Staða: Nýliði
Skráði sig: 25.08.10 Bréf: 0 Staður: Kóp
|
Sæll Börkur
Fréttir en og aftur af þjálfara skiptum, annað árið í röð. Ef þessar fréttir eru réttar þá er klárt að stjórnin er ekki að standa sig, né þú. Staða Vals er ekki góð, leikurinn á mánudag segir allt um það. Það er alveg klárt að leikmenn, þjálfari og stjórnin eru ekki að klára málin með sæmd fyrir ykkur sjálfa eða Val. Svo þá er það spurningin til þín Börkur. Telur þú þig og stjórnina stætt að halda áfram við þessar endurteknu stöðu hjá Val?
Valsari sem vill sjá Val gera svo miklu meira.....
Kveðja Sig
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 28.04.09 Bréf: 8 Staður: Reykjavík
|
Staðan virðist vera þannig að alltof margir, hvort sem það er réttilega eða ranglega, treysta ekki knattspyrnustjórninni. Því verður hún að víkja eða eiga sér stað einhverjar grundvallarbreytingar á henni. Margt gott hefur verið gert en klúðrin hafa verið mörg og sérstaklega síðustu misserin.
2008: endursamið við Willum á miðju tímabili eftir erfitt gengi í deildinni. Samið til 2012. Willum er rekinn/hættir 2009. Eitthvað kostaði það.
2009: Hlaupið á eftir öllum dýrum bitum. Reynir Leós, Ian Jeffs, Marel Baldvins, Guðmundur Mete. Allt menn sem hafa aldrei/náðu aldrei að komast nálægt sínu "gamla besta" hjá Val og virtust bara ánægðir með að vera á spenanum.
2009:Hlaupið til á miðju tímabili og samið við tvíburabræðurna Arnar og Bjarka. Hef ekkert slæmt um þá að segja og þetta kostaði kannski ekki mikið. En að fá þá lyktaði af tómri örvæntingu og tilgangsleysi.
2009:Atli Eðvaldsson ráðinn á miðju tímabili. Atli er og verður alltaf umdeildur. Atli talaði mikið um í viðtölum að hann væri að taka við liðið í molum. Hvort sem það var bara afsökun eða satt breytti það því ekki að liðið dalaði frekar en hitt og ráðningin gekk ekki upp.
2010:Samið við Danni König. Sóknarleikurinn byggður uppí kringum hann. Kom á daginn að hann mátti fara þegar fyrsta tilboð kæmi og hann fór og annar útlendingur fenginn. Rímar ekki við neina uppbyggingarstarfsemi. (Danni König hefði getað verið ágætis lausn en ef þetta var eina leiðin til að fá hann, með þessari klásúlu, þá átti liðið aldrei að semja við hann, af hverju að semja við menn geta stokkið frá borði hvenær sem er, og vilja það).
2010:Sögusagnir um að Guðjón Þórðarson sé að koma. Svona sögur verða sjaldnast til að sjálfu sér og það eitt að þessi saga er á kreiki er ekki beint merki um að allt sé í góðu lagi. Fyrir það fyrsta lagði stjórnin mikið á sig á að fá Gulla Jóns frá Selfossi. Menn voru greinilega sannfærðir um að þarna væri ungur og efnilegur þjálfari á ferð og maður framtíðarinnar(og það getur allt verið satt og rétt). Innan við ári seinna eftir virðist staða Gulla vera á brauðfótum og Gunnlaugs Jónsson tímabili Vals gæti verið lokið brátt. Ef svo er þá er stjórnin að segja að þeir veðjuðu á rangan hest.
Svo var það Kristján Hauksson klúðrið.
Fyrir mitt leyti er þetta bara orðið of mikið. Stjórnin fær þakkir fyrir allt það góða, bikarinn 2005, deildin 2007, salan á Pálma og Birki 2008. En sú hrina af mistökum síðan segir mér að stjórnin sé búið með sitt besta og endurnýjun sé nauðsynleg. Valsmenn eru fjölmargir og það hlýtur að vera hægt að fá einhverja ferska inní þetta.
|