|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 19.05.09 Bréf: 4
|
sannur skrifaði:
Hvernig væri nú að kynna sér málin Borko:
Ef skoðuð er leiksýrsla frá síðasta leik kemur í ljós að 5 leikmenn eru úr 2.flokk félagsins + 2 nýkomnir úr 2.flokk (Einar og G.Steini). Ég renndi í gegnum skýrslur frá öðrum leikjum/liðum og við erum bara með mjög hátt hlutfall af strákum sem eru gjaldgengir í 2.flokk í hóp hjá okkur. p.s stjórn ákveður ekki hvern skuli lána og hvern ekki það hlýtur að vera þjálfarinn sem að auki hlýtur að leggja fram óskir um hvaða leikmenn hann vilji sjá koma og fara....................
Valur KR Byrjunarlið 1 Kjartan Sturluson (M) 2 Stefán Jóhann Eggertsson 3 Martin Meldgaard Pedersen 5 Atli Sveinn Þórarinsson (F) 14 Jón Vilhelm Ákason fæddur ´86 15 Rúnar Már S Sigurjónsson fæddur ´90 18 Arnar Sveinn Geirsson fæddur´91 - gjaldgengur í 2.flokk 19 Diarmuid O'Carroll 20 Ian David Jeffs 21 Haukur Páll Sigurðsson fæddur ´87 27 Þórir Guðjónsson fæddur ´91 - gjaldgengur í 2.flokk
Varamenn 10 Baldur Ingimar Aðalsteinsson 11 Matthías Guðmundsson 12 Einar Marteinsson 17 Guðmundur Steinn Hafsteinsson 22 Ásgeir Þór Magnússon (M) er í 2.flokk 26 Magnús Örn Þórsson er í 2.flokk 30 Fannar Örn Kolbeinsson er í 2.flokk
Ég verð nú að taka undir nafna mínum honum Borko og á sama tíma segja að mér finnst þetta nú ansi þunn rök hjá þér Sannur. Þrír af þessum fimm leikmönnum sem þú taldir upp hafa samtals spilað í heilar núll mínútur í sumar. Þórir er búinn að vera í byrjunarliðinu 2-3 í allt sumar. Það er í rauninni bara Arnar Sveinn sem hefur haft eitthvað almennilegt impact í byrjunarliðinu í sumar. Svo er staða Guðmundar Steins í hnotskurn það sem Borko á við. Honum er hent á bekkinn fyrir einhvern handónýtan útlending (sem er víst voða góður að fá boltann í lappir). Á meðan þetta "kaupa árangur" hugarfar ríkir hjá okkur Valsmönnum, þá mun ekkert gerast... Jújú, við gætum dottið inn á einn og einn titil, en það er lítil sem engin uppbygging í gangi.
|
|
 Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 16.04.09 Bréf: 125 Staður: Reykjavík
|
Þótt þetta var nákvæmlega eins leikur og á móti breiðablik þá var ég ekki orðlaus eftir þennan. Ég hef bara ekki alveg komist að því að skrifa mína skoðun hérna og hef nú skoðað ýmis svör hérna en eins og langflestir hérna er ég mjög pirraður.
Ég skrifaði langt svar á þráðinn "er gulli á leiðarenda" og benti á nokkur atriði sem pirruðu mig og nú bætist eitt í viðbót: liðsvalið. Einar situr á bekknum meðan Martin er settur í miðvörð og Rúnar í vinstri bakvörð?? Þetta einfaldlega krefst skýringa. Og svo þessi blessaði Íri. Ekkert! Einhver benti hér líklega réttilega á að hann væri betri í 4 4 2 með einn sneggri við hliðina á sér en hann á ekkert pláss í þessu "einn á toppnum" leikkerfi. Enginn hraði og ömurlegur í loftinu. Ef hann er svona góður að spila í lappir og fá hann í lappirnar ætti hann bara að vera á miðjunni. Það sýnir sig líka þegar leikur liðsins batnaði þegar Guðmundur Steinn og Baldur komu inná. Steini með örlítið hungur og Baldur kom með smá hugmyndaflug í sóknarleikinn og duttum inná eitt mark, sem kom því miður allt of seint.
Manni líður eins og maður þurfi að fara inní klefa til þeirra og bara segja "Hey, ok við erum marki undir en leikurinn er ekki búinn, það er hægt að vinna upp muninn" því svo virðist sem leikmenn bara hafa ekki fattað það. Þeir fá á sig mark og þá liggur við að þeir leggist bara í grasið og grenji. Það sást bara í þessari umferð að ef þú vilt sigurinn þá geturu stolið honum eins og þegar fh-ingar voru tveimur mörkum undir. Þeir bara segja "hingað og ekki lengra" spila sinn bolta og vinna 4-2 og eins með Selfyssingana (sem eru okkar næstu mótherjar btw) tóku Keflvíkingana á síðustu mínútunum með Viktor Unnar í fararbroddi. Ég spyr bara hvar er þessi persónuleiki í Val þessa dagana? Það er allavega Haukur Páll sem sýnir barráttu allan leikinn og það sást í gær að hann gafst allavega ekki upp. En það þarf bara fleiri svona týpur sem segja "0-4 undir? So what þá skora ég bara 5!" Við þurfum alvöru karlmenn sem eru tilbúnir að leggja sitt að mörkum fyrir stigin þrjú en eins og liðið spilar þessa dagana er ekki að sjá að við höfum svoleiðis leikmenn......
áfram valur..
Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 28.10.08 Bréf: 1 Staður: Reykjavík
|
Það er rosalega erfitt að byggja upp á sama tíma og menn heimta árangur. Það sem ég held að fari í taugarnar á mörgum er nákvæmlega það að fyrir sumarið var lagt upp með að byggja upp, búa til sterka liðsheild. Maður sá fyrir sér að nýju fersku ungu strákarnir fengju sjénsinn, og Viktor Unnar yrði uppi á topp. (Gaurinn spilaði sinn fyrsta leik í meistaraflokki 16 ára, og var talinn eitt mesta efni landsins).
En þetta markmið var meira í orði en á borði. Það var farið í að kaupa útlendinga og fyrir vikið sátu menn á bekknum eða voru lánaðir niður í fyrstu deild.
Þess vegna eru menn pirraðir.
En það er voðalega auðvelt fyrir okkur stuðningsmenn að heimta að ungu leikmennirnir séu notaðir, því auðvitað viljum við árangur. Valur á að vera í toppbaráttu. Þannig viljum við hafa það.
Til dæmis má spyrja sig hvort Steini og Einar Marteins séu nógu góðir leikmenn til þess að spila í efstu deild?
Einnig má benda á þá staðreynd að næstum allur sóknarleikur Valsliðsins á að fara í gegnum strák fæddan árið 1991.
Gulli og stjórnin eiga mikið verk fyrir höndum, að byggja upp, á sama tíma og menn ná árangri.
En fyrst þurfa þeir að einbeita sér að halda liðinu uppi. Miðað við spilamennskuna upp á síðkastið verður það erfitt.
Það jákvæða við sumarið eru Rúnar Már, Haukur Páll, Jón Vilhelm og Arnar Sveinn....við þurfum að byggja á þessu.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 11.05.10 Bréf: 0
|
það er alveg stórfurðuleg þessi ást ykkar á Arnari, í leiknum á móti KR tapaði hann boltanum ca 20 sinnum, hann á fáar sendingar á samherja og er latur á vellinum. Þetta er búinn að vera sagan í síðustu 10 leikjum, heldur einhver að .að sé svona erfitt að dekka menn sem að er eins og 100m hlaupari í startblokkum tilbúinn að fara af stað þegar að stungusendinginn berst. Hvernig væri að fara að opna augun og sjá að liðið er algerlega í molum, skipulagið er ekkert, engin barátta, engin að hjálpa næsta manni bara allir að hugsa um sjálfan sig. Það er verið að blammera á skotann, fyrir hvað? Af því að hann fær aldrei boltann? Menn verða að hætta að tala með rassgatinu og fara að líta á hvað er í alvöru að gerast á vellinum.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 10.03.09 Bréf: 1 Staður: Reykjavík
|
bjossi skrifaði:
Svo er staða Guðmundar Steins í hnotskurn það sem Borko á við. Honum er hent á bekkinn fyrir einhvern handónýtan útlending (sem er víst voða góður að fá boltann í lappir).
Að ekki sé talað um stöðu Einars Marteins. Miðvörður er meiddur og bakvörður sem hefur leyst hann af er í banni. Annar bakvörður er settur í miðvörð og miðjumaður í bakvörðinn. Báðir eru þeir hlaupandi úr stöðu trekk í trekk og vörnin er þ.a.l. í molum. Í minni sveit kallast þetta skýr skilaboð til Einars um að krafta manns sé ekki óskað.
|
|
 Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 16.04.09 Bréf: 125 Staður: Reykjavík
|
Það er einmitt talað um að ein af aðalástæðunum sem við héldum hreinu í þessum tveimur leikjum var vegna þess að miðvörðurinn Greg Ross fékk loksins að spila í miðverði!
Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 19.05.09 Bréf: 4
|
Borko skrifaði:
Að ekki sé talað um stöðu Einars Marteins. Miðvörður er meiddur og bakvörður sem hefur leyst hann af er í banni. Annar bakvörður er settur í miðvörð og miðjumaður í bakvörðinn. Báðir eru þeir hlaupandi úr stöðu trekk í trekk og vörnin er þ.a.l. í molum. Í minni sveit kallast þetta skýr skilaboð til Einars um að krafta manns sé ekki óskað.
Rétt er það! Steingleymdi Einari!
|
|
|
Guest |