|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 25.05.09 Bréf: 6
|
Sælir Valsmenn og gleðilega hátíð.
Mig langar bara að lýsa yfir furðu og virkilegri óánægju með þá ákvöðun þjálfara mfl.kvenna í handknattleik að láta Nínu K.Björnsdóttur spila gegn Haukum. Það var vitað mál að hún var EKKI með leikheimild og því finnst mér ábyrgðarleysi og hrein vanvirðing við keppnina og andstæðinginn að tefla fram leikmanni sem í leyfisleysi, svo ekki sé minnst á hegðun gagnvart leikmanninum sjálfum.
Þrautreyndur þjálfari eins og Stefán sem og liðstjórn hlýtur standa klár á samningsmálum leikmanna og mér finnst þessi framganga mjög döpur öll.
Orð stofnanda Vals, "Látið kappið aldrei bera fegurðina ofurliði", eru lítilsvirt í þessu máli.
Það væri gaman að heyra hvað hinum almenna Valsmanni finnst um þetta.
Með Valskveðju yfir hátíðarnar.
Ragnar Vignir.
ps: Hinsvegar er ávallt ánægjulegt að sjá nýja leikmenn Vals (Nínu K.) á velli, en eingöngu þegar þeir hafa heimild til þess
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Já ég mætti á leikina og það er leitt að stórlið Vals þurfi að nota leikmann einsog Nínu en annars finnst mér þessi keppni vera hálfgert rugl eða FH tapar með 11 marka mun eða var það 9 mörk. Bæði Haukar og Valur voru líka að spila á ungum liðum þó Haukar voru með lykilmenn í sínum liðum ólíkt Val. Flottara væri að það yrði gerður stjörnuleikur þar sem tveir þjálfarar myndu velja kannski 12 leikmenn t.d Aron og Óskar Bjarni. Svo væri hægt að hafa líka skotkeppni og listir auk leiks milli gamalla keppna. Kannski hörku dagskrá frá hádegi til kvölds. 13-19
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 25.05.09 Bréf: 6
|
Leitt eða ekki leit varðandi Nínu er eitt, en ég er sammála þér með að þessi keppni er hálfgert grín. En óháð gríni eða einstökum leikmönnum þá er mjög leitt fyrir knattspyrnufélagið Val í heild að dragar inn í umræðu um "ólöglega" leikmenn.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 27.02.09 Bréf: 33
|
Ég er algjörlega sammála því að það að nota ólöglega leikmenn er eitthvað sem á ekki að líða. Í því felst mikið virðingarleysi við vinnu fólks og tíma og liðanna sem um ræðir. Óskiljanlegt hvort sem þetta var gert af hugsunarleysi eða meðvitað.
Áfram Valur
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 34 Staður: Rivertown
|
Fínt bara að hún hafi fengið nokkrar mínútur þarna, þessi keppni skiptir engu máli og er hálfgert djók þar sem liðin eru ekki að mæta með sín sterkustu lið.
|
|
Staða: Stjórnandi
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 130 Staður: Reykjavík
|
Sælir félagar.
Varðandi þá ákvörðun að láta Nínu spila þá gerðu þjálfararnir sín á milli heiðursmannasamkomulag um að leyfa Nínu að spila, svo þegar á hólminn var komið var stjórn Hauka ekki á sama máli og þjálfarinn og kærðu því leikinn.
Varðandi þessa keppni þá finnst mér margt jákvætt við hana þó svo að liðin séu ekki endilega að spila á sama byrjunarliði og í deildinni og gaman að sjá okkar ungu og efnilegu leikmenn spreyta sig. Ég verð að segja að þeir stóðu sig margir mjög vel í dag og ljóst að framtíðin er björt á Hlíðarenda, gömlu mennirnir sem léku í dag eru 22 - og 23 ára aðrir eru á yngsta ári í örðrum flokki og einn á yngra ári í þriðja flokki.
Áfram Valur
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 29.05.09 Bréf: 6 Staður: Rvk
|
Er þetta ekki algjör B keppni? Þetta mun þróast eins og deildarbikarinn á englandi. Liðin munu senda mjög breytt lið til leiks, til að aðrir fái tækifæri.
Ég held að HSÍ hafi algjörlega skotið sig í fótinn með því að vera að veltast með hvort halda ætti keppnina. Það eitt downgradaði þessa keppni töluvert.
Hins vegar er ég sammála málshefjanda að það á ekki að líðast að tefla fram leikmanni án heimildar. Það á heldur ekki að líðast að lið geti ,,samið'' um eitthvað annað fyrirkomulag. Þetta voru ekki æfingaleikir, þetta var jú keppni.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 27.02.09 Bréf: 33
|
Skýring Svenna finnst mér breyta þessu máli töluvert og ég get skilið að menn semji um svona hluti. Hins vegar gerir stjórn Hauka þjálfarann og ómerkingi orða sinna og hann getur varla verið sáttur við að láta taka svona fram fyrir hendurnar á sér.
Ég held að það sé hægt að gera öll mót þannig úr garði að þau trekki fyrir áhorfendur og klárlega þetta mót. Þetta er spurning um afstöðu þjálfaranna þ.e. hvaða liðum þeir stilla upp og hversu mikla áherslu þeir leggja á að sigra mótið með tilheyrandi fjölmiðlaumfjöllun.
Áfram Valur
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 18.10.08 Bréf: 24 Staður: Mosó
|
Málið er félaginu til skammar ... "heiðursmannasamkomulag" og ef það er gert þá hlýtur að þurfa gera það skriflegt með samþykki stjórnar Hauka líka og HSÍ....
Þessi heiðursmannasamkomulög hafa nú ekki verið burðug gagnvart okkur Valsmönnum í gegnum tíðina.
Algjörlega sammála Ragnari með þetta allt saman.... Keppninni sem og leikmönnum beggja liða er sýnd mikil óvirðing með því að stilla upp ólöglegum leikmanni....
Þetta sýnir bara svart á hvítu hvaða metnað menn hafa fyrir þessari djók keppni....
Áfram Valur
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 25.05.09 Bréf: 6
|
Sælir félagar.
Að mínu mati eru það formenn deilda þ.e. æðstu yfirmenn handbolta hvers félags sem þurfa að semja og fá svo undanþágu hjá HSÍ svo að "heiðursmannasamkomulag" sé gilt. Eins og ég hef heyrt var ekki um slíkt að ræða hér heldur mun einfaldari úrlausnir sem ekki fólu í sér samskipti neinna stjórnarmanna. Það stenst vitaskuld ekki lög HSÍ og því finnst mér þetta vera klúður þjálfara sem setur svartan blett á keppnina og bæði félög í því miður. En þessu verður ekki breytt úr þessu og því vonandi að menn ræði, og læri af þessu til framtíðar.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 28.12.09 Bréf: 2
|
Hefði ekki verið eðlilegast að þegar þjálfarinn var spurð hvort að hún myndi setja sig upp á móti því að Nína myndi spila þennan tiltekna leik, að hún hefði vísað málinu til stjórnar eða rætt málin við þá áður en hún gaf svar sitt. Svo getur maður spurt sig hvort að úrslitin í leiknum hafi ekki haft þessi áhrif á það sem eftir kom.
Spurning hvernig Haukastelpum líður þegar þær ganga inn á völlinn til að taka þátt í úrslitaleiknum, áfram Framstelpur...
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 04.06.09 Bréf: 2
|
Púslin eru að detta á sinn stað í þessu máli og það lítur út núna að Haukar hafi lagt gildru fyrir Val: Fá Val til að spila þessum leikmanni og þá eru Haukar komnir í úrslit sama hvað. Heiðursmannasamkomulag, það virðist tilheyra 19.öldinni. Jólaandinn virðist ekki heldur hafa verið til staðar þarna.
Ég get svo sem ekki áfellst Haukana fyrir þetta. Þessi keppni er klárlega mikilvægasta keppni Íslands og hefur sérstakan virðingarstatus. Liðin eru að fórna öllu í þetta og við sjáum það í karlaboltanum sem dæmi að liðin eru að spila á sínum langsterkustu mönnum og sum liðin jafnvel að leigja atvinnumenn hingað til að spila og hjálpa til við að landa þessum mikilvæga titli. Haukar gerðu bara það sem öll lið hefðu gert.
Nei ég meina er ekki Rás tvö að velja mann ársins og allt það, er ekki kosning um brandara ársins? Má þessi ekki vera þar?
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 28.10.08 Bréf: 31 Staður: Kópavogur
|
Það er rétt að stjórn Hauka hefur gert orð Díönu Guðjónsdóttur þjálfara kvennaliðs Hauka að ómerkingi orða sinn og verður eflaust erfitt fyrir nokkurn mann að taka mark á henni eftir þetta -
Stjórn Hauka hefur hér eyðileggja samskipti þessara félaga - þetta gleymist ekki - það greynilega marklaust að gera heiðursmannalamkomulag við þenn klúbb -
Ég bendi mönnum á viðtal við Hrafnhildi Skúladóttur í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld - ég er sammála henni það er skítalikt af þessu máli -
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 6 Staður: RKV
|
Þetta er þá þakklætið fyrir að leyfa þessu liði að spila að Hlíðarenda í sumar í knattspyrnunni. Annars er maður kominn með nóg af þessum heiðursmannasamkomulögum öllum saman, það er ekki hægt nema um heiðursmenn sé að ræða, ekki einhverja ómerkinga úr Haukum....
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 29.05.09 Bréf: 6 Staður: Rvk
|
Framkoma Hauka virðist nú ekki vera íþróttamannleg og tæplega í anda KFUM.
En við getum í sjálfu sér ekki stjórnað skítlegu eðli Haukamanna. Við getum hins vegar stjórnað okkar hegðun og framkomu.
Það er vel mælt þegar einn okkar skrifar hér að þessi heiðursmannasamningar séu ekki merkileg. Svona samkomulag er þríþætt. Það snýr að umræddum félögum, en þetta snýr líka að hinum félögum í keppninni. Samkomulag eins og þetta getur ekki talist einkamál Hauka og Vals. Hér hefði verið eðlilegt að fá álit HSÍ. Við megum ekki gleyma því að hér er verið að sveigja reglur og ef við megum sveigja reglur, er þá ekki lágmark að öðrum félögum gefist tækifæri til þess líka?
Ég er ekki góður handboltamaður, sjálfsagt væri ég síðri þjálfari og ekki er ég viss um hversu góður stjórnarmaður ég væri. En það að leita álits HSÍ er algjört grundvallaratriði að ég er nokkuð viss um að ég hefði leitað þeirra samþykkis.
Nú er kominn tími á að félagið fari að læra af sínum mistökum, við skulum fara varlega í alla heiðursmannasamninga.
|
|
|
Guest |