|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 40 Staður: Ipswich
|
Þetta var heldur betur frábær skemmtun í kvöld. Góð stemmning hjá stuðningsmönnum beggja liða og hörku spenna á vellinum. Arkitektinn að nýja bragganum hefur líklega verið sérlega sáttur því loksins skapaðist þetta gryfju andrúmsloft sem húsið býður upp á.
Nú er bara að mæta á Ásvelli og taka Íslandsmeistaratitil líkt og 2007.
|
|
Staða: Stjórnandi
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 130 Staður: Reykjavík
|
Djö..... voru strákarnir okkar flottir, ertu að grínast. Flottasti handboltaleikur allra tíma fór fram í kvöld þ.e.a.s. með teknu tilliti til umgjarðar, áhorfenda og stemmningu. Áhorfendur voru frábærir, ég vil þakka DÓLGUNUM sérstaklega fyrir þeirra framlag, ekkert smá flottir og augljóst að þeir hafa svo sannarlega vakið stuðningsmenn Hauka upp af værum blundi sem voru líka mjög flottir. Sjáumst á laugardaginn í þvílíkri stemmningu að annað eins hefur ekki sést. Áfram Valur !
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
þvílík spenna og þvílíkur leikur. Stemningin var rosaleg hjá báðum liðum og gaman að nýtt áhorfendamet hafi litið dagsins ljós. Þeir spiluðu eins og Íslandsmeistarar í kvöld og ef þeir spila eins á laugardaginn þá verður þetta aldrei spurning. Spes reyndar að lokahóf hsí séi síðan um kvöldið....
ÁFRAM VALUR !!
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Svenni þetta var frábært og þið getið verið virkilega stoltir af síðasta heimaleiknum þetta tímabilið! Stór hrós til stjórnar handknattleiksdeildar!!
ÁFRAM VALUR !!
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Svona á þetta að vera, fór heim kófsveittur og lófarnir logandi eftir klapp allan leikinn!
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 03.05.10 Bréf: 9 Staður: Ásvellir
|
Flottur leikur og flott umgjörð, takk fyrir mig Valsmenn.
Fannar magnaður en ég set stórt spurningarmerki við ákvarðanir Arons varnarlega. Þú setur EKKI 2 metra tvítugan strák í bakvörðinn á móti Sigga Eggerts og vonast eftir góðri útkomu.
Ég og konan (sem er harður Valsari) vorum nú sammála um að rauða spjaldið hefði verið ansi þungur dómur. Vissulega grófar 2 mín. en ef menn ætla að gefa rauð spjöld fyrir svona brot....kæmi rautt í hverjum leik.
Freyr átti hinsvegar að fá rautt fyrir að slá í Ingvar og þá líklega Baldvin í kjölfarið fyrir að sparka í bakið á Frey.
Þetta verður rosalegur leikur á morgun og það er Val í hag að þetta sé komið í 5 leiki. Valur er að keyra á fleiri mönnum og eru einfaldlega yngri og graðari. Heimavöllurinn skiptir held ég ekki meginmáli í svona leik, liðið sem mætir hungraðara vinnur.
Góða skemmtun og megi betra liðið vinna.
ps, hrós til Dólga og Haukara fyrir þétta stemmingu.
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Það var frábær stemming í gær og leikurinn spennandi frá fyrstu mínútu, mistök, frábærar markvörslur og troðfullt hús. Verður ekki betra. Ég var í hálfgerðu losti enda stóð ég í sætinu mínu stóran hluta leiksins. Nú er oddaleikur og það að komast þangað er viss sigur og ef strákarnir spila einsog í gær og fyrir viku síðan þá vinna þeir leikinn. Hvernig er það með miða verður nóg af miðum. Það er öruggt að það verður uppselt en er ekki málið að Haukamenn láti Valsmenn hafa 800 miða í forsölu sem yrðu seldir frá hádegi í dag og til kannski 20 í kvöld. Svo í fyrramálið
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 40 Staður: Ipswich
|
Gunnar Berg kominn í bann sem ætti ekki að draga úr möguleikum okkar. Fyrir utan að vera einn sterkasti varnarmaður deildarinnar þá er hann einn helsti leiðtoginn í Haukaliðinu. Verð að játa að ég sá ekki hversu gróft þetta brot var en þetta er ansi hörð refsing að missa af oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn.
|
|
Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 29.10.08 Bréf: 180 Staður: reykjavík
|
Já ég er sammála því í dag þó ég hafi ekki verið sammála því í gær. Þetta á samt eftir að styrkja Haukamenn andlega en getur veikt þá ef langt líður á leikinn enda Pétur og Heimir Óli óreyndari í varnarhlutverki í 60 mín. Annars verður þetta eflaust hörkuleikur og megi betra liðið vinna
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 03.05.10 Bréf: 9 Staður: Ásvellir
|
Haukar vinna líklega ekki Val án síns besta varnarmanns. Alltof hörð refsing.
|
|
Staða: Alvöru Valsari
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 73 Staður: Reykjavík
|
Verð segja að ég hefði frekar viljað hafa Gunnar Berg inná en það breytir því ekki að svona brot hafa slaðað menn illa og jafnvel tekið þá úr axlarlið þegar er farið svona í skothendina...finn þó til mep Haukamönnum.
ÁFRAM VALUR !!
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 03.05.10 Bréf: 9 Staður: Ásvellir
|
Held að dómarar leiksins hafi haldið að hann hafi slegið hann í andlitið
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 03.05.10 Bréf: 8 Staður: Hlíðarendi
|
Ég er á sama máli, held að dómararnir hafi viljað meina högg á andlit. En er ég eini sem tek eftir því hvað Sigurbergur hreyfir oft hausinn til hliðar eins og hann hafi fengið högg á andlitið þegar er að taka finturnar sínar? Djöfull fer það í mig. Er ekkert að setja út á hann, mjög frambærilegur leikmaður en þetta pirrar mig svakalega.
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 03.05.10 Bréf: 9 Staður: Ásvellir
|
Má reyndar heimfæra þetta á Sigfús líka. Hann er 145cm og svo setur hann hausinn snöggt til hliðar og varnarmenn geta hreinlega ekki annað en rekist í hann. En sammála með Begga, frekar leiðinlegur stíll en góður leikmaður
|
|
|
Guest |