|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 19.05.09 Bréf: 4
|
Ég komst ekki í gær, nei það var ekki vegna þess að ég var að horfa á Eurovision.
Hver fór? Hvernig virkaði miðjan eftir breytingarnar? Hvaða stöðu spilaði Greg Ross? Hvernig finnst ykkur Steindinn okkar?
Vakna Valsmenn, koma svo!
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 10 Staður: Reykjavík
|
Við vorum sterkari í heildina og sköpuðum slatta af fínum tækifærum. Pedersen byrjaði djúpur á miðjunni og Greg Ross í vinstri bak, það var nokkuð áhugaverð pæling þar sem Pedersen var notaður til að bera boltann upp í staðinn fyrir að láta Reyni og Atla dúlla sér með hann.
Spurning samt hvort Pedersen fari ekki aftur í vörnina þegar Haukur Páll kemur aftur...
|
|
 Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 16.04.09 Bréf: 126 Staður: Reykjavík
|
Maður er náttúrulega sáttur með þessi 3 stig en ég hef miklar áhyggjur hvað það gengur illa að skora mörk og þá sérstaklega nýtingu á hornspyrnum. Ég þurfti að fylgjast með þessum leik á mbl.is í beinni textalýsingu og ég trúði varla mínum eigin augum. 5 hornspyrnur á fyrstu 20 mínútunum og ekkert? Skipti svo yfir á Selfoss gegn Stjörnunni og þar kom mark úr fyrstu hornspyrnu leiksins. Sá líka færið hans Rúnars Más í íslensku mörkunum og þar sést að menn þurfa virkilega að æfa að klára færin. Við áttum bara að rótbursta þetta lið en rétt mörðum eins marks sigur. Ég vil sjá menn byrja að klára færin. Spilamennskan er góð, vörnin má kannski bæta en það vantar mest uppá markaskorun.
Koma svo Valsmenn, ég vil sjá mörk gegn Fylki, koma svo!
Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Ég sagði við grindvíska félaga að það hefði ekki verið rán ef Valur hefði tekið þennan leik ca. 1-5. Skotinn át Gilles Mbang í hægri bak, og Rúnar átti svar við öllu sem kom upp vinstra megin.
Mér fannst Sigurbjörn virkilega fínn í þessum leik eftir að hann kom inná, og sérstaklega undir lokin þegar Grindavík pressaði í jöfnunarmarkið. Þeir voru bara ekki að ná af honum boltanum, og hann sendi hann á rétta staði undantekningalaust.
Nú vil ég fara að sjá Viktor koma meira inn í þetta til að fá smá sóknarþunga á móti allri fínu miðju og bakvarðavinnunni, þá fer þetta að detta inn.
|
|
|
Guest |