Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Hörður í stuði þegar Valsmenn tryggðu sér sæti í úrslitaeinvíginu Valkostir
Svenni
Skráð: 25. March 2010 23:05
Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 130
Staður: Reykjavík
Hörður Hreiðarsson átti stórleik fyrir Val í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfubolta í kvöld þegar Valsmenn unnu 84-77 sigur á Skallagrími í oddaleik um sæti í úrslitaeinvíginu á móti Haukum.


Valur og Haukar spila til úrslita um hvort liðið fylgir KFÍ upp í Iceland Express deild karla en það lið sem fyrr vinnur tvo leiki fer upp.

Hörður Hreiðarsson var með 33 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar í kvöld en Valsmenn lögðu grunninn að sigrinum með frábærum fjórða leikhluta sem liðið vann 28-18.

Sigurður Friðrik Gunnarsson var með 21 stig og 10 fráköst hjá val og Byron Davis náð þrefaldri tvennu, var með 12 stig, 11 fráköst og 11 stoðsendingar.

Silver Laku skoraði 24 stig fyrir Skallagrím og Hafþór Ingi Gunnarsson var með 22 stig.

Tekið af Visir.is


Björgvin Ármannsson
Skráð: 25. March 2010 23:28

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 34
Staður: Rivertown
Ég brunaði á Hlíðarenda eftir leikinn á ásvöllum, náði síðustu 5 mínútunum, var nokkuð jafnt þegar ég mætti í hús og allt stefndi í spennandi lokamínútur en Skallarnir stóðust ekki pressuna og Valsmenn höfðu þetta. Þetta var erfið stund fyrir mig enda uppalinn í Borgarnesi og hef alltaf stutt Skallana í körfunni en á móti kom að mitt lið var alltaf að fara að vinna þetta einvígi, sama hvernig leikar fóru. :)
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.