Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

G.Þ. Valkostir
Borko
Skráð: 25. August 2010 21:24
Staða: Nýliði

Skráði sig: 10.03.09
Bréf: 1
Staður: Reykjavík
Ef Guðjón Þórðarson verður ráðinn þjálfari Vals skila ég árskortinu mínu sundurklipptu.

Hvet aðra til að gera slíkt til sama.
elvis
Skráð: 25. August 2010 23:11

Staða: Nýliði

Skráði sig: 14.05.09
Bréf: 4
Staður: Rvk
Full gróft að skila inn árskortinu ef G.Þ. verður verður ráðin maðurinn er bjáni!!! en hann er góður þjálfari......
jhv
Skráð: 26. August 2010 00:01
Staða: Nýliði

Skráði sig: 11.05.10
Bréf: 1
Staður: reykjavik
gett allavega sagt ef þessi frétt kemur fram hjá RÚV þá er eitthvað til í henni þetta er ekki í DV eða Fð fótbolta.net
Nú ef þetta er ekki komi frá stjórninni þá er þetta einhverjir áhrifa menn innan félagsins sem eru hreint og beint verið að vinna gegn henni bakvið tjöldin...sem mér skilst nú að sé ekkert nýtt hjá þessu félagi.

þetta er ekki gott mál.
þórður
Skráð: 26. August 2010 00:08
Staða: Nýliði

Skráði sig: 03.05.10
Bréf: 0
Staður: Rvk
Borko skrifaði:
Ef Guðjón Þórðarson verður ráðinn þjálfari Vals skila ég árskortinu mínu sundurklipptu.

Hvet aðra til að gera slíkt til sama.

Ég er fullkomlega sammála.

Það væri það versta í stöðunni að ráða G.Þ.

Við skulum vona að þetta eru illar sögusagnir.
G-Jör
Skráð: 26. August 2010 00:30
Staða: Nýliði

Skráði sig: 30.07.09
Bréf: 0
Staður: Hlíðarendi
Sammála Borko. Ég mæti á hvern einasta leik Vals en mér myndi ekki detta til hugar að mæta á leik ef mannsvínið hann Guðjón Þórðarson væri að þjálfa liðið. Síkópati af verstu gerð.

Ef satt reynist að stjórnin sé að losa sig við Gunnlaug þá vitum við allavegana eitt og það er að þeir hafa ekki staðið við orð sín, sem voru; "að Gunnlaugur fengi mikinn tíma til að þróa liðið."

Ég veit að Séra Friðrik er búinn að snúa sér í gröfinni oftar einu sinni yfir þeim stjórnarháttum sem eiga sér stað að Hlíðarenda en við skulum ekki gera kallinn ringlaðann.

Kveðja,
GJ
EinsiB
Skráð: 26. August 2010 01:24
Staða: Nýliði

Skráði sig: 07.07.09
Bréf: 1
Staður: 101
G-Jör skrifaði:
Ef satt reynist að stjórnin sé að losa sig við Gunnlaug þá vitum við allavegana eitt og það er að þeir hafa ekki staðið við orð sín, sem voru; "að Gunnlaugur fengi mikinn tíma til að þróa liðið."

Látum það liggja milli hluta að ég og Gulli erum systkinabörn, en ég er samt orðinn þreyttur á því að alltaf er talað um að gefa þjálfurum tíma til að þróa liðið og þeir eru svo reknir um leið og úrslitin láta á sér standa.

Willum var rekinn á mjög einkennilegum tíma og Atli var ekki búinn með síðasta leik þegar fréttirnar af ráðningu Gulla láku út. Hvernig var staðið að þeirri ráðningu var svo fyrir neðan allar hellur og gerði ekkert nema að skaða félagið og setja mjög leiðinlegan blett á annars frábært tímabil hjá Gulla á Selfossi.

Valur er því miður ekki í sömu aðstöðu og sum úthverfafélögin að hafa 60-70 stráka í hverjum flokk þannig að við getum ekki farið alveg sömu leið og t.d. Breiðablik sem hafa byggt upp eitt sterkasta lið landsins aðallega á ungum, uppöldum leikmönnum.

Það sem við getum hins vegar gert er að skapa umgjörð hjá félaginu sem gerir það að verkum að leikmenn sem vilja ná árangri kjósa að koma til félagsins. Það þýðir að ungir leikmenn þurfa að skynja það að á Hlíðarenda fái þeir tækifæri til að skara fram úr.

Nú þekki ég ekki nógu vel til að meta afreksmannastefnu Knattspyrnudeildar, en ég vona að menn séu á tánum sem að henni starfa og séu að gera eitthvað meira en útbúa flottar glærur með háleitum markmiðum. Vitleysan sem átti sér stað þegar Ingólfur Sigurðsson gekk í KR eftir tveggja mánaða veru hjá Val þegar hann kom heim frá Heerenveen gefur ekki góð fyrirheit um umgjörðina utan um yngri flokka starfið. Þetta gerðist á sama tíma og Toggi þurfti að taka að sér að þjálfa 2. flokkinn því fráfarandi þjálfari hafði ekki tíma til að sinna þjálfuninni lengur...

Spörum okkur eins og 1-2 erlendan leikmann og göngum úr skugga að yngri leikmenn Vals séu að fá bestu mögulega þjálfun og fyrr en síðar munu leikmenn sjálfir kjósa að ganga í Val burtséð frá stærð launaumslagsins. Það gæti þýtt einhver mögur ár en við sjáum bara hvað það hefur kostað félagið að tjalda til einnar nætur með því að kaupa til sín leikmenn.

-- Einar Halldórsson
Pétur Óli
Skráð: 26. August 2010 09:19
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 29.05.09
Bréf: 6
Staður: Rvk
EinsiB skrifaði:

Vel mælt.

Við ætluðum að byggja upp með Gulla, við verðum að standa við það. Við verðum að sýna þjálfurum það að við stöndum við okkar áætlanir. Stjórn Vals hlýtur að hafa vitað af reynsluleysi Gulla sem þjálfara og tekið það með í áætlanirnar. Ef Gulli væri á þriðja eða fjórða ári þá litu málin allt öðruvísi út.

Annars er Guðjón góður þjálfari. Hann má eiga það að hann getur bitið frá sér.
Skaginn
Skráð: 26. August 2010 19:58
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Guðjón Þórðarson VAR án efa mjög góður. Þegar hann var með ÍA fyrir rúmum 20 árum síðan og svo landsliðið en einsog allir þá eldast þeir og missta taktin. Guðjón er dæmi um þjálfara sem var mjög góður en hefur lítið sýnt síðustu 10 árin. Mín skoðun er að að Valsmönnum vantar ferskan þjálfara með smá reynslu. Það er kannski ekkert mjög margir sterkir kostir í boði en það er samt einhverjir.
Pétur Óli
Skráð: 27. August 2010 23:40
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 29.05.09
Bréf: 6
Staður: Rvk
Stjórn knattspyrnudeildar er farin og má þá ekki gera ráð fyrir að það sé búið að ráða Guðjón Þórðarson (amk búið að ákveða slíkt).

Orðrómur kemur upp ->Guðjón neitar að haft hafi verið samband við sig -> Gulli neitar að tjá sig -> Stjórn segir ekkert hæft í þessum orðrómi -> Stjórnin kannar örugglega hvort einhverjir aðrir Valsarar séu á bakvið þetta -> Stjórn knd. kemst að því að aðalstjórn eða einhverjir mætir Valsara hafa verið í sambandi við Gauja -> Stjórnin fer -> Gaui er á leiðinni og Gulli á útleið.

Enn einu sinni virðist kappið vera svo mikið að þjálfarinn fær að fjúka. Árangur síðasta árs og þessa árs er ekki til að hrópa húrra fyrir. Það var réttlætanlegt að kaupa fyrst til að tryggja okkur sæti í efstu deild. En nú höfum við náð því og náð titli eftir að við komum upp. Því er rétt að byggja núna upp og leyfa heimamönnum að spila stærri rullu á vellinum.

Maður kemur í manns stað, en það er samt ekki gott ef stjórnin hættir með þessum hætti eða ef við skiptum ört um þjálfara.
Fridjon
Skráð: 27. August 2010 23:54
Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 19.08.10
Bréf: 5
Staður: Garðabær
Guðjón Þórðarson er ekki á leiðinni til Vals.
Gulli er þjálfari Vals, ekkert hefur breyst í því.

Valskveðja
Friðjón Friðjónsson
Loftur
Skráð: 28. August 2010 11:17
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 27
Staður: 101
Ef menn eru á þeim buxunum að ætla skipta um þjálfara þá held ég að Eyjólfur Sverrisson væri eini maðurinn í starfið, maður með nafn og reynslu. Annars styð ég Gulla út tímabiliðið engin spurning um það, en auðvitað þarf að skoða tímabilið í heild sinni þegar það lýkur.
King
Skráð: 28. August 2010 13:00
Staða: Nýliði

Skráði sig: 26.05.09
Bréf: 0
Sælir

Menn eru að gera stór mistök að standa og falla með gulla..............Þeir sem hafa mætt á leikina hljóta að sjá það

Menn voru fúsir til að viðurkenna það að mistök hafi verið að ráða hann (stjórnin) en Hörður og aðalstjórnin neituðu að Gulla yrði sagt upp en neita samt að standa algjörlega við bakið á honum gefa honum tímabilið..

Guðjón var aldrei á leiðinni það voru allt aðrir menn sem voru á teikniborðinu..Mínar heimildir segja að það hafi verið Gulli sjálfur sem lak þessu öllu til vinar síns á rúv Hjört hjartar og það hafi verið ástæða fyrir að fráfarandi stjórn gat ekki þakkað jonum vel unnin störf

Gulli leiddi hallarbyltingu á hlíðarenda sem endaði á þennan veg
Frakkinn
Skráð: 28. August 2010 15:01
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 8
Staður: Milly la Foret, Frakkland
Tek bara undir orð King´s.

Gulli kom óróanum af stað til að reyna að styrkja sig í ímyndaðri baráttu við stjórnina.

Það stóð aldrei neitt annað til en að Gulli kláraði tímabilið.

jhv
Skráð: 28. August 2010 15:09
Staða: Nýliði

Skráði sig: 11.05.10
Bréf: 1
Staður: reykjavik
það verður nú að viðurkennast að umræða um uppbyggingu er innantómt tal ef það á alltaf að vera skipta um þjálfara..
Lítið að Blika Óla gekk ekkert allt of vel til að byrja með en menn stóðu að baki þeirri ákvörðun sem þeir tóku þ.e. að velja hann til að byggja upp...

Þú vilt ekki koma inn í fyrirtæki þar sem alltaf er verið að skipta um stjórnanda menn vita ekkert hvað er í gangi...

Menn verða að sýna þolinmæði og þrautseigu ef einhver vilji er til að byggja upp og standa við þá ákvarðanir sem teknar eru.

Þetta rugl sem hefur verið á Knd. síðasta misseri skaðar líka bara allt félagið út á við...það er meira en fótbolti í Val.

Vill að menn sýni smá þolinmæði. vissulega var það djörf ákvörðun að ráða svona ungan þjálfara til að stjórna uppbyggingu en hún var tekinn og þá verða menn að sýna þolinmæði..

áfram Valar
Notendur að skoða þetta bréf
Guest

Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.