|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 10 Staður: Reykjavík
|
http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=88189Þetta líst mér hrikalega vel á, man eftir þessum gaur frá meistaradeildinni í fyrra og hann leit virkilega vel út. Algjör nagli...
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Eldsnögg internet leit segir mér að þetta sé nagli sem hamast allan leikinn. Ef svo er, þá finnst mér við vera komnir í fínustu mál í bakvarðarstöðunum, og komnir með týpur sem henta vel í 4-3-3 leikkerfið sem við höfum verið að spila í allan vetur. Skemmtilegt komment úr þessu viðtali, sem ég held að þurfi ekkert að þýða yfir á íslensku; " Mine kvaliteter bliver der ikke lagt mærke til. Jeg scorer ikke mange mål eller lægger op til dem, men jeg arbejder røven ud af bukserne." Áfram Valur!
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Launabruðlið virðist ætla að ná nýju hámarki. Held að við séum ekki langt frá dýrasta liði Íslenskrar Knattspyrnusögu sem var í fyrra með þessu áframhaldi....
ÁFRAM VALUR !!
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 21.08.09 Bréf: 60 Staður: Rvk
|
Það er alltaf sama vælið ! Ef það eru keyptir menn þá er það bruðl. Ef það eru fengnir menn að láni er það bruðl. Ef menn eru seldir þá væla menn yfir því og heimta að það sé fenginn annar í hanns stað. Ef það er ekkert gert þá er vælt yfir því. Hvað nákvæmlega viltu að það sé gert ?
Það voru allir óánægðir með tímabilið í fyrra og menn kölluðu eftir breytingum og þær hafa orðið og vonandi til góðs, annars tekur jú alltaf tíma að púsla saman nýju liði. Ég hef talað við nokkra leikmenn sem eru allajafna mjög ánægðir með það sem er að gerast í liðinu bæði innan valla sem utan. Mórallinn hefur ekki verið svona fínn um langt skeið og ef þeir halda áfram að bæta sig innan vallar gætu þeir náð langt í sumar þó svo að mér finnist titill kannski of stórt takmark þetta árið.
Gefum þessu séns og styrkjum liðið utan vallar og hættum að setja út þetta allt saman. Okkur veitir ekki af 12 manninum sem erum við. Áfram Valur
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 25.05.09 Bréf: 6
|
Algjörlega sammála Egerfan.
Við fengum pening fyrir Bjarna Ólaf og það er flott að fenginn sé, vonandi, alvöru spilari í bakvörðin og jafnvel fleiri stöður. Bjarni er landsliðsmaður og því þarf einhvern góðann til að leysa hann af og eins og markaðurinn er hérna heima er ekkert í boði og því er sjálfsagt að leita erlendis og bara gott að fá dana. Danir hafa reynst okkur vel að mestu (René, Dennis Bo þegar hann spilaði og Rasmus).
Hættum þessu bruðl,dýrasta liða tali, það er ekki staðreynd í dag. KR og FH eru með dýrari lið en við vill ég fullyrða.
Valsliðið er búið að ganga í gegnum MIKLAR breytingar síðustu ár og vonandi er stefnan jákvæð í ár að yngja upp og mynda öflugt þjáfarateymi í kringum meistara og 2.fl. félagsins.
Með einum center í viðbót þá er alveg ástæða fyrir bjartsýni í vetur og topp 4 er ásættanlegt í sumar myndi ég segja. Gulli býr ekki til meistaralið á einu ári með nýjum ungum leikmönnum. Við verðum að vera raunsæ á mat liðsins, það er í þróun, og það jákvæðri þróun vonandi.
Styðjum félagið okkar jákvætt, ávallt og alltaf :)
Áfram Valur
Ragnar V.
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 27 Staður: 101
|
Þetta er nú meira vælið, það þarf klárlega að styrkja liðið, það er engin vinstri bakvörður í liðinu eftir að Bjarni fór og það er engin ungur leikmaður til að leysa þessa stöðu. Það sem Valur stendur fyrir og á alltaf að standa fyrir er að vera með lið sem er að berjast við toppinn í deildinni, við höfum alltaf laðað að okkur bestu leikmennina fyrir utan kannski árin 93-03, því er það tækifæri sem Valur á klárlega að stökkva á þegar að leikmaður af þessu kaliberi býðst. Ég er ekki að segja að við eigum ekki að rækta ungu leikmennina því við verðum að gera það í bland við klassa leikmenn, ég held að flestir séu sáttir við strúkturinn á leikmannamarkaðnum núna, liðið var orðið of gamalt í fyrra og núna er einfaldlega verið að yngja upp með leikmönnum úr yngri flokkunum og aðkomumönnum, það gerir liðið bara betra að fá sterka leikmenn á besta aldri með reynslu af alvöru atvinnumannabolta. Maður fær svona stundum á tilfinninguna að sumir hér vilji einfaldlega fá tímann aftur þegar við áttum ekki aur og héngum ár eftir ár í deildinni, björguðum okkur í síðustu umferðunum oftast nær.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 12.05.09 Bréf: 0
|
Mér finnst alltaf fyndið þegar það er talað um bruðl og dýr lið.
Persónulega gæti mér ekki verið meir sama hverju liðið mitt eyðir á meðan ég fæ að sjá skemmtilegan bolta og liðið á efni á því. Hvort snýst þetta um að vinna deildina eða eyða sem minnstum pening?
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 22.04.09 Bréf: 13
|
Mér lýst bara helvíti vel á að fá þenna reynslubolta, og eins og áður hafa Baunarnir reynst okkur vel. Það er algjör forsenda við uppbyggingu á nýju liði að vörnin sé sterk og með reynslu.Stjórnin á þakkir fyrir.
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Málið er bara að liðið stendur mjög vel og maður óskar þess að það séi notað til uppbyggingar til framtíðar þannig að það standi ennþá vel 200 ára. Kannski er þetta heimskuleg hugsun hjá mér en mér finnst ekki að Valur eigi að vera atvinnumannalið. Það er voðalega gaman að vinna titla og allt það en allir hlutir hafa sitt gjald og maður vill ekki fórna of miklu fyrir titil. Eftir að hafa heyrt hvað sumir af nýju leikmönnunum eru með í laun séi ég ekki hvað séi að breytast eftir síðasta tímabil. Liðið er minnst jafn dýrt og í fyrra og hefur ekki verið að gera neinar gloríur þó reyndar að soldið séi í alvöruna. Valur þurfti allavega að yfirbjóða önnur lið þegar að þeir fengu þá leikmenn sem eru komnir og finnst mér ekki réttlætanlegt að félagið borgi með deildinni. Eitt er þó víst að daninn er ekki ódýr! Hann er líklegast mjög mjög dýr!
ÁFRAM VALUR !!
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Hef það reyndar eftir nokkuð áræðanlegum heimildum að Martin sé langt langt frá því að teljast mjög dýr. Svo er það nú bara þannig í dag að öll lið í efstu deild eru hálf-atvinnumannalið, og ef menn ætla að vera með þá er það bara díllinn...
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Ef leikmaðurinn vinnur fyrir kaupinu sínu og Valur verði ofarlega í sumar. Þá skiptir litlu máli hvað hann kostar þar að segja ef Valur eða styrktaraðilar hafa efni á honum. Annars finnst mér flott hjá Gulla að byggja aðeins upp en það er nauðsynlegt líka að bæta við mannskapinn sterkum leikmönnum. Markvarslan er samt veikur punktur en vonandi koma fleiri sterkir í Val.
|
|
|
Guest |