Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Æfingaleikur á Akranesi Valkostir
Heiða í Dal
Skráð: 6. December 2009 21:39

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 13.10.09
Bréf: 28
Staður: Reykjavík
< Breytt >

ÍA-VALUR - Lau. 5. des kl. 10:45 - Akraneshöllin.
Eins og Gunnlaugur þjálfari boðaði var spilað á tveimur blönduðum liðum þennan leik. Aðeins einn leikmaður spilaði allan leikinn sem var Ásgeir Þór Magnússon markvörður. Kjartan Sturlu og Haraldur Björnsson voru báðir frá vegna meiðsla.

Fyrri hálfleikur:
Ásgeir Þór Magnússon
Stefán Eggertsson - Reynir Leósson - Einar Marteinsson - Ellert Finnbogi Eiríksson
Rúnar Már Sigurjónsson - Sveinn Ingi Einarsson
Guðmundur Steinn Hafsteinsson
Baldur Aðalsteinsson - Arnar Sveinn Geirsson - Þórir Guðjónsson


Heilt yfir mjög góður fyrri hálfleikur og vorum verðskuldað 2-0 yfir. Ásgeir Þór varði vel vítaspyrnu frá Andra Júlíussyni.
Mörk Vals skoruðu Þórir Guðjónsson og Guðmundur Steinn Hafsteinsson.

Seinni hálfleikur
Ásgeir Þór
Albert Þór - Atli Sveinn Þórarinsson - Leifur Bjarki Erlendsson - Baldur Þórólfsson
Rafn Heiðdal - Magnús Þórsson
Jón Vilhelm Ákason
Atli Sigurðsson - Viktor Unnar - Hafþór Vilhjálmsson


- Atli Sigurðs meiddist eftir 20 mín leik og Þórir Guðjónsson kom í hans stað.

Í seinni hálfleik náðum við aldrei takt í okkar leik og fengum frekar ódýr 3 mörk á okkur og niðurstaðan 3-2 heimamönnum í vil.

Næsti leikur, og sá síðasti fyrir jólafrí er næstkomandi laugardag gegn HK í Kórnum kl. 10:00.
Skaginn
Skráð: 7. December 2009 10:50
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Það sést að hér að verið að spila á ungum strákum að mestu leyti og það er jákvætt. Sérstaklega gaman að því að Valur er að byggja upp og gaman að sjá að Baldur Þórólfs og fleiri góðir eru komnir aftur í Val. Tap engu að síður en ég er sáttur við þetta.
jonasdoe
Skráð: 7. December 2009 11:35
Staða: Nýliði

Skráði sig: 07.12.09
Bréf: 0
Staður: rvk
Allt önnur mynd að koma á Valsliðið og það er bara gott. Annars er ég að fýla þennann nýja markmann hvaðan kemur hann ?
Gastone
Skráð: 7. December 2009 12:54
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 18.10.08
Bréf: 24
Staður: Mosó
Hann er uppalinn Leiknismaður... að ég held kom í fyrra og spilaði með 2 flokki seinasta sumar..
Ási Sveinss
Skráð: 7. December 2009 13:00
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
sókndjarft og skemmtilegt =) Verður gaman ef af verður næsta sumar....

ÁFRAM VALUR !!
jonasdoe
Skráð: 7. December 2009 13:57
Staða: Nýliði

Skráði sig: 07.12.09
Bréf: 0
Staður: rvk
Já ókei frábært , það sést að Gulli er virkilega að gefa þessum ungu strákum séns og ég er ekki frá því að þessi markmaður og Þórir sem hefur verið á kantinum líta mjög vel út. Ég meina ég hafði aldrei séð þessa leikmenn þegar Willum og Atli voru þjálfarar. Svo er ég ekki frá því að Stefán sem var fenginn frá HK hefur leyst hægri bakvarðastöðuna mjög vel og efast ég ekki um það að hann muni veita Steinþóri mikla samkeppni..
finnur
Skráð: 8. December 2009 12:55
Staða: Nýliði

Skráði sig: 11.05.09
Bréf: 0
Hvar eru menn eins og Kjartan, Matti, Bjarni, Bjössi, Jeffs og þeir sem hafa ekkert verið að spila? Nenna þeir ekki að spila eða bara ekki í neinu formi núna? Komast þeir kannski bara ekki í liðið? Hvernig er ástandið á þessum mönnum samt og hvað ætlar Marel að gera(maður hefur heyrt að hann sé að æfa )?
Heiða í Dal
Skráð: 9. December 2009 09:47

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 13.10.09
Bréf: 28
Staður: Reykjav&amp;#237;k
Haraldur og Kjartan markmenn eru lítillega meiddir, og spiluðu því eðlilega ekki. Bjössi, Bjarni, Matti og Ian Jeffs eru bara í fríi enda eru þessir leikir aðallega settir upp til að skoða yngri og efnlilega spilara þó að nokkrir 'established' leikmenn fljóti með.

Gunnlaugur þjálfari og hans teymi eru að senda út góða pósta eftir þessa leiki þar sem farið er létt yfir hvað var á seyði í hverjum leik. Aðeins þarf að senda póst á knattspyrnufelagidvalur@gmail.com til að komast á þann póstlista.

Mæli með því!
Frakkinn
Skráð: 9. December 2009 15:04
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 8
Staður: Milly la Foret, Frakkland
Mér finnst það flott framtak hjá Gulla að senda út svona rafpósta og ég mun skrá mig á þennan lista.

En getur Gulli ekki bara sett þetta hérna inn á spjallborðið?

Mér finnst að fleiri ættu að taka hann nafna minn í Handboltanum til fyrirmynda og skella upplýsingum hér á spjallborðið!

Takk fyrir flott framtak Svenni!

Klappa Klappa Klappa Klappa Klappa Klappa Klappa Klappa



Valskveðja

Frakkinn.
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.