|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 20.10.08 Bréf: 10 Staður: Reykjavík
|
Hörku leikur á morgun. Veit einhver meiðsla stöðuna á Hauki og Reyni?
|
|
Staða: Meðlimur
Skráði sig: 23.10.08 Bréf: 27 Staður: 101
|
Ég held að Reynir verði með en ekki Haukur, þetta verður mikil barátta og mikilvægt að okkar menn verði klárir í mikil læti, Fylkir eru harðir í horn að sækja, en við tökum okkar fyrsta heimaleik hér, mikilvægt er að stuðningurinn verði góður.
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 17.10.08 Bréf: 15
|
Það er mikill missir af Hauki á miðjunni, hefði verið snilld að hafa hann í baráttunni þarna ... er dáldið hræddur við þennan leik satt best að segja.
|
|
 Staða: Meðlimur
Skráði sig: 13.10.09 Bréf: 28 Staður: Reykjavík
|
Bæði Reynir og Haukur Páll eru í byrjunarliðinu í dag.
|
|
 Staða: Súperstjarna
Skráði sig: 16.04.09 Bréf: 125 Staður: Reykjavík
|
Ég segi bara VÁ!  Maður er bara í skýjunum eftir þennan leik. Leikmenn vissu að við vildum eitt stykki heimasigur og þeir svöruðu svo sannarlega kallinu. 5 mörk en gátu verið miklu miklu fleiri. Menn bara spiluðu eins og lið og menn eins og Danni König, Arnar og Ian Jeffs áttu bara stórkostlegan leik, er ekki frá því að þetta sé besta skipting sem ég hef séð í langan tíma þegar Jeffs kom inná. Ef maður vill gagnrýna eitthvað þá hefði verið enn betra að halda hreinu og kannski svolítið skrítið að segja þetta eftir að hafa skorað 5 mörk en... nýta færin! :) En já, frábær leikur af hálfu Valsmanna og það var bara stórskemmtilegt að sitja Valsmegin í stúkunni í kvöld. Nú verða einhverjir minnugir að segja mér hvenær Valur vann síðast með þremur mörkum og hvenær Valur skoraði síðast 5 mörk í einum leik.
Koma Valur - stolt Reykjavíkur - skorum mörkin og vinnum alla leiki!!
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 22.07.09 Bréf: 0
|
Frábær leikur hjá okkur og við erum bara með mjög sterkt lið. Nú eigum við bara að stefna á efri hlutan. Annan leikinn í röð eru skiptingarnar að ganga upp finnst mér. Jeffs núna og Bjössi í síðasta leik. Mjög gott þegar liðið styrkist við skiptingar. En frábær leikur.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 09.08.09 Bréf: 0
|
Öll vals mörkin komu upp frá sama kanti í kvöld sem sýnir hversu frábært vængspilið var. Enn ég hefði viljað sjá Magga Gylfa tala um rangstöðuna sem dæmd var á okkur í kvöld í fyrri hálfleik þegar Arnar Sveinn var sloppinn einn inn fyrir. Frábær spilamennska og ánægður með skotann í kvöld sem reynir alltaf að spila boltann fram í leik í staðinn fyrir að senda á milli varnarmanna sem hefur endað með því að við höfum fengið á okkur mark eins og á móti ÍBV og Breiðablik.
|
|
Staða: Nýliði
Skráði sig: 19.05.09 Bréf: 4
|
Þetta var frábært í alla staði! Menn komandi af bekknum og delivera! Gulli er kominn í vandræði fyrir næsta leik í liðsvali og þannig viljum við hafa það!
|
|
|
Guest |