Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Opna Norðlenska Valkostir
Svenni
Skráð: 9. September 2010 21:25
Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 130
Staður: Reykjavík
Handboltaveisla í Höllinni um helgina
Nú um helgina hitum við rækilega upp fyrir komandi handboltavertíð. Eitt af sterkustu æfingamótum haustsins verður hér á Akureyri og er Norðlenska bakhjarl mótsins sem nefnist fyrir vikið Opna Norðlenska.

Auk Akureyri Handboltafélag taka þátt úrvaldsdeildarliðin FH, Fram og Valur auk þeirra koma 1. deildarliðin Grótta og Stjarnan. Leikið verður í tveim riðlum, annarsvegar Akureyri, Grótta og Fram en í hinum riðlinum eru Valur, FH og Stjarnan.

Leikið verður í Íþróttahöllinni og er leikjafyrirkomulagið sem hér segir:
Föstudagur 10. september
Kl. 16:30 Akureyri - Grótta
Kl. 18:00 Valur - Stjarnan
Kl. 19:30 Grótta - Fram
Kl. 21:00 Stjarnan - FH

Laugardagur 11. september
Kl. 09:30 Fram - Akureyri
Kl. 11:00 FH - Valur
Kl. 12:30 5 - 6 sæti.
Kl. 14:00 3 - 4 sæti.
Kl. 15:30 1 - 2 sæti.

Aðgangur á mótið kostar kr. 1.000- og gildir miðinn á alla leiki mótsins. 15 ára og yngri greiða 500 krónur.

Tekið af: http://www.akureyri-hand.is/index.php?frettanr=1009070
Svenni
Skráð: 11. September 2010 09:05
Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 130
Staður: Reykjavík
Nú er lokið fyrri degi Opna Norðlenska mótsins
Akureyri – Grótta
Í fyrsta leik mættust Akureyri og Grótta þar sem Akureyri byrjaði vel og komst í 4-2 en þá sneru Gróttumenn dæminu við, skoruðu næstu fimm mörk og komust í 4-7 áður en Akureyri komst á blað á ný. Gróttu hélt forystunni út hálfleikinn og leiddu 12-15 þegar flautað var til hlés.

Það var ekki fyrr en í stöðunni 24-24 sem Akureyri tókst að jafna leikinn en náðu aldrei frumkvæðinu og Grótta sigraði að lokum með einu marki 27-28.

Akureyri saknaði sárlega Guðmundar Hólmars Helgasonar sem meiddist á æfingu í gær og liðið náði sér aldrei almennilega á flug. Hins vegar léku Gróttu menn afar vel í leiknum og verða greinilega til alls vísir í 1. deildinni í vetur.

Mörk Akureyrar skoruðu: Bjarni Fritzson 8, Geir Guðmundsson 6, Heimir Örn Árnason og Oddur Gretarsson 4 hvor, Hörður Fannar 3, Daníel Einarsson og Guðlaugur Arnarsson 1 mark hvor.
Hjá Gróttu var Hjalti Pálmason atkvæðamestur með 9 mörk.

Valur – Stjarnan
Annar leikur dagsins var á milli Vals og Stjörnunnar, leikurinn var hnífjafn mestallan fyrri hálfleikinn, jafnt á nánast öllum tölum upp í 10-10 en Valsmenn sigu fram úr í lokin og voru 14-11 yfir í hálfleik. Valsarar sigu síðan fram úr eftir því sem leið á seinni hálfleikinn og fóru að lokum með sex marka sigur 25-19. Áhorfendur í höllinni veittu sérstaka athygli vinstra hornamanni Stjörnunnar sem er enginn annar en Bjarni Jónasson, fyrrum leikmaður Akureyrar.

Anon Rúnarsson var iðinn við markaskorun hjá Val, skoraði 7 mörk en hjá Stjörnunni voru Tandri, Vilhjálmur og Guðmundur með 4 mörk hver. Maður leiksins var tvímælalaust markvörður Stjörnunnar sem átti stórleik.


Grótta – Fram
Þriðji leikur dagsins var síðan á milli Gróttu og Fram. Gróttuliðið sýndi töluverða mótspyrnu framan af leik en ljóst var að menn voru þreyttir eftir fyrsta leikinn og því náðu frískir Framarar fljótlega yfirhöndinni. Hálfleiksstaðan 9-14 Fram í vil.

Sá munur jókst síðan jafnt og þétt og endaði leikurinn með öruggum sigri Fram 24-35. Hjalti Pálmason var enn sem fyrr markahæstur Gróttumanna með 6 mörk en hjá Fram var Halldór Sigfússon markahæstur með 5 mörk en markaskorunin dreifðist mjög hjá liðinu.

Í liði Fram eru Akureyringarnir Halldór Jóhann Sigfússon og bræðurnir Magnús og Hákon Stefánssynir frá Fagraskógi en nú hefur Heiðar Þór Aðalsteinsson bæst í hóp Akureyringa í Framliðinu.

Stjarnan – FH
Lokaleikur dagsins var á milli Stjörnunnar og FH. Stjarnan var sem sé að leika sinn annan leik eftir stutta hvíld og líkt og hjá Gróttumönnum kom í ljós að fyrri leikurinn hafði tekið sinn toll. FH sem spilaði mjög hraðan bolta tók öll völd á vellinum en Stjarnan klóraði í bakkann og munurinn aðeins fjögur mörk í hálfleik, 12-16 fyrir Stjörnuna.

FH ingar hertu tök sín á leiknum í seinni hálfleik og unnu loks tíu marka sigur 24-34.

Hjá FH var Ásmundur Friðriksson drýgstur með 6 mörk en Tandri skoraði sömuleiðis 6 mörk fyrir Stjörnuna.

Á laugardagsmorgunn kl. 9:30 mætast Akureyri og Fram og þar á eftir klukkan 11:00 Valur og FH. En þar á eftir verða þrír leikir um sæti.

Nánari fréttir og myndir frá mótinu koma á morgun.
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.