Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Marel ekki með Val Valkostir
Egerfan
Skráð: 9. March 2010 20:14
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Þá virðist það komið á hreint að Marel Baldvins verður ekki með Val eins og vonast hafði verið til. Telja líklegt að hann sé á leið í Stjörnuna.
Hvað finnst mönnum um þetta ?
Hvaða framherja er unnt að ná í á þessum tíma ?

Verð bara að segja að eg er á flæðiskeri staddur hvað varðar framherja í augnablikinu.

Hann verður jú að styrkja liðið en ekki vera bekkjarsetugaur.

Áfram Valur
bjossi
Skráð: 10. March 2010 09:37
Staða: Nýliði

Skráði sig: 19.05.09
Bréf: 4
I hope Stjarnan chokes on him!!! Við verðum bara að girða í brók og finna einvern sterkari leikmann en Marel.
Tony Danza
Skráð: 10. March 2010 16:32
Staða: Nýliði

Skráði sig: 12.05.09
Bréf: 0
Er ekki búið að gefa það út að framherja sé leitað erlendis fyrst Marel er ekki lengur í myndinni?
Ási Sveinss
Skráð: 12. March 2010 11:35
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Þá spyr maður sig af hverju það var verið að láta Helga Sig fara fyrst að það lá fyrir að við yrðum ekki nægilega sterkir fram á við fyrir næsta tímabil. Erum þó með 2 virkilega efnilega framherja....er ekki spurning að láta þá bera þungann bara? Oft komið mikið út úr mönnum þegar að þeim er hent svona í djúpu laugina. Viktor og Arnar Sveinn að berjast og svo Þórir nr 3....

Eitt sem ég er að pæla líka hver stjórni liðinu? Er eitthver sem veit fyrir víst að það séi Gulli?

ÁFRAM VALUR !!
Gastone
Skráð: 12. March 2010 12:39
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 18.10.08
Bréf: 24
Staður: Mosó
Það er engan veginn hægt að láta þessa tvo ungu framherja vera eina með þessa stöðu , hvað gerum við ef annar þeirra meiðist eða báðir á sama tíma, Steini yrði líklegri að deila framherjastöðunni með Arnari Sveini og Viktori, held að Þórir sé ekki senter..

Helgi vildi fara það er ekkert flóknara en það.... Við erum ekkert að pína menn til þess að vera í Val.

Hvað áttu við með hver stjórni liðinu???? Það hlýtur að segja sig sjálft


Áfram Valur
Ási Sveinss
Skráð: 13. March 2010 12:17
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Helgi vildi alveg vera áfram....

ÁFRAM VALUR !!
Loftur
Skráð: 13. March 2010 19:40
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 27
Staður: 101
Svona miðað við viðtöl við Helga í haust þá vildi hann fara og leitast eftir nýrri áskorun....
Gastone
Skráð: 13. March 2010 20:17
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 18.10.08
Bréf: 24
Staður: Mosó
Um leið og það var ljóst að Gulli yrði þjálfari var Helgi ekki tilbúin að vera áfram, því miður er þetta staðreynd Ási þú verður bara að kyngja því ....

Áfram Valur
Ási Sveinss
Skráð: 14. March 2010 05:33
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Ekkert sem að ég þarf að kyngja...Staðreyndin er bara sú að Helgi var ekki velkominn á Hlíðarenda lengur. Það er bara ekkert flóknara en það Gestur.

ÁFRAM VALUR !!
falkinn
Skráð: 14. March 2010 08:49
Staða: Nýliði

Skráði sig: 19.05.09
Bréf: 0
Ok Marel verður ekki með og það er slæmt. En ég held að við ættum bara að lata þessa ungu straka berjast um þessa stöðu i sumar. Við erum ekki að fara að berjast um Íslandsmeistara titilinn og við erum ekki að fara að falla. Sjaið hvað blikarnir gerðu i fyrra klubbur sem a ekki kronu. Þeir notuðu sina ungu straka i stað þess að kaupa einhverja utlendinga og þeir eimitt mistu marel i fyrra ut af þvi að þeir gatu ekki borgað honum ,og þa kom strakur inn sem heitir Alfreð finnbogason ungur strakur sem ekki margir vissu hver væri. Held við ættum frekar að leggja traust okkar a þessa sentera sem við höfum (viktor og Arnar) og leyfa þeim að spila i sumar þvi þeir verða bara betri a þvi. Ef sú staða kemur upp að þeir seu baðir meiddir þa höfum við menn sem geta leyst senterinn eins og gumma og habbo t,d
Held að ef við förum að kaupa einhver utlendinga sem við þurfum að borga storfe fyrir þa er það orðið svoldið mikið happdrætti.

Áfram valur:)
Egerfan
Skráð: 14. March 2010 16:39
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Mig minnir nú að þegar ljóst var að Gulli tæki við, nefndi að hann vildi yngja upp liðið. Helga leist ekki á hugmyndir Gulla go stjórnar og vildi fara.

Það allavega skiptir ekki máli núna því hann er farinn og er bara eins og fyrsta árið með Val að skora mikið og er allt í öllu. Hann á samt ekki mikið eftir. Marel verður ekki með okkur í sumar en nauðsynlegt er að vera með allavega einn center í viðbóð við þá sem fyrir eru. Því ef ekki er baráttta um sæti í liðinu er hætta á að menn verði kærulausir.
Ég held að markaðurinn hér heima sé þannig að allir vilja fara í kr og berjast um sæti þar, held samt að þeir séu eins og stuðningsmenn þeirra hafa verið að tala um orðnir of margir.
Leitum erlendis af öflugum center sem fæst fyrir snngjarnt verð eða á lánssamning og verum með í baráttunni þó svo að titilvonir þetta árið séu kannski ekki raunhæfir möguleikar.

Áfram Valur
Ási Sveinss
Skráð: 14. March 2010 19:32
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Dennis Bo Mortensen ?? =)

ÁFRAM VALUR !!
Stockton
Skráð: 14. March 2010 22:52

Staða: Nýliði

Skráði sig: 19.05.09
Bréf: 2
Ég er mótfallinn því að við séum að hlaupa á eftir einhverjum útlendingum í svona reddingar. Það þarf að byggja upp nýtt lið í rólegheitunum og vanda til verka þegar við bætum við okkur leikmönnum, annars hafa menn ekkert lært af síðustu tveimur árum. Er ekki hægt að henda Matthíasi í sóknina og málið er leyst?
Egerfan
Skráð: 15. March 2010 16:17
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Það verður bara að segjast eins og er að það þarf að bæta svona eins og tveim mönnum við hópinn til að efla samkeppnina og styrkja liðið hvort við leytum erlendis eður ei skiptir svo sem ekki máli. Held bara að markaðurinn hér heima sé tómur, en ætla að láta aðra um að finna þá sem geta Styrkt liðið fyrir komandi leiktíð. Ég hef séð nokkra af þeim leikjum sem þeir hafa spilað og það sem öggar mig einna mest er að menn eru í stúkunni annanhvern leik vegna meiðsla eða þ.h. og þá vantar menn til þess að leysa þá af.

Áfram Valur
bjossi
Skráð: 15. March 2010 16:52
Staða: Nýliði

Skráði sig: 19.05.09
Bréf: 4
Erum við ekki annars að tala um sama Helga Sig sem var svo gott sem búinn að tæma tankinn sumarið 2008, og var alveg búinn á því sumarið 2009?

Frabær leikmaður á sínum tíma, en á ekkert erindi lengur í efstu deild.
Werty
Skráð: 16. March 2010 15:42
Staða: Nýliði

Skráði sig: 16.03.10
Bréf: 0
Spila Matta frammi í sumar, Baldur A á hægri. Matti var með einhver 7 mörk þegar hann spilaði 6-7 leiki frammi 2005. Skil ekki af hverju hann er alltaf settur á kantinn.
Síðan verðum við að fara að gefa mönnum tíma til að spila og þróa sinn leik, ekki ná í næsta lausa mann og halda að hann sé lausninn. Gefa ungu strákunum sjéns og vera með gleðina að vopni. Sammála því sem kom fram hér að ofan með Blikana, þeir settu traust sitt á ungt lið á meðan við settum traust okkar á nýja leikmenn.

Vona síðan að menn láti sjá sig á föstudag klukkan 19:00 - Valur vs. Selfoss Egilshöll.

Áfram Valur.
finnur
Skráð: 18. March 2010 15:14
Staða: Nýliði

Skráði sig: 11.05.09
Bréf: 0
Hvernig var þessi Framleikur annars?
Hvernig lítur þetta út núna hjá liðinu?
Hverjir eru að spila vel?
Hverjir eru meiddir?
Eru nýjir menn að koma til liðsins, og ef svo er í hvaða stöður er verið að fá þá? Þurfum við kannski enga?
Hvar lendum við svo í sumar með þetta lið, ef allt gengur upp og ef allt fer á versta mögulega veg? Pælum aðeins í þessum hlutum hér og hættum að rífast.
EMK
Skráð: 18. March 2010 22:33
Staða: Nýliði

Skráði sig: 02.07.09
Bréf: -1
Finnur - það var einmitt aðeins verið að spá í þessu hér http://selfoss.org/?p=1398 ;)
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.