Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Bikardraumur 27.febrúar ! Valkostir
Svenni
Skráð: 14. February 2010 22:50
Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 130
Staður: Reykjavík
þá er það ljóst að við verðum með bæði liðin í höllinni 27.febrúar. Þetta er líklega í fyrsta skipti sem Valur spilar með bæði lið í úrslitum bikarsins og nokkuð ljóst að um mikla hátíð verður að ræða hjá okkur Valsmönnum þennan dag. Djö.... hlakka ég til.

Áfram Valur
tómatsósa
Skráð: 14. February 2010 22:58
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 28.04.09
Bréf: 8
Staður: Reykjavík
Þetta verður svakalegt! Valsarar munu eiga höllina þennan dag! Spái að Valur vinni báða leikina með einu marki...háspenna lífshætta frá því í gamla daga.......
Skaginn
Skráð: 15. February 2010 12:47
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Já það tók á að horfa uppá leikina enda spennan alveg mögnuð. Verja 5 víti í leik og tapa(Florentina G) átti svakalegan leik. Strákarnir í Gróttu spiluðu bara ágætlega en að vísu var dómgæslan þeim til happs því að með dómarana með sér í liði lengi vel þá komust þeir inn i leikinn en Valsstrákarnir áttu ágætis dag eða Siggi var sterkur og gaman að sjá hann aftur. Baldvin á eitthvað inn sem og aðrir. Annars er mjög flott að Valur eigi tvö lið í úrslitum og ekki er verra að við fáum tvö af bestu liðum landsins eða Hauka og Fram. Með fullri virðingu fyrir öðrum liðum þá held ég að það hafi ekki verið svona flott bikarúrslit í mjög langan tíma. Ég er bjartsýnn á sigur en þetta verður erfitt og ég spái hörkuleik þar sem 1-2 mörk skilja liðin af nánast allan leikinn. Spá Valur-Fram(25-23) og Valur-Haukar(27-27) e fyrri hluta framlengingu (2-3) en í seinni taka valsmenn 4-2 og vinna því 33-32 hreint svakalegt. Það verður fullt á leikjunum en vonandi verður samt sett upp einhver tilboð því að það er sérstakt að selja inn á tvo leiki eða 2000 kr.
Skaginn
Skráð: 16. February 2010 13:09
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Já hvenær byrjar miðasalan á leikinn. Jú það eru alveg tíu dagar í leikina en t.d nú er byrjað að selja á körfuna og það fer í gegnum miði.is og tvær leikir eru seldir á 1200 kr. Er ekki tilvalið að nýta það líka eða kannski er ódýrara að selja beint? Skoðum þetta alla vega
Ási Sveinss
Skráð: 16. February 2010 22:54
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Finnst nú ekki mikið að greiða 2000 fyrir svona herlegheit! Við erum að tala um einn stærsta dag í handknattleikssögu Vals!

ÁFRAM VALUR !!
gin
Skráð: 16. February 2010 23:20
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 22
Staður: reykjavík
Skaginn skrifaði:
Já það tók á að horfa uppá leikina enda spennan alveg mögnuð. Verja 5 víti í leik og tapa(Florentina G) átti svakalegan leik. Strákarnir í Gróttu spiluðu bara ágætlega en að vísu var dómgæslan þeim til happs því að með dómarana með sér í liði lengi vel þá komust þeir inn i leikinn en Valsstrákarnir áttu ágætis dag eða Siggi var sterkur og gaman að sjá hann aftur. Baldvin á eitthvað inn sem og aðrir. Annars er mjög flott að Valur eigi tvö lið í úrslitum og ekki er verra að við fáum tvö af bestu liðum landsins eða Hauka og Fram. Með fullri virðingu fyrir öðrum liðum þá held ég að það hafi ekki verið svona flott bikarúrslit í mjög langan tíma. Ég er bjartsýnn á sigur en þetta verður erfitt og ég spái hörkuleik þar sem 1-2 mörk skilja liðin af nánast allan leikinn. Spá Valur-Fram(25-23) og Valur-Haukar(27-27) e fyrri hluta framlengingu (2-3) en í seinni taka valsmenn 4-2 og vinna því 33-32 hreint svakalegt. Það verður fullt á leikjunum en vonandi verður samt sett upp einhver tilboð því að það er sérstakt að selja inn á tvo leiki eða 2000 kr.

ég held að það sé erfitt þetta eru tvo lið sem við eru að fara að spila við ég er ekki viss um að haukar færu að gefa afslátt eða fram
Skaginn
Skráð: 18. February 2010 10:13
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
2000 kr er ekkert mjög mikið en KKÍ er með 1200 kr fyrir báða leikina. Mín skoðun er að það verði annað hvort frítt á annan leikinn eða bara 1500 kr á allan daginn. Ekkert rekið út og selt aftur. Þetta snýst ekki um afslátt heldur að Valur er með tvö lið og það vegur meira eða þetta eru 2x Valur, 1x Fram, og 1x Haukar. Það væri rugl ef valsmenn myndu þurfa að kaupa tvo miða inná leikina eða 1500 kr x 2 vegna þess að Valur á tvö lið í úrslitum.
tómatsósa
Skráð: 22. February 2010 15:44
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 28.04.09
Bréf: 8
Staður: Reykjavík
Hvað er svo planið fyrir laugardaginn? Á ekki að hittast einhvers staðar og fara svo í hóp niður í höll? Það er nú ekki á hverjum degi sem Valur getur unnið tvo bikartitla á einum degi. Gerum þetta flott!
Skaginn
Skráð: 22. February 2010 20:26
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Já þá er miðasalan farin á stað og verðið er samgjarnt eða 1000 kr á leik nema þetta sé fyrir allan daginn. Valur er með tvö lið í fyrsta skiptið í mjög langan tíma og eflaust hefur þetta heldur ekkert gerst mjög oft að lið sé með kvk liðið og kk liðið í úrslitum. Þetta verður örugglega fjör þó maður sé bjartsýnismaður þá eru meiðslin og leikformið að stríða mönnum eða það eru eitthvað um 5-6 leikmenn sem eru annað hvort meiddir eða nýbúnir að vera meiddir. Haukamenn eru með topplið og því held ég að það þurfi svakalegan leik til að Valur vinni en strákarnir geta þetta alveg ef þeir spila öfluga vörn og Hlynsunginn verður í góðu formi. Kvk leikurinn verður heldur ekkert slor eða Valur-Fram eða tvö allra bestu liðin og það verður heitt og örugglega troðfullt á báðum leikjum. Með að hafa einhverja dagskrá eða sprell á Hlíðarenda þá væri það ekkert óvitlaust en ég tel að tíminn sé ansi stuttur því að Valsmenn þurfa að vera komnir um kl 13:00 og ég tel að fáir nenna að fara mikið fyrir hádegi en það er samt sniðugt að hafa rútur og eitthvað smá. Svo bara að fagna vel og innilega eftir leikina. Spá- 25-23 f. Valsstelpum og strákarnir taka þetta 29-28 eftir svakalegar lokamínútur þar sem nokkir Haukamenn þurfa að yfirgefa völlinn.
Svenni
Skráð: 25. February 2010 17:27
Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 130
Staður: Reykjavík
Það er komin gríðarleg stemning fyrir leikjunum á laugardaginn og miðasalan gengur mjög vel.Það fá trúlega færri en vilja miða á karlaleikinn og ljóst að mikill stemmari er fyrir kvennaleiknum. Nú þurfa Valsmenn að drífa sig og tryggja sér miða í tæka tíð annað hvort niður í Vodafone-höll eða á midi.is

Áfram Valur
gin
Skráð: 25. February 2010 23:58
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 22
Staður: reykjavík
Svenni skrifaði:
þá er það ljóst að við verðum með bæði liðin í höllinni 27.febrúar. Þetta er líklega í fyrsta skipti sem Valur spilar með bæði lið í úrslitum bikarsins og nokkuð ljóst að um mikla hátíð verður að ræða hjá okkur Valsmönnum þennan dag. Djö.... hlakka ég til.

Áfram Valur

ef ég man rétt þá varð valur bikarmeistari 1988 og 1993 bæði lið
Ási Sveinss
Skráð: 26. February 2010 19:50
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
djöfulsins stemning verður þetta...maður er byrjaður að titra af spenningi =) ÁFRAM VALUR !!!!!

ÁFRAM VALUR !!
Hjálmtýr
Skráð: 27. February 2010 11:14
Staða: Nýliði

Skráði sig: 26.08.09
Bréf: 2
Staður: Reykjavík
gin skrifaði:

ef ég man rétt þá varð valur bikarmeistari 1988 og 1993 bæði lið


Það er hárrétt - Valur varð bikarmeistari bæði karla og kvenna 1988 og 1993.

Verðum við ekki að hafa þetta þriðja skiptið?

Titlar 98 og 99 eru velkomnir í hús

Áfram Valur!!
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.