Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Ja hérna... Valkostir
p-sæm
Skráð: 17. May 2010 21:30

Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 16.04.09
Bréf: 125
Staður: Reykjavík
Jæja, þetta var aumkunarvert. Fannst ég hafa farið aftur í tímann og farið á leik árið 2009. Þetta var bara aumkunarvert. Enginn nennti neinu og menn voru bara að þessu af hálfum hug. Ég vil fá aftur liðið sem spilaði á móti fh....

Einum fleiri í 70 mín, víti, ca. 60 hornspyrnur og hver er uppskeran? 1-1 jafntefli á móti einu lélegasta liði deildarinnar. Ég þakka bara fyrir að við vorum ekki að spila á móti betra liði, það hefði nú verið algjör rassskelling.


Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
bjossi
Skráð: 17. May 2010 21:37
Staða: Nýliði

Skráði sig: 19.05.09
Bréf: 4
Alveg hrikalegt að vera manni fleiri á heimavelli og nýta sér það ekki. Þessar háloftasendingar eru alveg off! Liðið virðist eiga í mestu erfiðleikum með að halda smá tempoi á sama tíma og það reynir að fikra sig upp völlinn.

2-3 breytingar á liðinu fyrir næsta leik takk og í guðanna bænum hættið þessum FOKKING háloftasendngum!!!
Keano
Skráð: 17. May 2010 21:48

Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 40
Staður: Ipswich
Þetta jöfnunarmark var pínu sjokk. Menn bjuggust greinilega við þægilegum sigri eftir að vera komnir í 1-0 og manni fleiri. ÍBV gerði vel að halda út þetta lengi og lögðu á sig þessi auka 10% sem þarf þegar lið missa leikmann af velli. Það hefði mátt koma aukið bit í sóknarleikinn fyrr en annars borgar sig ekki að tapa sér í neikvæðninni of snemma. Liðið er greinilega enn að slípast til og alltaf vitað að þetta tímabil á að vera uppbyggingarfasi.
Ási Sveinss
Skráð: 18. May 2010 11:13
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 20.10.08
Bréf: 73
Staður: Reykjavík
Veit ekki hvort að eitthver annar tók eftir því en þegar að eyjamenn misstu mann af velli þá voru þeir komnir með 9 manna varnarlínu sem pressaði ekki einu sinni upp á móti miðjumönnum Vals þegar að þeir komu með boltann inn á vallarhelming ÍBV. Eyjamenn eru þekktir fyrir hörku og seiglu og spila eflaust aldrei betur en í smá mótlæti. Þeir koma þéttir saman til leiks búnir að undirbúa sig eins og atvinnumannalið og hefði ábyggilega ekki getað verið verri dagur til að mæta þeim. Valsmenn áttu að sjálfsögðu að vinna þennan leik 1 marki yfir og manni fleiri en þeir jöfnuðu og sátu virkilega vel á sínu. Margt jákvætt við leik liðsins í dag þó þeir virtust missa svolítið hausinn við jöfnunarmarkið. Blikar á fimmtudaginn og verður það eflaust skemmtilegur leikur jafnvel með nokkrum mörkum.

ÁFRAM VALUR !!
Siggi CL
Skráð: 18. May 2010 11:34
Staða: Nýliði

Skráði sig: 13.05.10
Bréf: 1
Sammála keano. Eyjamenn gerðu vel eftir að hafa misst mann útaf. Jöfnunarmarkið var gjöf, en skrifast alfarið á Kjartan í markinu. Fyrri hálfleikurinn var samt jákvæður að mörgu leyti. Hreinlega klaufalegt að bæta ekki við fleiri mörkum þá.
Valdi
Skráð: 18. May 2010 14:56
Staða: Nýliði

Skráði sig: 14.05.10
Bréf: 0
Þetta var skrítinn leikur, við vorum gjörsamlega að valta yfir ÍBV fyrsta hálftíman, svo er eins og þetta rauða spjald og sérstaklega markið hjá ÍBV sem slá okkur alveg út af laginu. Í fyrsta lagi var þetta alveg ömurlegt mark og það er afleitt að vera fá mark á sig einum fleiri, þessi leikur var búinn á þessum tímapunkti en bara með þessari gjöf sem markið var hleyptum við ÍBV í leikinn. Markið sjálft var klaufalegt, léleg sending hjá Martin, Reynir mjög svifaseinn og síðan Kjartann alveg negldur í inn í markteig. Eftir þetta gátum við ósköp lítið, ÍBV er nátturulega þétt fyrir og því miður er okkar lið ekki það gott spilanlega að við séum góðir að finna lausnir á svona varnarpökkum, leikurinn dó því út.

En mjög jákvætt að sjá mætinguna á leikinn, yfir 1000 manns á ÍBV leik er mjög gott þar sem flest allir sem voru á staðnum í gær voru Valsarar nema kannski Ásgeir Sigurvins og Árni Johnsen sem sat reyndar Valsmegin. ÍBV leikirnir hafa oftast verið þeir leikir sem versta mætingin hefur verið á yfir tímabilið. Vonandi heldur þessi góða mæting áfram enda engin ástæða til annars, frábær völlur og efnilegt lið.
Egerfan
Skráð: 18. May 2010 14:56
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Verð að bjarga Kjartani smá, en þetta mark skrifast ekki eingöngu á hann, vörnin klikkaði svaðalega í þessu tilviki sem og Kjartan. Að vera að dútla boltanum svona í öftustu línu á bara ekki að gera sérstaklega með svona hæga varnarmenn.

Koma svo, hjálpumst að við að landa fyrsta sigrinum okkar í sumar og hjálpum strákunum að eflast. Leiðin liggur uppá við er það ekki.Eftir einn sigurleik verður ekki aftur snúið. Þetta er undir okkur komið líka, Ef við brotnum og hættum að styðja okkar menn þá eru líkur á að þeir gefist upp líka (sjá hvað gerðist í fyrra ).
Gefum þeim séns og tíma.

Áfram Valur
Skaginn
Skráð: 18. May 2010 16:26
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Furðulegur leikur, Valsmenn töluvert betri en uppskeran engu að síður aðeins eitt stig. Markið er bara rugl eða í fyrsta lagi á miðjan að fara í svona bolta en svo eru tveir varnarmenn Martin og Atli minnir mig nánast einir með boltann en svo kemur slök sending og þá fer Kjartan ekki einu sinni í leikmanninn.
Vonandi mæta menn brjálaðir í næsta leik gegn einu af sterkari liðum deildarinnar eða Breiðablik.
Spái hörkuleik sem endar 2-1
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.