsmenn.

Næsti leikur er Selfoss úti á mánudag eftir viku og svo er næsti heimaleikur er hinsvegar ekki fyrr en sunnudaginn 12. sept á móti Stjörnunni.

Eins og áður sagði þá hefur stjórnin áhuga á að hitta stuðningsmenn, fara yfir málin og ræða komandi afmælisár.
Það er þægilegt að tengja þetta leik en það væri líka gott að heyra hugmyndir manna.

mbk
Friðjón
arnigunnar
Skráð: 24. August 2010 00:01

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 15
Ég held það verði að setja þetta upp á tíma þar sem menn eru að jafnaði ekki í vinnu. Ég hafði virkilega áhuga á að koma, en komst ekki úr vinnu ...
Borko
Skráð: 24. August 2010 08:07
Staða: Nýliði

Skráði sig: 10.03.09
Bréf: 1
Staður: Reykjavík
Þetta var virkilega döpur frammistaða af hálfu stjórnar. Jafnvel daprari en frammistaða liðsins í leiknum.
Ási Sveinss
Skráð: 24. August 2010 10:39
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Það tekur bara 10 sek. að sjá að það séi enginn í fjósinu og gera sér grein fyrir því að það séi enginn fundur. Ástæðan fyrir því að það voru stuðningsmenn fyrir utan fjósið var að þarna safnast oft saman stuðningsmenn fyrir leiki. Tímasetningin var ekki heppileg. Leikurinn var svo sem ágætur fyrir utan 10 mín kafla sem er það lélegasta sem sést hefur á knattspyrnuvelli, ef maður lítur á það þannig...

ÁFRAM VALUR !!
Loftur
Skráð: 24. August 2010 14:06
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 27
Staður: 101
Það þarf nú engan snilling til að sjá að það þýðir ekkert að vera með fund kl 17 á mánudegi, ég var sjálfur að vinna eins og væntanlega flestir. Ætla vona að þessi fundur verði settur fljótlega upp á tíma sem hinn vinnandi maður getur mætt á.
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.