Knattspyrnufélagið Valur

Velkominn, gestur Leita | Mest lesið | Notendur | Innskráning | Nýskráning

Valur næsta tímabil Valkostir
Skaginn
Skráð: 21. May 2010 00:10
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Nú er nýlokið handknattleikstímabilið. Árangurinn nokkuð góður eða bæði lið náðu í úrslitaeinvígi, stelpur urðu meistarar en strákarnir töpuðu í oddaleik. Bæði lið náðu í úrslitaleik bikarkeppninnar en töpuðu. Nú spyr maður sig hvort miklar breytingar verða á liðunu Strákarnir missa Arnór og Óla Zico Sigurjónsson, Fannar og Ingvar eru auk þess að íhuga að fara í atvinnumennsku. Það þarf að styrkja hópinn og sá fyrsti kom í síðustu viku eða Finnur Ingi frá Gróttu, Anton er með lausan samningin og mín skoðun er að það þarf að semja mig hann sem fyrst, því ekki viljum við hann fari í Hauka eða Fram. Hjá stelpunum verða jafnframt einhverjar breytingar eða Begga fer til Noregs og Kata er hætt vegna meiðsla.
Nú veit ég ekki með aðra valsmenn en þarf ekki að styrkja liðin og þá sérstaklega karlaliðið ef liðið er að missa 2-3 lykilmenn og þó Finnur og Anton sé efnilegir þá finnst nauðsynlegt að hafa meiri breidd, sérstaklega ef liðið ætlar sér einhverja hluti.
Kv Eyþór(skaginn).Hugsi (fyrirgefið bilin sem myndast á nokkrum stöðum)
Loftur
Skráð: 21. May 2010 00:29
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 23.10.08
Bréf: 27
Staður: 101
Þetta er fótboltaspjallið, má ekki eyða þessu, Skaginn þú verður að fara vanda þig aðeins hérna, þetta er ekki erfitt.
Skaginn
Skráð: 21. May 2010 10:43
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Fyrirgefðu að þetta datt inn á fótboltaspjallið en eflaust er smá hráleiki yfir þessu en satt að segja er ekkert af þessu að öðru leyti. Loftur hvernig væri ef þú myndir svara spurningunni frekar en vera með eitthvað að hvort hægt sé ekki að eyða þessu.
vefstjori
Skráð: 25. May 2010 01:07

Staða: Stjórnandi

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 14
Færði þetta yfir á handboltaspjallið ... :)
Skaginn
Skráð: 27. May 2010 11:48
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Nú eru þrir lykilmenn farnir eða Ingvar Árna, Fannar Friðgeirs, og Arnór Gunnars. Kominn er Finnur Ingi Stefánsson frá Gróttu og Anton er í samningaviðræðum en finnst mönnum ekki að það þurfi að styrkja hópinn? Það eru margir flottir leikmenn sem væru góðir í Val en annars er líklegra að erlendur leikmaður komi. Hvað segja handboltavalsaranir Gísli og co
Nostradamus
Skráð: 29. May 2010 17:13
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 01.07.09
Bréf: 21
Staður: Rvk
Frábært fyrir liðið að Elvar hafi framlengt, frábær leikmaður og máttarstólpi.

Slæmt hins vegar að dýrasti leikmaður handknattleikssögu Íslands fari frítt aftur til Fram.
Rumsfeld
Skráð: 29. May 2010 17:33
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 28.10.08
Bréf: 31
Staður: Kópavogur
Vissulega er það slæmt að missa Sigfús Pál - Heimir Ríkharðs. hættir hann sem aðstoðarþjálfri ? OG Gunnar Harð. er hann hættur ?
Egerfan
Skráð: 29. May 2010 17:59
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Heyrða að heimi líkaði vel hjá okkur og að hann vilji alveg vera áfram, hins vegar er það að sjálfsögðu undir nýjum þjálfara komið með aðstoðarmann. Veit hins vegar fyrir víst að framarar hafa borið víunar í Heimi.

Nú er ljóst að Sigfús, Fannar, Ingvar og Arnór séu farnir.

Klárlega þarf að styrkja okkur eitthvað þó að Ernir sé að koma inn á ný því meiðsli virðast alltaf hrjá sömu mennina, og því erfitt að stóla á þá.

Áfram Valur
Nostradamus
Skráð: 30. May 2010 14:45
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 01.07.09
Bréf: 21
Staður: Rvk
Finnur Ingi er kominn, Anton er samningsbundinn og verður áfram óháð öðru og er ekki spurning hvort gamlir Valsarar úr Gróttu komi heim? Atli, Ægir og Hjalti?
Skaginn
Skráð: 30. May 2010 15:27
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Já þetta er missir Arnór án efa verið okkar jafnbesti maður síðustu ár, Fannar verið sterkur hvort sem í horni eða sem stjórnandi, Ingvar var fyrirliðinn og batt vörnin oft saman, og Siffi er án efa góður leikmaður þó hann hafi ekki getað sýnt það sem hann gerði hjá Fram.

Eflaust er Júlíus með einhver tromp í hendi en með Anton þá er hann samningsbundinn en vill fá nýjan samning enda þessi mjög lélegur. Það er erfitt að treysta á Sigga, Ernir, og Baldvin enda geta meiðsli komið upp með litlum fyrirvara. Mín skoðun er að það þarf alla vega sterka skyttu sem getað farið í vörnina. Það er enginn sérstök hér á landi því þarf að leita út
Egerfan
Skráð: 30. May 2010 15:48
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
Leita út, leita út hvernig væri að þú færir að skoða það sem er í boði hér heima áður? af hverju segir þú ekkert vera +i boði hér heima ? T.d eru tveir til þrír strákar sem hafa verið viðloðandi líðið í vetur sem geta allveg gert tilkall í skyttu og leikstjórnandahlutverkið. Nota þá sem til eru og nota þá rétt, Hins vegar þurfum við að styrkja okkur eitthvað.
Skaginn
Skráð: 30. May 2010 17:33
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Mikið rétt í því en með þessu á ég við að það eru ekkert mjög sterkir leikmenn sem eru lausir en annars væri gott að fá einhverja reynslu í hópinn t.d tvo reynda leikmenn jafnvel að Valsmenn reyndu að sækja einhverja leikmenn heim úr atvinnumennsku. Annars er allt frekar óljóst í þessu en ég myndi frekar kjósa að fá reynslu sem einhverja mjög unga þó efnilegir séu. Annars hef ég litlar áhyggjur af þessu enda veit ég að Júlíús kemur með sínar áherslur og ef hann vinnur forvinnuna sína vel þá verður árangurinn eftir því
gin
Skráð: 1. June 2010 00:09
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 22
Staður: reykjavík
[quote=Skaginn]Nú eru þrir lykilmenn farnir eða Ingvar Árna, Fannar Friðgeirs, og Arnór Gunnars. Kominn er Finnur Ingi Stefánsson frá Gróttu og Anton er í samningaviðræðum en finnst mönnum ekki að það þurfi að styrkja hópinn? Það eru margir flottir leikmenn sem væru góðir í Val en annars er líklegra að erlendur leikmaður komi. Hvað segja handboltavalsaranir Gísli og co


ég vil endilega biðja menn að ekki flokka mig sem einhvern deildar valsara ég styð allar deildir sem leika undir valsmerkinu því að ég er VALSARIKlappa ja:d/ vascript:insertsmiley('Klappa%20','/spjall/images/emoticons/eusa_clap.gif')javascript:insertsmiley('Dansa%20','/spjall/images/emoticons/eusa_dance.gif')
gin
Skráð: 1. June 2010 00:11
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 22
Staður: reykjavík
[quote=Skaginn]Nú eru þrir lykilmenn farnir eða Ingvar Árna, Fannar Friðgeirs, og Arnór Gunnars. Kominn er Finnur Ingi Stefánsson frá Gróttu og Anton er í samningaviðræðum en finnst mönnum ekki að það þurfi að styrkja hópinn? Það eru margir flottir leikmenn sem væru góðir í Val en annars er líklegra að erlendur leikmaður komi. Hvað segja handboltavalsaranir Gísli og co


ég vil endilega biðja menn að ekki flokka mig sem einhvern deildar valsara ég styð allar deildir sem leika undir valsmerkinu því að ég er VALSARI og ég er viss um að það á við líka þessa svokallaða coKlappa ja:d/ vascript:insertsmiley('Klappa%20','/spjall/images/emoticons/eusa_clap.gif')javascript:insertsmiley('Dansa%20','/spjall/images/emoticons/eusa_dance.gif')

kv gin
Skaginn
Skráð: 4. June 2010 18:25
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Já gaman af þessu Gin, Ég mætti á leiki hjá öllum deildum síðasta vetur, hvort sem það var kvennakörfubolti eða Karla handbolti. Ég viðurkenni að ræturnar liggja að skaganum en ég mun áfram reyna að styðja Val einsog ég get og þá á ég við öll liðin sex. Þú hefur kannski ekki séð mig á leikjum síðasta vetur enda viðurkenni ég að ég þekki þig ekki þó ég myndi eflaust þekkja þig ef þú hefur mætt á leiki. Áfram Valur og endilega skrifaðu undir með nafni
kv Eyþór Grétar
Egerfan
Skráð: 4. June 2010 18:52
Staða: Alvöru Valsari

Skráði sig: 21.08.09
Bréf: 60
Staður: Rvk
gin þarf ekki að skrifa undir nafni því það vita allir hver hann er :-)

Áfram Valur
gin
Skráð: 4. June 2010 21:47
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 22
Staður: reykjavík
Skaginn skrifaði:
Já gaman af þessu Gin, Ég mætti á leiki hjá öllum deildum síðasta vetur, hvort sem það var kvennakörfubolti eða Karla handbolti. Ég viðurkenni að ræturnar liggja að skaganum en ég mun áfram reyna að styðja Val einsog ég get og þá á ég við öll liðin sex. Þú hefur kannski ekki séð mig á leikjum síðasta vetur enda viðurkenni ég að ég þekki þig ekki þó ég myndi eflaust þekkja þig ef þú hefur mætt á leiki. Áfram Valur og endilega skrifaðu undir með nafni
kv Eyþór Grétar
eyþór minn ég eigilega skrifaði inn á þennan póst þar sem þú kallaðir mig handboltavalsari gísli og co þá vill svo til að ég skrifa aldrei undir dulnefni


g i n
gísli níelsson
Skaginn
Skráð: 4. June 2010 23:12
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Blessaður Gísli. Auðvitað kannast ég við þig enda ertu án efa besti stuðningsmaður Vals. Ég viðurkenni að ég er ekki valsari af upplagi en held mjög mikið með Val og hef gert það lengi eða í yfir 14 ár. Gin er samt dulnefni enda heitir þú Gísli en eflaust er þetta skammstöfun fyrir Gísli I Níelsson en svo hef ég séð nafnið þitt koma fram á öðrum þráðum, og það ruglaði mig aðeins. Þegar ég tala um þig sem handboltavalsara þá á ég við að það er eflaust fleiri sem styðja knattspyrnuliðið en handknattleiksliðið og því leitaði ég til fólks sem mætir á handboltann en ekki fótboltann eingöngu einsog alltof margir. Ég er því ekki að telja þig sem eingöngu stuðningsmanns Vals í handknattleik. Annars vegna þess þá langar mig að varpa fram þeirri einföldu spurningu um hvernig telur þú að liðið eigi eftir að verða á næsta tímabili?
kv Eyþór Grétar og Áfram Valur
gin
Skráð: 5. June 2010 13:03
Staða: Meðlimur

Skráði sig: 17.10.08
Bréf: 22
Staður: reykjavík
ég hef ávalt haft þá stefnu að leifa þjálfara og stjórnum deildana frið frá mér að hvaða leikmenn þeir nota
og eins hvaða leikmenn þeir fá til vals þess vegna tek ég aldrei þátt í umræðu um þennan leikmann eða
þjálfara en ég vona þeir fái aldrei guðjón þórðar né viggó sem þjálfar
Skaginn
Skráð: 5. June 2010 16:24
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Já gaman að fá gott svar en það er líka bara gott mál. Með hvaða leikmann eða þjálfara er best að fá til Vals er auðvitað málefni sem flestir hér inni hafa lítið vit á og því er mikið til í þessu hjá þér en hins vegar talað ferillinn oft miklu máli um hvort viðkomandi þjálfari eða leikmaður sé góður eða kannski bara efnilegur eða annað. Með Guðjón og Viggó tvo skrautlegustu þjálfara íþróttasögu Íslands er hins vegar ekki hægt að segja annað en þeir voru einu sinni mjög góðir en hafa ekki þennan Ferguson einsog ég kalla það. Annars vona ég að það verði fengnir alla vega 2-3 leikmenn enda eru þeir Siffi, Ingvar, Fannar, Arnór, Fúsi, hugsanlega Gunnar Harðar líka. Þetta eru stórir hlekkir í hóp liðsins og það þarf að bæta þá með fleiri mönnum en bara Finni Inga og hugsanlega Antoni.
kv Eyþór Grétar og Áfram Valur
Skaginn
Skráð: 10. June 2010 11:57
Staða: Súperstjarna

Skráði sig: 29.10.08
Bréf: 180
Staður: reykjavík
Já það hefur fækkað mikið í hóp Valsmanna síðustu vikurnar því Ingvar, Siffi, Fúsi, Arnór, og Fannar eru farnir. Nú eru samningaviðræður við Anton eflaust komnar á fullt og eflaust fljótlega verður samið við hann en svo styrktist hópurinn þegar Finnur Ingi kom til Vals og nú Sturla Ásgeirsson silfurólympíuhafi og mjög sterkur hornamaður. Gaman af þessu en ég á von á alla vega einum línumanni í viðbót jafnvel skyttu líka.
Notendur að skoða þetta bréf
Guest


Þú getur ekki skrifað bréf.
Þú getur ekki svarað bréfum.
Þú getur ekki eytt þínum skrifum.
Þúgetur ekki breytt þínum skrifum.
Þú getur ekki búið til kannanir.
Þú getur ekki tekið þátt í könnunum.

SoClean Theme Created by Jaben Cargman (Tiny Gecko)
Knúið af Yet Another Forum.net, útgáfa 1.9.1.8 (NET v2.0) - 29.03.08
Copyright © 2003-2008 Yet Another Forum.net. All rights reserved.