Staða: Meðlimur
Skráði sig: 27.02.09 Bréf: 33
|
Hvað er í gangi spyr ég nú bara? Ég er afskaplega ósáttur við Valsliðið þessa dagana og menn verða heldur betur að fara að skrúfa toppstykkið fast ef bikarúrslitaleikurinn á ekki að verða hneysa. Það er svo margt sem mér finnst að og í raun svo margt sem mér finnst ólíkt því sem maður á að venjast að ég veit varla hvar ég á að byrja. En enn og aftur gerist það að menn eru ekki með fyrstu 10 mínútur leiksins. Það gerist ekkert af sjálfu sér. Síðan er ég mjög óánægður með hornamennina, þá skortir alt sjálfstraust og virðast líta á sig sem e.k. farþega í liðinu. Við sem höfum fylgst með Val í gegnum nokkra áratugi þekkjum ekki þennan þankagang. Oftar en ekki hafa hornamennirnir í liðinu verið með bullandi sjálfstraust og aðalmennirnir í hópnum bæði sem persónuleikar og markaskorarar. Vissulega má kenna miðjunni um að leggja hornamönnum ekki meira lið en mér er samt sama, liðið verður að fá allt út úr hornunum sem hægt er ef við ætlum að eiga erindi í bikarúrslitaleikinn. Fyrri hálfleikur var bara þriggja manna spil fyrir framan HK-vörnina, sem var nánast orðin tvöföld á köflum þar sem hornin voru ekki með. Mikið reynt að hnoða boltanum inn á línuna og HK-vörnin lék sér að þessu spili fyrstu 18-19 mínúturnar. Síðan það sem mér sárnar mest eru hraðaupphlaupin, algjört trademark á Valsliðinu í gegnum tíðina. Hlynur er drulluragur við að kasta boltanum fram yfir miðju og menn beinlíinis hættir að hlaupa fram. Fúsi var okkar fremsti maður á köflum. Sú var tíðin að oft voru varnir andstæðinganna leiknar sundur og saman í hraðaupphlaupum af 3-4 Valsmönnum. Læt þetta duga en það sem kom Val inn í leikinn áðan var að mínu mati sú staðreynd að HK hætti og taldi leikinn formsatriði.
En næst er það Haukaleikurinn og koma svo.
Áfram Valur
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 30.04.09 Bréf: 15
|
þetta andleysi er búið að vera ríkjandi í vetur mér finnst menn skýla sér á bak við meiðsl. Þú talar um hornamennina og hlutverk miðjumanna í því, staðreyndin er að Valur á engan miðjumann, Sigfús er jú slíkur að upplagi en ekki átt góðan leik í 2 ár. Mér finnst einfaldlega og fannst líka í fyrra að nú væri kominn tími á nýjan þjálfara í brúnni, Óskar flottur, búinn að gera góða hluti á köflum en það vantar eitthvað nýtt þarna núna! Legg það ekki í vana minn að vera neikvæður en ég á voða erfitt að sjá þetta Valslið eiga roð í Hauka, þó reyndar þeir hafi ekki átt flott tímabil heldur. Þeir eru samt efstir, það er bara ekkert lið sem er neitt að sýna og þeir því á toppnum. Svo finnst mér Fannar ekki sýna það sem í honum býr þarna ýmist á miðju eða skyttu. Honum vantar aðeins stærð og styrk og ég er viss um að ef honum væri spilað í horninu þá myndi hann með tímanum fara sem nr. 2 á eftir Guðjóni Val. Fannar er það kraftmikill og hraður og þessir eiginleikar nýtast ekki í þeim stöðum sem hann hefur spilað. gott í bili
|