Staða: Meðlimur
Skráði sig: 28.04.09 Bréf: 8 Staður: Reykjavík
|
Smá pæling hérna. Var að horfa á viðtölin á fótbolta.net og rúv og ég verð að hrósa Atla Sveini fyrir hreinskilnina. úrslitin endurspegla bara stöðuna og áður en einhver ætlar að mótmæla er ágætt að muna að þetta er ekki í fyrsta sinn sem liðið gefst upp, eins og Atli segir. Það skiptir ekki máli hvaða menn eru í liðinu og hvað þeir fá borgað, menn verða að vinna fyrir kaupinu. Allir sem einn, innan vallar sem utan, og Atli veit það. Einhvern veginn virðist liðið ekki vita það og þetta er sama vandamál og frá því 2008 og 2009;þetta er ekki almennileg liðsheild.
Allavega, þetta var útúrdúr en þá pælingin. Þegar ég sé Atla Svein koma í þessi viðtöl, og ekki í fyrsta skipti, þá hugsa ég: Hvar er Gunnlaugur Jónsson? Er þetta ósýnilegasti þjálfari deildarinnar? Ég hef ekki tekið það saman en mér finnst ég bara varla hafa séð hann síðustu vikur, sáralítið allavega. Ólafur Kristjánsson kemur í viðtal eftir erfiðan tapleik, Gummi Ben, og fleiri en mér finnst ég ekki sjá Gulla mikið. Og sýnileika þjálfara finnst mér skipta máli, þetta er jú svo til eini aðgangur stuðningsmanna að honum, í gegnum þessi viðtöl. Hvað finnst mönnum um þetta?
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 25.05.09 Bréf: 6
|
Sæll Tómatsósa.
Ég má til með að svara þessu bréfi þínu. Ég hef unnið á vefmiðli undanfarna mánuði og hef farið á marga leiki og skrifað greinar og tekið viðtöl við menn eftir leiki, margir þessara leikja hafa verið Valsleikir. Gunnlaugur hefur komið út og rætt við blaðamenn eftir hvern og einn einasta leik og það eru undantekningalaust viðtöl við hann í markaþáttum, hef séð hann í hverjum einasta þætti, sérstaklega á st2sport. Gunnlaugur er því sýnilegur og gefur sér góðann tíma í viðtölum og svara því sem hann getur, hann getur því ekki verið sakaður um að vera "ósýnilegur".
Þú getur nálgast mörg viðtöl við hann eftirfarandi slóð......http://www.sport.is/flokkur/sportvarp/
Áfram Valur.
Ragnar V.
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Verð að vera sammála því að Gulli hefur alltaf gefið kost á sér í viðtal. Sá hann vera úti að tala við fjölmiðla eftir kr-leikinn en spurning hvort það hafi bara ekki þótt fréttnæmt þar sem að hann er nokkuð jarðbundinn gæji að virðist og er lítið fyrir að henda fram eitthverjum sleggjum.
ÁFRAM VALUR !!
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 28.04.09 Bréf: 8 Staður: Reykjavík
|
Takk Ragnar fyrir gott svar og fyrir að afgreiða málið.
Var búinn að gleyma sport.is,fullt af góðu stöffi þar. Maður festist stundum of mikið í fotbolta.net og markaþáttunum á stöð 1 (ég er ekki með stöð 2 sport).
|