Mig langar að þakka stjórn Knattspyrnudeildar fyrir að taka á móti okkur sem mættum á fundinn í kvöld (26.ágúst) og fengum þessa fínu fræðslu um Hlíðarendann...aðstöðuna...þjálfaramálin og leikmannamálin auk þess sem þeir svöruðu öllu sem okkur langaði að vita og tóku þátt í pælingum um það hvað hægt er að gera til að bæta stöðuna og móralinn hjá áhangendum Vals.
Við fjögur...sem mættum...fórum sátt og ánægð út og ætlum að halda áfram að mæta á leiki og viðburði hjá félaginu...halda áfram að hvetja okkar menn og reyna að leiða hjá okkur neikvæðar gagnrýnisraddir sem heyrast...en virðast ekki eiga nein andlit.
Enginn af þeim sem hafa látið skoðanir sínar í ljós hér á spjallþræðinum sáu sóma sinn í að mæta og standa augliti til auglitis við stjórnarmeðlimi og takast á um ágreiningsatriði og óánægju sem virðist krauma þarna úti...
Enginn af spjallþræðinum kom á staðinn til að standa með sjálfum sér og skoðunum sínum...ræða málin og kryfja þau til mergjar.
Enginn af spjallþræðinum nýtti sér þann vettvang sem skapaður var til að setjast niður og heyra hina hliðina á málinu...koma með hugmyndir að breytingum...láta í ljós óánægju eða leita lausna.
Hvort það er vegna þess að menn skortir dug og þor veit ég ekki...en þetta virðist vera þekkt vandamál hjá félaginu...menn brjóta niður og gagnrýna hægri vinstri...en þegja þunnu hljóði þegar þeim er boðið að koma og ræða málin. Það er ekki sérlega drengilegt. Það er örugglega ekki það sem séra Friðrik meinti þegar hann hvatti sína menn til „að halda áfram á þeirri braut sem þeir höfðu lagt út á og áminnti þá jafnframt um heiðarleika í leik og starfi og að friður, kærleikur, samheldni, fegurð og atorka ætti að ríkja í starfinu og aldrei ætti að þrífast neitt ósæmilegt og ljót.“
Hans einkunnarorð voru skýr: Látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliði. :d/
Í stað þess að gagnrýna...brjóta niður og bölsótast út í allt og alla...leita að sökudólgum og blórabögglum og kalla alltaf eftir einhverjum ábyrgðarmönnum, held ég að við sem berum hag Vals fyrir brjósti ættum að einbeita okkur að því að koma jákvæð og heiðarleg til leiks...hvetja okkar menn áfram og sýna þeim að við stöndum saman í blíðu og stríðu. Það er mín trú að allir leikmenn og þjálfarar gangi inn á völlinn með það að markmiði að gera sitt besta...en svo geta menn átt góða eða slæma daga. Þannig er lífið bara...það skiptast á skin og skúrir.
Þeir þurfa á stuðningi okkar að halda...finna að við stuðningsmenn höfum trú á þeim og því sem þeir eru að gera...og það er okkar hlutverk að vera til staðar fyrir þá...alltaf.
Það eru örfáir leikir eftir og nú hvet ég alla til að mæta og styðja strákana...láta þá finna að þeir séu ekki einir...heldur hafi öfluga og sterka stuðningsmenn sér til halds og trausts á áhorfendapöllunum,heiðarlegan og heilsteyptan bakhjarl sem lætur ekki mótlætið beygja sig eða brjóta.
Verum jákvæð,sterk og samtaka í að gera síðustu leikina að þeim skemmtilegustu og ánægjulegustu...koma svo...ÁFRAM VALUR!